Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 96
96
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
JÓLAMATUR
Guðrún Gunnlaugsdóttir
gudrunsg@gmail.com
„Ýmsir gestir okkar eru ekki endi-
lega úr hópi þeirra sem lítið eiga
heldur kemur einnig fólk sem er
einmana á jólunum. Stundum er um
að ræða fólk sem er fráskilið og
börnin eru hjá hinum aðilanum, eða
það hefur misst maka. Þetta á ekki
aðeins við um gestina heldur líka
sjálfboðaliðana,“ segir Rannva Ol-
sen, kapteinn og forstöðukona á
Dagsetrinu, sem er athvarf fyrir
heimilislausa á Eyjaslóð 7 í Reykja-
vík.
Hvernig hagið þið jólunum í ár?
„Í nóvember hefst undirbúningur
fyrir jólin. Þá byrjar maður að
hugsa um hvað eigi að hafa í matinn
og sækja um styrki. Ýmis fyrirtæki
og félög hafa styrkt okkur
blessunarlega í mörg ár. Einnig
þarf að undirbúa jólapakka fyrir
fanga á Íslandi. Það hefur verið hefð
lengi að Hjálpræðisherinn sendi
föngum jólapakka. Þetta getum við
gert vegna þess að við fáum styrk til
þess frá góðu fólki.“
Skreytt í hólf og gólf
„Hjá mér á Eyjaslóð erum við
byrjuð að skreyta. Við höfum hér til
umráða um 200 fermetra. Hér er
borðstofa, setustofa og þrjú svefn-
herbergi. Og auðvitað snyrtingar og
þvottaaðstaða. Við skreytum allt
nema klósettin, fólkinu sem kemur
hingað finnst svo gaman að skreyta.
Og það er mjög skemmtilegt að sjá
hvernig ýmsir skreyta, þeir gera
meira en minna ef svo má segja.
Um þetta leyti förum líka að
baka. Það er svo gott að fá kökuilm-
inn í húsið. Við bökum allskonar
kökur, stundum gefa bakarí okkur
deigrúllur sem auðvelt er að skera
niður. Ýmsir bjóða sig fram í það.
En þegar við bökum eftir upp-
skriftum þá er það yfirleitt starfs-
fólkið sem stendur í því. Okkur þyk-
ir öllum gaman að gleðja þá sem
koma hingað.
Einnig er núna verið að fara í að
athuga með jólafötin. Fólk sem
kemur hingað fær flest spariföt hjá
okkur. Gestir okkar á Eyjaslóð um
jólin eru karlmenn í meirihluta, þar
sem Konukot er opið yfir sjálfar há-
tíðarnar. Jólafötin koma frá Hertex,
nytjamarkaðinum okkar, þetta er
fatnaður sem almenningur hefur
gefið okkur. Hann nýtist bæði til að
selja viðskiptavinum og til að fata
upp heimilislausa fólkið sem kemur
til okkar.“
Skiptar skoðanir um skötu
Hvað borðið þið venjulega á jól-
unum?
„Við erum yfirleitt ekki með
skötu á Þorláksmessu en í fyrra
komu einstaklingar og veitinga-
staður með soðna skötu og meðlæti.
Eldri gestirnir voru kátir með þetta
en hinir yngri og útlendingarnir
voru ekki hrifnir. Þeir vildu heldur
venjulegan fisk. Ég er því búin að
ákveða að hafa grjónagraut á Þor-
láksmessu núna með möndlugjöf og
svo eitthvert gott brauðmeti með
áleggi.“
Hátíðarmaturinn fyrir gesti
Hjálpræðishersins verður fram-
reiddur á Tapashúsinu þessi jólin.
Tapashúsið er niðri við gömlu höfn-
ina, á bak við Hamborgarabúlluna.
