Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 74
Kristján G. Arngrímsson
Ljósin
Ég vildi að þú gætir fengið þér í glas með mér. Og við gætum skálað. En ég veit ekki einu
sinni hvort þú drekkur yfirleitt. Þú drekkur kannski alls ekki. Ég drekk eiginlega ekki
heldur, en gestimir sem voru að koma áðan gáfu mér þetta og ég ákvað að fá mér smávegis
núna. Það eru allir sofandi nema ég. Og þú. Nú get ég loksins talað við þig, það er svo
lítið að gera—enginn þvottur og ekkert flangs á gestunum. Fínt að tala við þig. Þú hlustar
svo fallega.
Ég . . . núna er ég næturvörður héma. Þetta fólk sem var að koma, þú sást það ekki.
Þú varst ekki komin þá. Þetta em hjón að austan — mesta rólyndisfólk sem er búið að
gista héma í viku. Þau em úr sama plássi og ég og ég kannast við þau — þau þekkja
nefnilega pabba. Eins og allir. Og svo þegar ég sagði þeim hver hann er þá þekktu þau
strax svipinn. Ég — ég var jafnvel að pæla í því að spyrja hvort þau hefðu frétt eitthvað
af Hersteini bróður. En ég hætti við það. Maður veit aldrei hvað fólk er að hugsa og
eiginlega sé ég eftir því að hafa verið að segja þeim hver ég er. Þau hafa ekki þekkt mig
hingað til — eða ekki þóst þekkja mig, ég veit það ekki. Og eiginlega þekkja þau Herstein
ekki heldur en núna vita bara allir þarna fyrir austan þetta með hann. Þetta er svo lítið
pláss, það vita allir allt.
En ég er fluttur hingað í menninguna get ég sagt þér. Fékk þessa vinnu fyrir fullkomna
tilviljun, bara . . . Nei, eiginlega var það engin tilviljun, pabbi reddaði þessu, hringdi
nokkur símtöl í vini og kunningja hérna áður en ég fór og einhver sem hann þekkti þekkti
snillinginn sem á þetta hótel. Og þá gat ég farið. En þau hefðu sennilega ekki sagst þekkja
Herstein — hjónin, meina ég. Það þekkja fáir hann Herstein. En þau þekkja pabba, allir
þekkja pabba. Þingmanninn. Meira að segja þú. Þú hefur talað við hann, ég sá það, tók
það meira að segja upp og við horfðum nokkrum sinnum á það, ég og pabbi. Mér fannst
hann koma vel út. Myndarlegur kall hann faðir minn — fmnst þér hann ekki soldill
sjarmör? Hann er náttúrlega miklu eldri en þú. Hann sagði að hann hefði átt að vera með
72
TMM 1990:4