Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 35

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 35
fengið sitt. Jónas Hallgrímsson var skuld- laus maður í gröfinni en það hafði hann sjaldan verið hin síðari ár. Og nú er aðeins eftir lftill eftirmáli. Á ársfundi Bókmenntafélagsins næsta ár, sem haldinn var þann 20. apríl, er enn bókað og þá á þessa leið: Um eftirlátna muni Jónasar sáluga Hall- grímssonar, sem skiptarétturinn hafði út- hlutað félaginu var samþykkt að þessa muni skyldi selja á uppboðsþingi. í skýrslu sinni á þessum ársfundi gat Finnur Magnússon um eftirlátin handrit Jónasar viðvíkjandi íslandslýsingunni og sagði síð- an: Þetta nú framtalda sýnir að minni meining ljóslega að Jónas heitinn Hallgrímsson, síð- an hann í seinasta sinn kom hingað til Hafn- ar, vel hafi verðskuldað þau laun er félag vort veitti honum fyrir störf þau er honum voru ætluð af þess hálfu, þótt ske mætti að það heilsuleysi og eins konar sinnisveiki, er hann á síðustu árum æfi sinnar hafði við að stríða, að nokkru leyti hafi tafíð og sljóvgað viðleitni hans til að leysa þau margbrotnu verkefni sem fljótast af hendi. En þótt gamli Finnur hafi vissulega verið betur kunnugur Jónasi Hallgrímssyni held- ur en við sem nú lifum, þá er samt óhjá- kvæmilegt að andmæla hér þeirri sjúk- dómsgreiningu hans að Jónas hafi átt við „sinnisveiki" að stríða. Á vorum dögum þætti að minnsta kosti ekki við hæfi að nota slíkt orð um þá bringsmalaskottu sem vissulega heijaði á Jónas Hallgrímsson hans síðustu ár og gerði honum stundum lífið leitt, einkum þegar sól var lægst á lofti. 1. Um þennan bústað skáldsins var höfundi ekki kunnugt er efni þetta var búið til flutnings í útvarp sumarið 1984 en í nýrri heildarútgáfu verka Jónasar sem út kom 1989 er vitnað í manntalið frá 1845 og könnun Páls Valssonar bókmenntafræðings á dönskum frumheimild- um hefur leitt í ljós hvert núverandi númer hússins er. Helstu heimildir 1. Fundargerðir og gögn Hafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags, varðveitt á hand- ritadeild Landsbókasafns íslands. Þar eru m.a. í „Kassa 1“ öll minnisblöð og reikningar Finns Magnússonar sem hér koma við sögu, þar á meðal allt er varðar kostnað við útför Jónasar Hallgrímssonar svo og orðsendingar Jónasar til Finns vorið 1845 og ýmsar nótur og reikningar er varða viðskipti hins fyrrnefnda við Bók- menntafélagið síðustu árin sem hann lifði. 2. Fundargerðir Fjölnisfélagsins. Þær eru birtar í 33. árgangi Eimreiðarinnar, sem út kom árið 1927. 3. Fundargerðir frá „Almennum fundum Is- lendinga" í Kaupmannahöfn, sem haldnir voru á árunum 1843-1846. Birtar í tímaritinu And- vara árið 1920. Að frátöldum smávægilegum breytingum er grein þessi síðari hluti tveggja útvarpsþátta er höfundur tók saman fyrir sex til sjö árum og Ríkisútvarpið sendi út sumarið 1984; lét Kjartan tímaritinu þetta efni í té nú í haust að beiðni ritstjóra. TMM 1990:4 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.