Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Síða 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.12. 2014
Já, það tafði mig, meðal annars þegar ég var
að sækja ömmubörnin mín í skólann og leik-
skólann. Þar að auki er ég frekar veð-
urhrædd.
Þórdís Hlöðversdóttir, 69 ára.
Já, þar sem ég er veðurhrædd, sérstaklega
vindhrædd, hafði það áhrif á mig.
Viktoría Bergmann, 16 ára.
Nei, það truflaði mig ekki neitt. Að vísu var
félagsmiðstöðinni lokað, sem var fúlt.
Óðinn Arnarsson, 14 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Já, það var erfitt að komast heim og á milli
staða.
Einar Bergmann, 38 ára.
Morgunblaðið/Þórður
SPURNING VIKUNNAR HAFÐI ÓVEÐRIÐ Í VIKUNNI ÁHRIF Á ÞIG?
Myndasafn Morgunblaðsins
býr yfir mörgum gersemum
eins og jólamyndaþáttur
blaðsins sýnir þar sem
gamli og nýi tíminn
kallast á. Ákveðnir staðir
eru vinsælli viðkomustaðir
en aðrir á veturna og það
er gott að hafa fasta punkta
í tilverunni eins og Austur-
stræti, Arnarhól og Tjörn-
ina. Myndaþáttur 50
JÓLAHÁTÍÐIN ÞÁ OG NÚ
Hvað í ósköpunum kom yfir þig í
þessum þremur landsleikjum?
Markagræðgin hefur verið í algjöru há-
marki hjá mér og ég var ekkert að leyfa
öðrum að skjóta á markið. En í fullri al-
vöru þá er mikill heiður að spila fyrir
landsliðið og ég hef alltaf jafn gaman
af því að hitta þessa snillinga. Ég
naut mín í botn og dyggur stuðn-
ingur áhorfenda var ómetanlegur.
Nú ert þú atvinnukona í
handbolta. Hvað gerirðu í
frítímanum?
Samhliða handboltanum sem er fullt starf er
ég í 100% námi í hönnun og viðskiptafræði sem tekur
sinn tíma. Þess á milli reyni ég eftir bestu getu að kom-
ast upp á lagið með frönskuna, en allt í sambandi við
hana hefur reynst mér erfitt. Og svo þegar tími gefst til,
sem eins og þú sérð er oft, finnst mér ótrúlega gaman að
ferðast og að koma á nýja staði.
Kemst Ísland á HM?
Ef ég fæ einhverju um það ráðið. Annars er þetta góð
spurning. Við þurfum að treysta á smá heppni í drætt-
inum fyrir undankeppnina. Kvennalandsliðið er í mik-
illi uppbyggingu eftir erfitt ár og því eru afar spenn-
andi tímar framundan og á góðum degi eru okkur allir
vegir færir.
Fylgistu með öðrum íþróttum?
Ég verð að viðurkenna að ég hef bara ekki mikinn tíma
til að fylgjast með íþróttum en ég fylgist helst með öðr-
um íslenskum landsliðum. Frábært hvað þau hafa verið
að standa sig vel eins og í fótbolta, körfubolta og fim-
leikum.
En geturðu eitthvað í öðrum íþróttum?
Í mörg ár stundaði ég fótbolta samhliða handboltanum.
Síðan hef ég stundað skíðamennsku frá þriggja ára aldri.
Annars gerði móðir mín heiðarlega tilraun til að koma mér í
ballett þegar ég var yngri en ég held að það séu allir mjög fegn-
ir því að það gekk ekki upp.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KAREN KNÚTSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Stuðningur
áhorfenda
ómetanlegur
Forsíðumyndina tók
Ómar Óskarsson
Það má alltaf punta
sig aðeins meira yfir
hátíðarnar. Veldu þér
fallegan fatnað sem er
þægilegur svo hægt sé
að njóta jólanna sem
best í notalegu en
áberandi jóladressi.
Tíska 42
Úrvalið af fallegum jólapappír er gríðarlegt. Fyrir þessi
jól hanna margir íslenskir hönnuðir jólapappír
með skemmtilegri skírskotun í séríslenskar jólahefðir.
Hönnun 28
Norðmaðurinn Leif Ove
Andsnes er einn vinsælasti
píanóleikari samtímans.
Hann leikur Keisara-
konsert Beethovens
tvisvar í Hörpu í næstu
viku og segir þetta tónverk
mikilfenglegt og eins og
hluta af náttúrunni.
Menning 56
Karen Knútsdóttir er fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik og hefur farið
mikinn í síðustu leikjum. Hún nýtur þess að spila með landsliðinu og óhætt að
segja að hér er á ferðinni einstaklega efnilegur leikmaður.