Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 86
86
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
JÓLAMATUR
Guðrún Gunnlaugsdóttir
gudrunsg@gmail.com
Við heimsækjum Hólmfríði á fal-
legt heimili hennar í Reykjavík til
þess að forvitnast um súpugerð
hennar og fá að smakka á herleg-
heitunum. Fyrsta spyr ég Hólm-
fríði hvernig hún búi til súpur,
skyldi hún til dæmis gera þær frá
grunni?
„Ég gerði það alltaf í gamla daga
að búa þær til frá grunni, sauð fisk-
bein, stundum roð og afklippur af
fiski, síaði það og kryddaði það. Á
tímabili bakaði ég upp karrísúpur
og setti allt mögulegt í þær,“ segir
Hólmfríður sem seinni árin hefur
starfað sem leiðsögumaður.
Reynir þú að hafa sem fjöl-
breyttast hráefni í súpurnar þín-
ar?„Já, ég reyni það. Ég nota
margar tegundir bæði af fiski og
kryddi. En það þarf að passa að
það rekist ekki hvað á annars horn,
það passa ekki allar bragðtegundir
saman, þetta er smekksatriði. Mér
er í minni einstaklega góð fiskisúpa
sem ég fékk í Ungverjalandi. Ég
hjólaði til borgar sem heitir Tihany
og er ein af elstu borgum í Ung-
verjalandi. Þar var á veitingastað
ofarlega í bænum sem ég fann á
matseðlinum þessa súpu, hún var
sterk, svo sterk að það sló út á mér
svita. Það sem einkenndi hana var
mikil paprika og ábyggilega pip-
ar, hún var svo sterk. Ég hef þó
aldrei lagt í að búa til svo sterk-
an mat sem þá súpu.“
Veik fyrir karrý og rósapipar
Hvert er uppáhalds kryddið þitt?
„Ég er dálítið veik fyrir karrý og
rósapipar. Hef notað það talsvert
við súpugerð. Ég er í saumaklúbb
og lesklúbb og fæ oft til mín konur.
Þá er ég gjarnan með súpur og
brauð, mismunandi súpur. Ég hef
svo sem ekki skrifað mikið niður af
innihaldinu, elda svona eftir því
hvað mér finnst gott. Ég er einnig í
Senjórítunum, kvennakór, fyrir
nokkru komu um fjörutíu konur úr
kórnum og fengu súpu hjá mér, þá
var ég með uppbakaða karrýsúpu.
Í henni hafði ég allskonar fisk og
grænmeti og lauka og gerður var
góður rómur að öllu saman.“
Vandist þú súpum þegar þú varst
að alast upp?
„Bara kjötsúpu. Móðir mín, Sig-
ríður Baldvinsdóttir, var farin að
vinna úti þegar ég stálpaðist og það
var gömul kona á heimilinu sem sá
þá um matseld. Hún hét Snjólaug
Baldvinsdóttir og eldaði afskaplega
góðan mat. Fyrir jólin var eina
skiptið á árinu sem mamma bakaði.
Hún fékk konu til sín til að hjálpa
sér og þær bökuðu allan daginn. Á
meðan ræddu þær um pólitík og
voru alls ekki á sama máli. Önnur
þeirra var í framboði til bæj-
arstjórnar á Akureyri fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn en hin var stækur
kommúnisti. Þegar búið var að baka sagði mamma: „Þetta er nú
gott, mín kæra, það er bara verst
við þig, þó þú segir ýmislegt
af viti, að þú kýst alltaf
vitlaust.“
Þær bökuðu gyð-
ingakökur, stór-
ar þriggja laga
tertur og alls-
konar smá-
kökur, meðal
annars hálfmána
með sveskjusultu
sem pabbi sauð oft.
Einnig bökuðu þær
smákökutegund sem
kölluð er af sumum loft-
kökur.“
Leið vel á lífrænu fæði
Hvenær fórst þú að sérhæfa þig í
súpugerð, ef svo má segja?
„Ég borðaði um tíma makrobíót-
ískan mat, sem er mikið lífrænn.
Þá fór ég að búa til súpur og gera
tilraunir. Þetta var mjög góður
matur en það var mikið vesen að
búa hann til, mér fannst þetta alla-
vega vera talsverð vinna. En mér
hefur aldrei á ævinni liðið eins vel
af neinum mat. Hitt var heldur
verra að þegar ég kom í hús þá var
oftast mjög fátt sem ég gat borðað.
Næstum að ég bæði bara um
vatnsglas. En ég grenntist talsvert
á þessu fæði og leið mjög vel.“
Af hverju hættir þú þessu?
„Ég fór á námskeið í Svíþjóð og
við á námskeiðinu vorum beðin að
láta vita ef við hefðum sérþarfir í
mat. Ég gerði það en maturinn sem
ég fékk var svo vondur að það var
ekki nokkur leið að borða hann.
Bragðlausar pylsur, fljótandi í vatni
og þess háttar. Þetta var ömurlegt
og batnaði ekki. Þá hugsaði ég með
mér: „Ég borða bara það sama og
hinir.“ Eftir þetta varð ekki aftur
snúið alveg til makrobíótíska mat-
arins. En áhugi minn á að búa til
súpur jókst verulega við að vera á
þessu fæði og ég hef svo þróað
þetta áfram. Mér finnst súpur góð-
ur og notalegur matur.“
Heit fiskisúpa í skammdeginu
Fátt er eins notalegt og heit súpa í
skammdeginu Hólmfríður Gísladóttir,
sem áður starfaði hjá Rauða krossinum,
hefur marga súpuna sopið á ferðum sínum
þegar hún var að vinna við störf vegna
flóttamannahjálpar víða um heim
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
EKKISLEIKJA
MALBIKIÐ Í FROSTINU!
-NAGLADEKKIN
UNDIRHJÓLIÐ
FÁST ÍGÁP