Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 103
drekka af brunninum, verða flúðir af bláum atkvæðum, sem falla af steinvörunum, sitjandi á bakka nætur líkt og Búdda á sínum eigin bakka, vera flöktandi augnablik, eldurinn og eyðingin og fæðing andartaks og andardráttur næturinnar, sem ógnarstór flæðir á bakka tímans, segja það sem fljótið segir, stórkostlegt orð sem líkist vörum, stórkostlegt orð sem endar aldrei, segja það sem tíminn segir í hörðum setningum af steini, í víðu veifi hafs að hylja heima. í miðju ljóðs gagntekur mig alltaf lamandi bjargarleysi, að allt hafi yfirgefið mig, enginn við hlið mér, ekki einusinni þessi augu sem yfir öxl mér fylgja öllu sem ég skrifa, enginn fyrir aftan mig, né heldur framan við, penninn gerir uppreisn, ekkert upphaf, né endir, ekki einu sinni veggur til að hlaupa, þetta er yfirgefin strönd Ijóðsins, hið sagða er ekki sagt og hið ósagða er ósegjanlegt, tumar, verandir komnar að hruni, babílonir, haf af svörtu salti, riki blindunnar. Nei stilla mig, þegja, loka augum, þar til sprotinn ryðst út um augnlokin, gos af sólum, stafrófið bylgjast í stórfenglegri öldu, fyrir vindi draums og aðfalli sjávar, og aldan brýtur flóðgarðana, bíða þar til örkin er þakin stjömum og ljóðið skógur af samkræktum orðum, Nei, ég hef ekkert að segja, enginn hefur neitt að segja, ekkert og enginn nema blóðið, ekkert nema þessi koma og för blóðsins, að skrifa yfir hið skrifaða, og aftur sama orð í miðju ljóði, atkvæði tíma, brotnir stafir, blettir af bleki, blóð sem fer og kemur, og segir ekki neitt, og ber mig með sér. Og ég tala, andlit mitt grúfir yfir örkina og einhver til hliðar að skrifa meðan blóðið fer og kemur, og borgin fer og kemur um blóðið í honum, langar að segja eitthvað, TMM 1990:4 101
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.