Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 111
söng þau fullum hálsi og fékk að laun-
um viðurnefnið „Útvarp Reykjavík“.
Ég tróð reglulega upp á ýmsum vett-
vangi og 1960 rættist draumurinn að
syngja í barnatímum RÚV.“
Guðlaugur flutti með móður sinni í
Vesturbæinn 1960, var í Melaskóla,
Hagaskóla og lauk stúdentsprófum
frá ML 1975. Hann lærði tónfræði og
tónsmíði hjá Magnúsi Péturssyni og
síðan hjá Guðmundi Emilssyni á
Laugarvatni. Hann lærði hins vegar
aldrei formlega á hljóðfæri enda
smíðaði hann hljóðfærin sín sjálfur.
Að loknu stúdentsprófi stundaði
Guðlaugur síðar nám í fjöltækniverk-
fræði við HÍ í fimm ár.
Í læri hjá Sigfúsi á Geirlandi
Á árunum 1962-69 var Guðlaugur í
sumarvinnu hjá Sigfúsi Vigfússyni,
rafvirkjameistara á Geirlandi á Síðu:
„Sigfús smíðaði allt frá túrbínum upp
í heilu vatnsaflsvirkjanirnar á Síðu og
í nærsveitum. Ég var með honum í
vorverkum að fara yfir og viðhalda
virkjunum hans. Ég hóf formlegt
nám í fræðunum hjá honum 1964 og
sinnti jafnframt hefðbundnum bú-
störfum en þarna voru 20 mjólkandi
kýr, 300 fjár og nokkur hross.
Sigfús smíðaði mest úr járni og
kopar og stærri hluti en við áttum að
venjast í silfursmíði og hafði fullt vald
á rafmagni. Þar sá ég hann hlaða 12
volta rafgeymi raðtengdan ljósaperu
beint af 220 volta jafnstraumi án
„hleðslutækis“, en slíkt væri ekki
hægt í dag með 230 volta riðstraum
landlægan. Þessi aðferð Sigfúsar er
stórhættuleg og aðeins á færi alvöru
meistara með réttu mælitækin vegna
sprengihættu.“
Með Þey, Kukli og Megasi
Guðlaugur lék með hljómsveitinni
Þey á árunum 1981-83, með Kukli
næstu þrjú árin og starfaði síðan með
Megasi í rúma tvo áratugi. Þeyr gaf
út sex plötur á þessum árum, Kuklið
fimm og með Megasi kom Guðlaugur
að u.þ.b. 20 plötum og tóndiskum.
Hann kom síðast fram með Megasi á
Listahátíð 2010 en hefur í seinni tíð
verið að sinna eigin rónlistarrann-
sóknum.
Auk þess hefur Guðlaugur rann-
sakað og sett fram kenningar í stærð-
fræðilegri eðlisfræði, hefur haldið
fyrirlestra víða í Evrópu um rann-
sóknir sínar og ritverk, sem gefin
hafa verið út við háskóla á Englandi
sem og hjá IEEE í Bandaríkjunum
og nú síðast í Svíþjóð til að nefna það
helsta, en vettvangurinn er eingöngu
á erlendri grundu.
Guðlaugur hefur kennt raun-
greinar á öllum skólastigum í 35 ár,
nemendum 18 ára og eldri. Haldin
var sýning á Kjarvalsstöðum árið
2012 á vélmenni sem Guðlaugur
smíðaði ásamt nemendum sínum og á
Listahátíð 2012 var Listasafn
Reykjavíkur með sýningu sem
byggðist á rannsóknum hans á orku-
rúmfræði.
Fjölskylda
Börn Guðlaugs eru Ellen Svava
Guðlaugsdóttir, f. 9.7. 1973, fé-
lagsfræðingur í Kópavogi en maður
hennar er Magnús Guðlaugsson og
eiga þau þrjú börn; Hera Guðlaugs-
dóttir, f. 1.11. 1981, doktorsnemi í
loftslags- og jarðefnafræðum við
Kaupmannahafnarháskóla og er
maður hennar Jón Ragnar Daðason
tréskipasmiður og eiga þau þrjá syni;
Anna Kristín Gústafsdóttir, f. 7.1.
1972 (fósturdóttir), athafnakona í
Reykjavík en maður hennar er Hlyn-
ur Bjarnason, starfsmaður hjá Ice-
landair og eiga þau tvö börn.
