Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 82
hlýða á málsvörn Sturlu og veita honum
ásjá ef hann vill koma fram eins og réttlátur
konungur sem fylgir hollráðum gamal-
reynds ráðgjafa síns. Annars kallar hann
yfir sig reiði guðs.
Málsvarar Sturlu Þórðarsonar í þættinum
telja hann fróðan mann og vitran. í Kon-
ungsskuggsjá er einmitt lögð áhersla á þrjá
eiginleika sem afla mönnum sæmdar meðal
konunga og annarra ríkismanna, þ.e. mann-
vit, siðgæði og hæversku. Tveir síðartöldu
mannkostimir fylgja mannvitinu. í því er
m.a. fólgin orðleikni og snilld, fróðleikur
og skilningur. Þessa kosti sýnir Sturla með
því að segja Huldar sögu og flytja konungi
lof. Um leið kemur fram einurð hans í við-
skiptum við konung sem aðra. Með því
hefur hann sannað manngildi sitt og öðlast
þá jafnframt vináttu konungs.
Það er gjaman fundið að sagnaritun
Sturlu Þórðarsonar að þar sé safnað saman
stóru og smáu án nokkurrar heildarsýnar
yfir efnið. Narve Bjprgo orðar þessa gagn-
rýni svo: „í öllum verkum sínum sýnir hann
sérstaka hæfileika til að lýsa hlutunum ná-
kvæmlega í smáatriðum en skortir ímynd-
unarafl, innsæi og tengigáfu til að sjá
samhengið milli atriðanna og gera úr þeim
heild.“17 Fræðimenn eru þó sammála um að
Sturla hafi haft skýran skilning á tímatali og
fellt öll atriðin bæði í íslendinga sögu og
Hákonar sögu Hákonarsonar inn í frásögn-
ina í tímaröð líkt og var háttur miðalda-
18
sagnfræðinga á meginlandi Evrópu.
Öllum sem lesa þessi tvö höfuðrit hans sem
nú eru varðveitt verður líka brátt ljóst
hversu miklu máli ættarbönd, ættarfylgjur
og ættarslit skipta í frásögninni. íslendinga
saga sýnir hvernig taumlaus metnaður og
valdagimi brjóta niður íslenska valdakerfið
og valda upplausn höfðingjaveldisins.
Bræður berjast, systrungar spilla sifjum og
ráðum viturra manna er ekki sinnt. Hákonar
saga er skrifuð í framhaldi af eldri konunga-
sögum, svo sem Heimskringlu og Sverris
sögu þar sem meginstefið er deilur um kon-
ungserfðir og -völd. í sögu sinni leggur
Sturla annars vegar áherslu á innanlands-
ófrið þann sem lyktaði með því að Hákon
Hákonarson varð einvaldskonungur yfir
Noregi og hins vegar glæsileik einvalds-
stjómar hans.19 Sagan er borin uppi af kon-
ungshugsjón Hákonar sem kemur fram í
stjóm hans. En þetta em þau þemu sem
Sturla fæst við í kvæðum sínum og Huldar
sögu þegar hann kemur á fund Magnúsar ef
hér er getið rétt til um efni þeirra. Skiln-
ingur sá sem Sturla sýndi þá á gildi sterkrar
konungsstjómar hefur átt þátt í því að
Magnús gerði hann að sagnritara sínum.
Sturla hafði játast undir vald Noregskon-
ungs á íslandi eftir að viðleitni hans til að
efla innlenda höfðingjastjórn hafði komið
fyrir lítið. En hann gerist þá fyrst trún-
aðarmaður Magnúsar konungs þegar kon-
ungur viðurkennir hann að verðleikum.
Eftir það verður Sturla einn helsti liðsmað-
ur konungsstjómarinnar í að koma á röð og
reglu á íslandi og sagnritari norsku ein-
valdskonunganna.
***
Hér að framan hafa verið færð rök að þeirri
tilgátu Prebens Meulengrachts Sprensens
að Huldar saga hafi fjallað um Huld seið-
konu sem Ynglinga saga segir frá. Rökin
em þau að Sturlu þáttur fylgir í allri gerð
frásagnarhefð miðalda um Islendinga sem
fóru utan. Einarðleiki söguhetjunnar við að
ná konungshylli er jafnan eitt aðalatriði í
lýsingu hennar. En nokkuð virðist skorta á
einurð Sturlu Þórðarsonar í framkomu við
80
TMM 1990:4