Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.12. 2014 Rýnt í skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið erstærsta svið Reykjavík-urborgar. Af þeim rúmlega 69 milljörðum króna sem sam- kvæmt fjárhagsáætlun munu renna inn í aðalsjóð borgarinnar í formi skattekna á næsta ári fara 40,8 milljarðar króna í skóla- og frí- stundasvið. Það er eðlilegt að á þessu sviði séu mest útgjöld, því undir það heyra allir grunnskólar, allir leikskólar og öll frístundaheim- ili borgarinnar. Í vikunni var gengið frá stofnun starfshóps sem ætlað er að fara kerfisbundið í gegnum allan fjárhag sviðsins og leggja fram leiðir til úr- bóta. „Við munum einfaldlega opna bækurnar og skoða það gaumgæfi- lega hvernig við verjum þessum fjármunum. Stærsta verkefnið er að skoða þau verkfæri sem notuð hafa verið til að dreifa peningum niður á stofnanir sviðsins til þessa. Ég er mjög spenntur fyrir þessari vinnu enda viljum við tryggja að við séum að verja þessum fjár- munum eins vel og mögulegt er,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs í samtali en hann verður jafnframt formaður nýja starfshópsins. Fjármálin ekki einkamál embættismanna Aðrir í starfshópnum eru Líf Magneudóttir, Örn Þórðarson, Jóna Björg Sætran, Kristín Elfa Guðna- dóttir og Heiðar Ingi Svansson. Fyrir utan þessa fulltrúa þeirra stjórnmálaflokka sem sæti eiga í borgarstjórn hefur nú þegar verið óskað eftir fulltrúum frá kennurum leik- og grunnskóla, frístundastarfs- fólki og fulltrúum stjórnenda leik- skóla, grunnskóla og frístundamið- stöðva í borginni. „Við viljum nýta krafta þess góða fagfólks sem starfar í þessum mik- ilvæga málaflokki, fjármálin eiga ekki að vera einkamál embættis- manna á skóla- og frístundasviði,“ segir Skúli. 241 milljón dýrari stjórnsýsla Í töflu má sjá tölur yfir kostnað og tekjur sviðsins á árunum 2012-2015. Þegar rýnt er nánar í tölfræði um kostnað sviðsins kemur í ljós að lið- urinn „yfirstjórn“ hefur hækkað langt umfram hlutfallslega hækkun heildarkostnaðar. Yfirstjórn skóla- og frístunda- sviðs kostaði borgina 721 milljón króna árið 2012, hækkaði í 857 milljónir króna 2013 og útlit er fyr- ir að kostnaður við yfirstjórn sviðs- ins á þessu ári verði 918 milljónir en samkvæmt áætlun fyrir næsta ár mun yfirstjórn sviðsins kosta borgarbúa 963 milljónir króna. Það er ríflega þriðjungi meira en árið 2012, eða 241 milljón króna meira. Á það skal þó bent að hér er ver- ið að bera saman rauntölur annars vegar (fyrir árin 2012 og 2013) og áætlun hins vegar (fyrir árin 2014 og 2015). Tiltekinn hluti kostnaðar sem færður er inn á yfirstjórn í áætlunum færist niður á ákveðnar stofnanir og komi því annars staðar fram þegar rauntölur liggja fyrir. En þótt aðeins séu borin saman tvö fyrri árin, þar sem rauntölurnar gilda, þá er engu að síður ljóst að miðlæg stjórnsýsla sviðsins þenst út miðað við aðra þætti. Á milli ár- anna 2012 og 2013 jókst kostnaður við rekstur skóla- og frístundasviðs í heild um 6,6% úr 35,4 milljörðum króna í 37,7 milljarða króna. Á sama tíma fór kostnaður vegna yf- irstjórnar úr 721 milljón í 857 millj- ónir króna sem er hækkun um 15,2%. Tekjur minnka en kostn- aður eykst Um áramót hækka gjaldskrár Reykjavíkurborgar nánast eins og þær leggja sig, flestir liðir um 3,4% líkt og verðbólgan en aðrir enn meira eða um 6-17%. Leik- skólagjöld