„Forsagan að því er þannig að
það hringdi maður í okkur og vildi
gerast sjálfboðaliði hjá okkur. Í tal
barst að við værum að leita að
stærra húsnæði fyrir jólamatinn því
salurinn okkar í Hjálpræðishershús-
inu tekur varla lengur þá gesti sem
koma í mat á aðfangadagskvöld. Þá
sagði þessi yndislegi maður: „Ég
get bjargað þessu, ég á veitingastað
og þar er pláss fyrir 120 gesti. Þar
er allt til staðar, aðstaða til eldunar
og mataráhöld. Við höfum hvort
sem er Tapashúsið ekki opið á að-
fangadag og jóladag.“ Svona bjarg-
aðist þetta. Mér finnst fallegt
hvernig þessi maður brást við.
Við höfum líka fengið kokk sem
sjálfboðaliða. Hann hefur verið með
okkur ásamt öðrum í tvö ár og nú
ætlar hann að elda í Tapashúsinu.
Eftir borðhaldið röltum við svo yfir
á Herkastala og þeir fá bílfar sem
treysta sér ekki til að ganga. Í sal
Herkastalans verður kaffi og kökur
og við munum dansa í kringum jóla-
tréð. Þetta er oft skemmtilegasta
stundin, hápunktur kvöldsins. Á
jóladaginn verður svo opið hjá okk-
ar hér á Eyjaslóðinni fyrir skjól-
stæðinga okkar.“
Tekið á móti öllum
Er jólahald Hjálpræðishersins
svipað í öðrum löndum?
„Já, ég þekki hvernig þetta er í
Danmörku og Noregi, það er svipað
og við höfum það hér. Ég hef einnig
heyrt af jólahaldinu hjá Hjálpræð-
ishernum í Bandaríkjunum, þar er
starfið mjög öflugt. Vafalaust er
álíka sögu að segja frá ýmsum öðr-
um löndum. Við hjá Hjálpræðis-
hernum tökum á móti fólki á jólum
hverrar trúar sem það er og úr
hvaða stétt sem er. Ég vil taka fram
að Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ
Allir eru velkomnir
Hjálpræðisherinn
hefur löngum unnið
gott starf á jólunum
fyrir þá sem minna
mega sín í samfélag-
inu og þá sem eru
einmana og langar
að vera með öðru
fólki á hátíðinni
– með morgunkaffinu
A L V Ö R U
RISTAÐ
BRAUÐ BE IKON
Spælt
E G G
MORGUNVERÐARPYLSUR
kartöfluteningar
síróp
S K I N K A OSTUR
0g0
S P R E N G I S A N D I O G T R Y G G V A G Ö T U
S Í M I 5 2 7 5 0 0 0 — W W W . G R I L L H U S I D . I S
PÖNNUKAKA
1840kr á mann
Allt á sínum stað og svo fylgir
ávaxtasafi og kaffi eða te með.
Allt þetta fyrir einungis
HELGAR
BRUNCH
Er á Facebook
Jurtir í jólagjöf
Slakandi olían er
góð fyrir húðina og
himnesk í baðið!
– Lena
Lenharðsdóttir
www.annarosa.is
Slakandi olían
hefur róandi
áhrif og er
frábær nudd-
og húðolía.
Eftir að ég fór að nota
24 stunda kremið hurfu
þurrkblettir í andliti
alveg og ég er ekki eins
viðkvæm fyrir kulda og
áður. Það gengur mjög
vel inn í húðina og mér finnst það
frábært í alla staði.
– Sigþrúður Jónasdóttir
24 stunda kremið er einstak-
lega rakagefandi og nærandi
fyrir þurra og þroskaða húð.
Fótakremið er silkimjúkt,
fer fljótt inn í húðina
og mér finnst það alveg
æðislegt.
– Magna Huld
Sigurbjörnsdóttir
Fótakremið er kælandi og
kláðastillandi, mýkir þurra
húð, græðir sprungur og
ver gegn sveppasýkingum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.