Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 112
112 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þér finnist gaman að láta sjá
verka þinna stað skaltu hafa hugfast að
magn er ekki sama og gæði. Notaðu tæki-
færið og dragðu þig í hlé.
20. apríl - 20. maí
Naut Breytingar breytinganna vegna hafa
ekkert upp á sig – eru aðeins flótti frá raun-
veruleikanum. Taktu á þig rögg og ráðstu að
kjarna málsins svo þú getir leyst það á réttan
hátt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Mál skipast svo í þína þágu að það
veldur þér ánægjulegri undrun. Leitaðu leiða
til að auka þroska þinn og víðsýni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leit þín að lífssannindum kann að
leiða þig á allskonar brautir. En um leið bætir
það við verkefnalistann, því ætlast er til að
þú svarir í sömu mynt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Forvitni þín er vakin í dag. Skyndilega
kemst þú að því að lykillinn sem þú hefur
leitað svo ákaflega berst þér upp í hendur
fyrirhafnarlítið. Frestaðu kaupunum til morg-
uns.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér hefur tekist að koma fjármálunum
í rétt horf og hefur því efni á að verðlauna
sjálfan þig. Ekki láta þitt eftir liggja.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt núna mjög gott með að láta þig
dreyma og sjá hlutina fyrir þér. Ef þú leggur
þig fram um að ná takmarki þínu ætti þér að
takast ætlunarverk þitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að festa sjónir á þeim
takmörkum sem starfi þínu eru sett. Hækk-
aðu í tónlistinni og keyrðu með opinn glugga.
Nú skaltu fyrir alvöru fara að ráðleggja leiðir
til að svala útþránni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mál tengd ferðalögum geta veitt
þér ánægju eða gróða í dag. Finndu út hvern-
ig það virkar og allt fer á fleygiferð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skelltu þér út á lífið og spjallaðu
við fólk um landsins gagn og nauðsynjar.
Þetta er nauðsynlegt ef þú vilt ekki dragast
aftur úr.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ástvinur elskar þig mest af öllum,
en ekki er víst að kærleikur hans takmarkist
við það. Hreyfing er holl og ekki skiptir
mataræðið minna máli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er ekki rétti tíminn til þess að taka
einhverja áhættu. Einbeittu þér að heimilis-
lífinu og þínum nánustu frekar en að færa út
kvíarnar.
Ég er með eintak af „FimmtuDavíðsbók – ljóð á léttum
nótum“ milli handanna. Það er
falleg bók og skemmtileg sem
höfundurinn, Davíð Hjálmar
Haraldsson, lýsir svo:
Davíðsbók er svo til alveg sönn,
samt má ýkja, þá er vísan betri.
Þú skalt hugsa um hálftommu
og spönn
ef höfundurinn segir kílómetri.
Bókin er 132 blaðsíður og fjórar
eða fimm vísur á hverri undir
hinum ýmsu bragarháttum. Yrkis-
efnin eru af ýmsu tagi, oft úr
pólitík. – Feitlaginn stjórnmála-
maður syðra var sakaður um að
hygla sér og sínum:
Sílspikaður safnar höku,
sumir kunna að met ‘ana.
Skarar eld að eigin köku.
Ættingjarnir ét ’ana.
Kunnar persónur eru alltaf gott
yrkisefni. – Í yfirheyrslum hjá sak-
sóknara varð Jón Ásgeir stundum
tvísaga, sagði hann það stafa af því
að hann kæmi „kaldur að borðinu“:
Aldrei laug hann, auminginn,
ekki í raun og verunni.
Hann kom bara svo kaldur inn
að kviknaði ekki á perunni.
Sagt er frá skemmtilegum
atvikum. – Kampselur lá á bryggju
rétt við Drottningarbraut þegar
höfundur kom þar á skokki:
Við vegarbrún lá hann, mér varð ekki
um sel
og við lá að missti ég dampinn,
þó get ég svarið, ég sá það sko vel
að selurinn brosti í kampinn.
Rifjað er upp að yfirvöld hafi
ekkert nautakjöt fundið í
ákveðnum innlendum matvörum
sem áttu að innihalda nautakjöt:
Nautsskrokk heim úr búð ég bar,
að borðum rétt var sestur
svangur – er ég sá það var
svikinn rugguhestur.
Þessi limra um vörusvik lýtur að
því sama:
Með hálfétinn handlegginn sagði
Helgi „í innkaup ég lagði
en fann það um leið
er fékk ég mér sneið
að hann var með hrossaketsbragði“.
Ýmislegt ber við:
Í Hátúni var ekki verandi
er Véfríður öskraði skerandi.
Var henni illt?
