Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 34
kynnt. Og það fór víst heldur ekkert á milli
mála með bókhaldið hjá Finni — fylgi-
skjölin sem hann lagði fram sögðu allt sem
segja þurfti.
Við skulum líta hér nánar á nokkur þeirra,
þau varða útfararkostnaðinn. Það er þá fyrst
reikningur frá líkkistusmiðnum, honum
Engelmann snikkara, 10 ríkisdalir fyrir lrk-
kistu og 2 ríkisdalir og 48 skildingar fyrir
lrkblæju. Svo er það Sören okkar Kattrup.
Hann hefur kraftð Finn um greiðslu sam-
kvæmt nótu sem er á þessa leið og sýnir
ýmsan kostnað við útför Jónasar: Til ganga-
konunnar 1 rtkisdalur 2 merkur og 8 skild-
ingar, skyrta (á hinn látna) 1 dalur, krans 4
merkur, til fatageymslufólksins 2 merkur,
drykkjupeningar fyrir kistuna (trúlega fyrir
líkkistusmiðinn) 2 merkur, eitt par af
hönskum 1 mörk — ekki máttu menn fara
berhentir í gröfrna — og srðasti liðurinn hjá
Sören er þessi: forat tilskrue Kisten, sem
útleggst: fyrir að skrúfa lokið á kistuna —
8 skildingar. Hér er allt týnt til og ekkert
ókeypis. Finnur borgar.
Og þá kemur loks meginreikningurinn
yfrr útfararkostnað Jónasar Hallgrímsson-
ar. Hann er frá Hjástoðarkirkjugarði þar
sem Jónas fékk leg. Textinn er svona í laus-
legri þýðingu:
Laugardaginn 31. maí var jarðaður r Trin-
itatissóknar Hjástoðarkirkjugarði kandídat
í heimspeki Jónas Hallgrrmsson 36 ára
gamall (rétt: 37), dáinn þann 26. mar. Ltkið
var flutt frá Friðrikssprtala og kostaði lrk-
vagninn 2 ríkisdali. Sex burðarmenn voru
tilkvaddir. Utgjöldin voru sem hér segir:
For Jorden, þ.e. legkaup fyrir jörð að liggja
í, 2 ríkisdalir, tveggja rrkisdala líkvagn
ásamt hestaleigu 2 dali 1 mörk og 10 skild-
ingar, kúskurinn á lrkvagninum 2 merkur,
sex lrkburðarmenn 6 ríkisdalir, taka graf-
arinnar 1 dalur og 2 merkur, „pælepenge"
(það er gjald fyrir grafarmerki) 1 mörk og
12 skildingar, til sendimanns er sótti lrkið 1
mörk og 8 skildingar, lrkvagnsklæðið 1 dal-
ur, þrír aðstoðargrafarar 1 dalur og 3 merk-
ur, grafarkarlinn 2 merkur, laun prestsins 2
rrkisdalir, laun hringjarans 4 merkur, spít-
alagjald fyrir læknisvottorð 2 dalir 2 merk-
ur og 8 skildingar, tveir vagnar fyrir lrk-
mennina með drykkjupeningum 2 dalir,
vagn fyrir prestinn með drykkjupeningum
1 dalur, vagn fyrir útfararstjórann með
drykkjupeningum 1 ríkisdalur, þjónninn á
útfarardegi 1 dalur, púrtnerinn og ræstinga-
konan á sprtalanum 2 merkur og srðast eru
það svo 2 dalir til útfararstjórans. Samtals
gerir þetta 27 ríkisdali 5 merkur og 6 skild-
inga. Reikningurinn er dagsettur Kaup-
mannahöfn, 31. mar 1845 og neðst stendur:
Ofangreind upphæð hefur mér verið greidd,
sem hérmeð kvittast fyrir sem vera ber.
Undirskriftin gæti verið Örum en er illlæsi-
leg. Það er kirkjugarðsgjaldkerinn.
Þetta hefur greinilega verið allvirðuleg
jarðarför. Finnur Magnússon, leyndar-
skjalavörður konungs, vildi ekki að þeir
sem lifðu í brauði Hins íslenska bók-
menntafélags færu í gröfina eins og vesælir
sveitarómagar, þótt stundum hafi verið
naumt skammtað í lifanda lífi. Og sjálfur
kvittar hann á heildarreikninginn yfir allan
útfararkostnað Jónasar: Ofantaldir fjörutíu
og fjórir ríkisbankadalir 38 skildingar eru
mér endurgoldnir af sjóði Félagsins eftir
þess ályktun og mínum afreikningi. Og
þegar hann nokkru síðar greiddi skuldir
Jónasar við skraddarann, fyrir klæðnaðinn,
sem skorinn var af skáldinu á spítalanum,
og einnig skuld við skóarann, þá höfðu allir
32
TMM 1990:4