eru það eina í gjald- skrám borgarinnar sem lækkar, en þau lækka um 6,2%. Önnur gjöld sem teljast til tekna skóla- og frí- stundasviðs, þ.e. gjöld fyrir frí- stundaheimili, skólamáltíðir og fæð- isgjöld leikskóla, hækka hins vegar í takt við verðbólgu. Langstærstur hluti tekna skóla- og frístundasviðs á næsta ári, um 84%, eru gjaldskrártekjur, þ.e. tekjur vegna leikskólagjalda, skóla- máltíða og gjalds á frístundaheimili. Leikskólagjöldin vega þungt þannig að með lækkun þeirra dragast tekjur sviðsins saman. Gangi fjár- hagsáætlun 2015 eftir verða tekjur sviðsins á næsta ári 27% lægri en 2012. Þess ber að geta að minni tekjur frá árinu 2013 skýrast að stærstum hluta af því að jöfn- unarsjóðstekjur, sem áður voru færðar sem hluti af tekjum sviðs- ins, eru ekki lengur færðar þar í reikningum borgarinnar heldur koma inn annars staðar. Skóla- og frístundasvið var stofn- að upp úr þeim sviðum sem áður hétu menntasvið og leikskólasvið auk þess sem frístundahluti ÍTR rann inn í hið nýja svið. Undir lið- inn yfirstjórn falla rekstur að- alskrifstofu sviðsins, kostnaður vegna skóla- og frístundaráðs sem í eiga sæti sjö borgarfulltrúar auk ýmissa miðlægra þátta. Á árunum 2012-2015 hafa laun yfirstjórnar hækkað um 18% auk þess sem verkefnum hefur fjölgað. Nátt- úruskólinn, Jafnréttisskólinn og þjónustustaðall í skólamötuneytum eru meðal þess sem hefur orðið til þess að kostnaður eykst, sam- kvæmt upplýsingum frá skóla- og frístundasviði. Skúli segir að eitt af því fyrsta sem hann ákvað að gera þegar hann tók við sem formaður skóla- og frístundaráðs hafi verið að hefja þá vinnu sem starfshópurinn mun nú taka upp á sína arma, þ.e. að endurskoða fjármál þessa stóra sviðs sem ráðið hefur með að gera. Starfshópnum verður ætlað að end- urskoða lykilþætti í rekstri skóla- og frístundasviðs „með það fyrir augum að auka skilvirkni og skapa svigrúm til að veita aukið fjármagn í innra starfið í skólum og frí- stundamiðstöðvum í borginni,“ að því er fram kemur í tillögu að skip- an hópsins. „Vinna við þessa endurskoðun er rétt að fara af stað. Við munum grípa inn í þar sem þörf er á breyt- ingum. Í þessum mikilvæga mála- flokki þarf að verja peningunum með skynsamlegum hætti.“ Börnum fjölgar í skólum, leikskólum og á frístunda- heimilum og á næsta ári fer meira en helmingur skatt- tekna Reykjavíkurborgar í rekstur skóla- og frí- stundasviðs. Morgunblaðið/Ómar KOSTNAÐUR VIÐ STÆRSTA SVIÐ BORGARKERFISINS MUN Á NÆSTA ÁRI NEMA 40,8 MILLJÖRÐUM KRÓNA EÐA 15% MEIRA EN ÁRIÐ 2012. Á SAMA TÍMA- BILI HEFUR KOSTNAÐUR VIÐ YFIRSTJÓRN SVIÐSINS AUKIST UM 33,5%. STOFNAÐUR HEFUR VERIÐ SÉRSTAKUR STARFSHÓPUR TIL AÐ ENDURRÝNA ALL- AN FJÁRHAG SKÓLA- OG FRÍSTUNDASVIÐS. Í HONUM VERÐA FULLTRÚAR ALLRA FLOKKA AUK FULLTRÚA HELSTU STARFSSTÉTTA SVIÐSINS. Skóla- og frístundasvið Kostnaður % Tekjur sem hlutfall af kostnaðiTekjur •Tölur fyrir 2012 og 2013 eru úr ársreikningum. •Tölur fyrir 2014 og 2014 byggja á áætlunum Reykjavíkurborgar. Fj ár hæ ði r er u ím ill jö rð um 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 2012 2013 2014 2015 35,3 37,7 36,1 40,8 4,6 3,6 3,5 3,4 13,2% 9,7% 9,8% 8,4% * Leikskólagjöld eru það eina í gjaldskrám borgarinnarsem lækkar um áramót. Með lækkun þeirra dragasttekjur skóla- og frístundasviðs enn frekar saman. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.