Hún ansaði stillt:
„Ekki svo orð sé á gerandi.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Selurinn brosir í kampinn
í Fimmtu Davíðsbók
Í klípu
„ÞEIR NÁÐU MÉR VIÐ AÐ RÆNA FRÁ
PÉTRI TIL ÞESS AÐ GEFA PÁLI, EN ÞEIR
VORU Í RAUN Á HÖTTUNUM EFTIR PÁLI
– OG BUÐU MÉR STYTTRI DÓM FYRIR
AÐ VITNA GEGN HONUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SÁ ÞENNAN SAMA SVIP FYRIR
FJÓRUM ÁRUM. HANN ER MEÐ
KONUNGLEGA LITARÖÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum hvati til
svefnleysis.
NÝJA KÆRASTAN MÍN ER FRÁ
ÖÐRU LANDI
ÖÐRU LANDI? HÚN BÝR Í
KJALLARANUM
TALAR HÚN
ÍSLENSKU?
STANS!
HVER
FER
ÞAR!
ÞAÐ KEMUR ÞÉR EKKERT VIÐ, ÞÚ LJÓTI
LÚSABLESI, EN EF ÞÚ HELDUR ÁFRAM AÐ
SPYRJA ÞESSARA FÁRÁNLEGU, ÓÞÖRFU
SPURNINGA, MUN ÉG TAKA STAF MINN OG
VEITA ÞÉR ÆRLEGA RÁÐNINGU MEÐ HONUM
SVO AÐ ÞÚ MUNIR HAFA VERRA AF!!!
MIG GRUNAR AÐ HANN
TILHEYRI ENSKU
YFIRSTÉTTINNI
Jólin nálgast, og skyndilega komveturinn sem búið var að bíða
eftir. Víkverji verður að játa að hon-
um þótti það nokkuð kyndugt að
veðurfarið í október og nóvember
var eiginlega betra en í sumar. Það
var svo gott, að hann trassaði fram-
eftir vetri að taka grillið inn af svöl-
unum og var jafnvel að gæla við að
grilla í matinn síðla nóvember og
halda smá „kjötkveðjuhátíð“ áður en
hann tæki það niður. Var það því
ekki fyrr en í stóra óveðrinu í mán-
aðarbyrjun að Víkverji tók niður
grillið sitt, áður en það fauk.
x x x
Veðrið var meira að segja svo gott,að Víkverji fann lifandi húsflugu
heima hjá sér í byrjun desember, af
öllum mánuðum! Flugan setti Vík-
verja reyndar í vanda, því að í seinni
tíð hefur hann svona reynt að forð-
ast það að gera flugu mein, allavega
að fyrra bragði, og þó að það væri
ágætlega truflandi að hafa risastóra
flugu suðandi yfir sér réttlætti það
ekki fyrir Víkverja það að hann tæki
líf hennar.
x x x
Flugan fékk því að suða og puða ínokkra daga áður en frú Vík-
verji, sem þurfti að læra fyrir próf,
fékk nóg og veiddi hana í krukku.
En nú voru góð ráð dýr, því Víkverji
þurfti nú að henda kvikindinu út og
reyna að leiða þá hugsun hjá sér að
þar með hefði Víkverji jafnframt
undirritað dauðadóminn vegna
kuldakastsins sem þá var skollið á.
Hann reyndi því að finna tiltölulega
hlýjan stað til þess að opna krukk-
una á, og hljóp síðan sem fætur tog-
uðu aftur inn til sín, svona ef ske
kynni að flugan elti hann.
x x x
Annars hefur veðrið haft ýmisáhrif á Víkverja, einkum á
morgnana þegar hann þarf að skafa
bíl sinn bæði að innan og utan. Ein-
hverra hluta vegna er fullmikill raki
inni í bílnum sem næst aldrei alveg
úr honum þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. Það er því nokkuð jólalegt
um að litast í bílnum þegar Víkverji
hefur lokið sér af, því að það snjóar,
bókstaflega, þegar hann skefur
framrúðuna. Eiginlega aðeins of
jólalegt. víkverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar um
þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag-
inn. (Sálmarnir 71:8)
MÚSIKEGGIÐ
tryggir að þú fáir eggið þitt
soðið eins og þú vilt hafa það.
Þú setur það með eggjunum
í pottinn við suðu, og þegar
eggin eru linsoðin heyrist:
„Killing me softly“
og harðsoðin:
„Final Countdown“
Skólavörðustíg 12 • www.minja.is • facebook: minja
Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin.
Músikeggin (EggStream) er samstarfsverkefni þýska hönnunarteymisins „Brain Stream“
Verð aðeins 5.500 kr.