Systkini Guðlaugs: Vivan Hrefna
Óttarsdóttir, f. 17.4. 1956, d. 9.9. 1995,
var í doktorsnámi í líffræði og er dótt-
ir hennar Urður Úa Guðnadóttir, í
doktorsnámi í læknavísindum; Björg-
úlfur Þorsteinsson, f. 27.9. 1957, raf-
vélavirkjameistari og kennari, bú-
settur í Hafnarfirði.
Hálfsystir Guðlaugs, sammæðra,
er Sólveig Jóhannesdóttir, f. 26.9.
1962, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Kópavogi.
Foreldrar Guðlaugs eru Elín Sól-
veig Benediktsdóttir, f. 19.6. 1937,
sendiráðsritari í sænska sendiráðinu í
Reykjavík, og Óttar Hermann Guð-
laugsson, f. 8.10. 1931, d. 3.9. 1991,
forstjóri gull- og silfursmiðjunnar
Ernu.
Úr frændgarði Guðlaugs Kristins Óttarssonar
Guðlaugur Kristinn
Óttarsson
Magnús Hannesson
b. í Skáleyjum á Breiðafirði
Kristín Jónsdóttir
húsfr. í Skáleyjum
Guðlaugur A. Magnússon
gullsm. og tónlistarm. í Rvík
María Hermannsdóttir
húsfr. í Rvík
Óttar Hermann Guðlaugsson
forstj GSE í Rvík
Hermann Bjarni Kristjánsson
útvegsb. á Ketilseyri í
Þingeyrarhreppi
Jóna Hafliðadóttir
húsfr. í Efstadal í Ögursókn í Djúpi
Jakob Hallgrímsson
b. á Fossseli
Helga Benediktsdóttir
húsfr. á Fosseli í S-Þingeyjars.
Benedikt Jakobsson
íþróttafr. og
Ólympiuþjálfari í Rvík
Vivan Signore Aurora Holm
sjúkraþjálfi og kennari í Rvík.
Elín Sólveig Benediktsdóttir
sendiráðsritari í sænska
sendiráðinu í Rvík
Otto Holm
frá Lönneberga í Smálöndum,
bóndi í Haga í Uppsölum
Amanda Karolina Nielsdotter
frá Kristdala í Smálöndum, húsfr.í Haga
ÍSLENDINGAR 111
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Gunnar Jónsson fæddist íReykjavík 11.12. 1920 og ólstþar upp við Ránargötuna í
Vesturbænum. Foreldrar hans voru
Jón Júlíus Pálsson, verkstjóri í
Reykjavík, og Elín Ólafsdóttir frá
Akranesi. Jón Júlíus var sonur Páls
Jónssonar, steinsmiðs í Reykjavík,
og Þuríðar Jónsdóttur, en Elín dótt-
ir Ólafs Jóhannessonar, bónda á Sý-
ruparti á Akranesi, og Guðrúnar
Tómasdóttur Zoëga.
Gunnar kvæntist 1949 Guðbjörgu
Aðalheiði Þorsteinsdóttur sem lést
2013, en þau eignuðust sjö börn,
Ragnar, fyrrv. bátsmann hjá Eim-
skip; Elínu verslunarmann; Gunnar
tómstundafræðing; Herdísi banka-
mann, Sigríði bókasafnsfræðing;
Hellen Magneu skrifstofustjóra, og
Þorstein, framkvæmdastjóra Natan
& Olsen.
Gunnar hóf störf hjá heildverslun
Natan & Olsen sem sendisveinn árið
1936, þá 15 ára. Hann starfaði síðan
hjá fyrirtækinu allan sinn starfsferil,
sá um skeið um afgreiðslu á smá-
vörulager og síðar ákveðna þætti í
bókhaldi, varð sölumaður í matvæla-
og fóðurvörudeildinni 1940 og var
síðan lengst af sölustjóri og var þá
tvívegis útnefndur heimsmethafi í
sölu á pakkavörum frá General Mills
í Bandaríkjunum.
Gunnar var einkar músíkalskur,
prýðilegur trommuleikari og lék
með ýmsum hljómsveitum á sínum
yngri árum. Hann var myndarlegur,
prúður og formfastur í fasi í sam-
skiptum sínum við fullorðna enda
sölustjóri eins fremsta heildsölufyr-
irtækis í matvöru hér á landi. En
undir niðri bjó hann yfir miklum
gáska og glensi þegar börn og ung-
lingar áttu í hlut. Þessi lífsgleði hans
naut sín afar vel í starfi hans sem
knattspyrnuþjálfara. Mörg hundruð
KR-ingar sem nú eru að komast af
miðjum aldri muna einmitt best eftir
Gunnari sem þjálfara sínum og eld-
heitum KR-ingi. Segja má að hann
hafi um árabil alið upp heilar kynlóð-
ir knattspyrnustráka í KR á sjöunda
áratug síðustu aldar, stundum 70-80
gutta samtímis, og reyndar með frá-
bærum árangri.
