Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 121

Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 121
MENNING 121 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 7 12 POWERSÝNING KL. 10 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 L MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 5 - 7 - 10 (p) MÖRGÆSIRNAR 2D Sýnd kl. 5 DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 4:30 - 8 - 10:00 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Afmælisútgáfa Sími: 528 8800 drangey.is Smáralind Stofnsett 1934 Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is Kr. 6.500, 8 kort og seðlar Kr. 8.500, 10 kort, seðlar smápeningar Nafngylling kr. 1.100 Tilvalin jólagjöf Kr. 2.800, 6 kort Kr. 5.900, 6 kort og seðlar Franski rithöfundurinn Patrick Modiano tók í gær við Nóbels- verðlaununum í bókmenntum við há- tíðlega athöfn í Stokkhólmi. Um leið voru Nóbelsverðlaunin í efna-, eðlis-, læknis- og hagfræði afhent. Í rökstuðningi sænsku akademí- unnar fyrir valinu á Modiano segir að það hafi verið fyrir list minnisins sem hann hafi beitt í verkum sínum við að fjalla um mannleg örlög á tím- um hernámsins í Frakklandi. Í þakkarræðu sinni sagði Modiano lesandann iðulega vita meira um bók en höfundur hennar. „Eitthvað ger- ist á milli skáldsögu og lesanda sem líkist ferlinu við að framkalla ljós- mynd, eins og það var gert fyrir staf- rænu byltinguna. Ljósmyndin kem- ur smám saman í ljós. Þegar maður les sig í gegnum skáldsögu á sams- konar efnaferli sér stað,“ sagði Mod- iano meðal annars í ræðunni. AFP Verðlaun Franski rithöfundurinn Patrick Modiano var hylltur eftir að hafa tekið við Nóbelsverðlaununum úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs í gær. Modiano tók við Nóbelnum Tónlistarmaðurinn Bob Dylan mun gefa út breiðskífu í febrúar á næsta ári með lögum sem Frank Sinatra söng á sínum tíma. Platan mun bera titilinn Shadows in the Night og meðal laga á plötunni eru „Full Moon And Empty Arms“, „Stay With Me“ og „Some Enchanted Evening“. Dylan greinir frá því í tilkynningu að hann hafi langað að gera eitthvað þessu líkt í langan tíma en skort hugrekki til þess að takast á við verk sem útsett voru fyrir 30 manna hljómsveit og út- setja fyrir fimm manna hljómsveit. Dylan segir að platan hafi verið hljóðrituð í einni eða tveimur tök- um sem hafi fengið að halda sér á plötunni. Hann líti ekki svo á að hann sé að breiða yfir lög Sinatra heldur þvert á móti að koma þeim úr gröfinni og út í dagsljósið. Sinatra-lög Bob Dylan dregur lög Franks Sinatra fram í dagsljósið. Dylan syngur lög Sinatra á næstu plötu AFP Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Þorgils Friðjónsson myndlist- armaður vígir nýtt sýningarrými, Verkstæðið – Gallerí, þegar hann opnar þar sýningu í dag, fimmtu- dag, klukkan 17. Sýninguna kallar hann „Stækkunargler fyrir vind- inn“. Verkstæðið er á Grettisgötu 87, í bakhúsi við verkstæðið Bílrúð- una sem stendur á milli Rauðarár- stígs og Snorrabrautar. Þetta nýja listamannarekna sýn- ingarrými er rekið af þeim Halldóri Ragnarssyni og Jóni Pálmari Sig- urðssyni og segir Halldór, sem er myndlistarmaður og með vinnu- stofu á sama stað, að þeir hyggist sérstaklega beina sjónum að verk- um listamanna sem vinna með tví- víð verk og reyna á möguleika þeirra. „Í húsinu eru tvær vinnustofur auk sýningarrýmisins,“ segir Hall- dór. „Við veljum inn sýningar út frá því sem okkur finnst spennandi. Helgi Þorgils kenndi mér fyrir um tíu árum og okkur datt í hug að byrja á að sýna eitthvað skylt því sem varð þess valdandi að við feng- um áhuga, sem var „nýja mál- verkið“. Helgi Þorgils var einn fyr- irrennara þess hér á Íslandi.“ Sýning Helga stendur í mánuð og er opið síðdegis frá fimmtudegi til sunnudags. Halldór segir að ekki sé stefnt að samfelldu sýningarhaldi heldur verði settar upp valdar sýn- ingar af og til. „Við gerum þetta eftir okkar höfði,“ segir hann. „Það er ekkert nýtt að fók opni sýningarrými sem þetta en það vantar alltaf fleiri rými. Við veljum inn sýningar út frá okkar hugmyndafræði. Við komum báðir út úr tvívíðum pæl- ingum í listinni og fyrir utan Hverf- isgallerí finnst mér skortur á sýn- ingarstöðum fyrir tvívíða list. Góð list er alltaf góð list en hjá okkur verður tvívíði flöturinn standard- inn; það þarf ekki endilega að vera málverk, það má útvíkka þann flöt eins og fólk vill.“ Frískleg og mikilvæg „Ég ákvað að draga fram eld- gömul verk fyrir þessa sýningu,“ segir Helgi Þorgils. „Meginuppi- staðan er frá 1977, myndröð þar sem ég var að fleygja öllu mal- erísku út úr málverkinu. Ég gerði myndirnar mjög einfaldar og ákvað í fyrsta skipti að yfirfæra skissur á striga, án þess að fegra eða laga nokkurn hlut. Ég vildi hafa verkin á striga svo þau fengju sögulega til- vísun í málverkið um leið.“ Helgi segir þessi verk hafa þróast inn í aðra myndröð sem hann átti eftir að sýna á Parísar- tvíæringnum en þessi verk voru sýnd á þessum tíma í Norræna hús- inu. „Ég sýni eina mynd úr röðinni sem fór þá til Parísar, hún var unn- in með svipuðum hætti og þessar elstu en hafði aðeins þróast, og aðra sem var orðin nokkuð sér á parti þegar ég gerði hana 1986 en hélt þessum eldri sérkennum. Þá sýni ég einnig eina fyrstu „kópíu- röðina“ sem ég gerði; það er Cos- per-brandari, kyrralífsuppstilling og mynd eftir gömlu dúkskurðar- verki. Þessi verk hafa öll verið á sýningu áður en það er orðið mjög langt síðan. Mér finnst þetta frískleg og mik- ilvæg verk fyrir mig,“ segir hann. „Ég skýt líka oft eldri myndum inn á milli nýrra á sýningunum mínum og hef gaman af því.“ Helgi er annars upptekinn við sýningahald á næstu mánuðum, eins og fyrri daginn, þar sem fram- undan eru sýningar í Nürnberg, Tórínó og Hallgrímskirkju. Morgunblaðið/Ómar Myndlistarmaðurinn „Ég ákvað að draga fram eldgömul verk fyrir þessa sýningu,“ segir Helgi Þorgils. Hann er hér í sýningarsalnum. Söguleg málverk Helga Þorgils  Fyrsta sýning í Verkstæði – Gallerí
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.