Gunnar lést 20.2. 1985.
Merkir Íslendingar
Gunnar
Jónsson
101 ára
Guðrún Valborg
Finnbogadóttir
85 ára
Kristjana Kristjánsdóttir
Rósa Árnadóttir
80 ára
Elísabet Lárusdóttir
Grétar Lárusson
Haukur Sigurðsson
Rebekka Bergsveinsdóttir
Þorvaldur Elbergsson
75 ára
Birgir Már Pétursson
Helgi Hákon Jónsson
Ingileif Ólafsdóttir
Kolbrún Sigfúsdóttir
Þórður Þorgilsson
70 ára
Anna Margrét Ellertsdóttir
Einar Gústafsson
Erla Friðriksdóttir
Sigurður Andrés
Stefánsson
60 ára
Grímur Kjartansson
Gunnar Steinn Pálsson
Gunnhildur Magnúsdóttir
Haraldur Örn Jónsson
Heiðbrá Guðmundsdóttir
Helga Sigurðardóttir
Ingibjörg Jóhanna
Marinósdóttir
Jónína Sigþrúður
Sigurðardóttir
Júlíus Karlsson
Laufey Sigurðardóttir
Magnús Guðmundsson
Mildríður Hulda Kay
Ólafur Árnason
Pétur Jóhannsson
Ragnheiður Valdimarsdóttir
50 ára
Ásta Guðmundsdóttir
Björn Oddgeirsson
Einar Benedikt Naabye
Kristinn Jakob Reimarsson
Kristján Freyr Arnþórsson
Krzysztof Skurski
Ólína Auður Hallgrímsdóttir
Sigurjón Ívarsson
Sólveig Úlfarsdóttir
40 ára
Adam Wladyslaw Piszcz
Elísabet Hrönn Gísladóttir
Hildur Sigurðardóttir
Jónas Dagur Jónasson
Nils Schwarzkopp
Óskar Már Alfreðsson
Ragnheiður Birna
Björnsdóttir
Rannveig Björk
Guðjónsdóttir
Sigurður Bjarni Hafþórsson
30 ára
Einar Ingi Þorsteinsson
Elva Borg Valgerðardóttir
Marek Wadolowski
Oksana Kora
Ragnheiður Björg
Svavarsdóttir
Teitur Frímann Jónsson
Vilborg Þórey
Styrkársdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Steinunn ólst upp
á Akureyri, býr í Reykja-
vík, lauk BSc- og diploma-
prófi í geislafræði frá HÍ,
stundar MA-nám í mann-
auðsstjórnun við HÍ og er
geislafræðingur á LSH.
Maki: Bjarni Pálmason, f.
1984, verkfræðingur hjá
Arion banka.
Sonur: Pálmi Snær
Bjarnason, f. 2009.
Foreldrar: Einar Thorla-
cius, f. 1952, og Helga Á.
Thorlacius, f. 1950.
Steinunn Erla
Thorlacius
30 ára Samúel ólst upp í
Bolungarvík, býr í Reykja-
vík, lauk BA-prófi í stjórn-
málafræði frá HÍ og er
blaðamaður á 365 miðl-
um.
Systkini: Stefán Ólason,
f. 1992, og Heiður Björk
Óladóttir, f. 1993.
Foreldrar: Óli Fjalar Óla-
son, f. 1964, sjómaður í
Grundarfirði, og Anna
Kristín Magnúsdóttir, f.
1966, kennari í Grund-
arfirði.
Samúel Karl
Ólason
30 ára Steingrímur ólst
upp í Kópavogi, býr í
Hafnarfirði, lauk stúd-
entsprófi frá MK og er
sölumaður hjá Freyju.
Maki: Ásgerður Kristjáns-
dóttir, f. 1984, þroska-
þjálfi.
Foreldrar: Björg Ingólfs-
dóttir, f. 1947, fyrrv. mat-
ráður við leikskóla, og
Steingrímur Leifsson, f.
1943, fyrrv. flugmaður og
flugkennari. Þau búa í
Kópavogi.
Steingrímur O.
Steingrímsson
mbl.is/islendingar
www.leikfangaland.is netverslun — Sími 824 1010
endalausar hugmyndir af leikföngum fyrir börn
og jólasveininn
hefur þú kíkt á