Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Side 26
Heimili
og hönnun
Jólamarkaður í Grýtunni
*Jólamarkaður hönnuða og listamanna verður haldinnlaugardaginn 13. desember á milli kl. 12-17 í Grýtunni,vinnustofum listamanna og hönnuða, Keilugranda 1.Búist er við mikilli jólastemningu og piparköku-vinnustofu. Þátttakendur í markaðnum eru þau ErlaG, FORYNJA, Kristinsson, Ostabúðin á Skólavörðu-stíg, IngaSol design, Nogi, Eleni Podara, Myndlistaskól-
inn í Reykjavík, Náttuglur, Kolbrun, NORMA og Félag
áhugafólks um málefni flóttamanna.
Mandarína
er hand-
máluð.
KÆRLEIKSKÚLAN 2014
LISTAMAÐURINN DAVÍÐ ÖRN HALLDÓRSSON HANNAR KÆRLEIKSKÚL-
UNA 2014. KÚLAN BER HEITIÐ MANDARÍNA OG VANN DAVÍÐ MEÐ
HUGTAK SEM HANN SEGIR OPIÐ TIL TÚLKUNAR FYRIR ALLA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
S
tyrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar síðan
2003 en tilgangur kúlunnar er að efla starfsemi Reykjadals og auðga þannig líf
fatlaðra barna og ungmenna. Á hverju ári fær kærleikskúlan nýtt útlit þar sem
færustu listamenn landsins eru fengnir til þess að túlka verk á kúluna. Listamað-
ur ársins er Davíð Örn Halldórsson og ber kúla hans heitið Mandarína.
„Mandarínur „skilgreina“ nokkurnveginn jólin. Mandarínur eru sælgæti sem maður
má alltaf vaða í þannig að þetta er ávöxtur sem skilgreininr ákveðið tímabil í desem-
ber. Mig langaði að velja eitthvað sem væri ótrúlega einfalt en einkennandi fyrir tíma-
bilið og ekki endilega eitthvað sem að væri sannkristið. Eitthvað sem er opið til túlk-
unar fyrir alla án þess að detta inn í einhverjar hlaðnar skilgreiningar. Eitthvað sem
fólk tengir við út frá persónulegum smekk en ekki eitthverjum utanaðkomandi
smekk,“ segir Davíð Örn. Til þess að undirstrika fagurfræðina þá samdi Davíð ljóð
sem fylgir með kúlunum. Hver kúla er handmáluð og segist Davíð Örn hafa lært
mikið af ferlinu.
„Það tók mig smá tíma að detta inn á þetta. Ég fór fram og til baka með fyr-
irtækinu í Þýskalandi sem framleiðir kúluna. Í þeirri vinnu hélt ég síðan áfram að
skissa og einfaldaði hana, sem var svolítið vafamál fyrir mig stundum því mér
fannst það ekki nógu mikið ég sjálfur sem listamaður, en ég er ánægður
með það í dag og ánægður með útkomuna. Kúlurnar eru handmálaðar og
þá myndast núansar, ekki bara í því hvernig þær eru blásnar heldur
líka hvernig þær eru málaðar. Svo líka misskilningurinn að ég hafi
handmálað þær allar sjálfur sem ég er ekkert að flýta mér
að leiðrétta. Það er eitthvað svo fallegt við það að hand-
mála 3000 kúlur,“ segir Davíð og hlær.
Davíð segir það mikinn heiður að vera valinn í verkefnið og
skemmtilegt að taka þátt í verkefni sem þýðir eitthvað mikið og
meira fyrir marga en bara hann sjálfan. „Það var líka svo gam-
an að taka þátt í þessu ferli og kveikja þá betur á því fyrir hvað
kúlan stendur og fyrir hvað söfnunin stendur og kynnast ferl-
inu eins og því að kúlinni er pakkað inn hjá Ási, þau fá hana
inn á hverju ári þar sem þau ganga frá henni og setja hana
saman. Það eru svo margar hliðar sem áhugavert var
að komast að og náttúrulega gott og verðugt starf
og frábært gengi af listamönnum. Þannig að þetta
var áhugavert frá fyrsta degi.“
Davíð Örn
gerði kærleiks-
kúluna 2014.
Hann segir
flesta tengja
mandarínur við
desem-
bermánuð.
Starfsfólk Áss vinnustofu
sem rekin er af Styrkt-
arfélaginu Ási, pakkar
kúlunni inn.
Mandarínur minna á jólin
Þau Bubbi Morthens og Linda Björg Árna-
dóttir leggja styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra lið í ár með óróanum Giljagaur. Jólaóró-
inn er gefinn út á hverju ári og er
samstarfsverkefni hönnuðar og skálds.
Allur ágóði sölunnar rennur til Æfinga-
stöðvarinnar, sem er stærsti aðili í hæfingu og
endurhæfingu barna og ungmenna á Íslandi.
„Það er fötluðum börnum mjög mikilvægt
að koma í sjúkra- og iðjuþjálfun til þess að efla
lífsgæði þeirra svo þau geti verið tiltölulega
sjálfbjarga,“ segir Berglind Sigurgeirsdóttir,
markaðs- og kynningarstjóri Styrktarfélags-
ins.
Jólaóróinn er úr burstuðu stáli en Linda
Björg og Bubbi leiða saman hesta sína í ár.
Þetta er níundi óróinn í seríunni en það eru
jólasveinarnir og þeirra fjölskylda sem eru
yrkisefnið. „Hönnuðurinn og skáldið velja sér
síðan einn úr fjölskyldunni sem er eftir og
skáldið, sem í þessu tilfelli er textahöfundur,
gerir þá kvæði og hönnuðurinn hannar óróann.
Úr verður því þeirra túlkun á þessum sveini,“
segir Berglind.
Berglind segir óróann skemmtilegan safn-
grip sem hentar bæði í gjafir fyrir börn og full-
orðna og gaman að kynna börn fyrir bæði ís-
lenskri ljóðlist og hönnun á þennan máta.
Salan á óróanum og kærleikskúlunni fer
fram dagana 5.-19. desember.
Jólasveinarnir og
fjölskylda þeirra eru yrkisefnið
Giljagaur er úr burstuðu stáli. Hönnuðurinn
hannar óróann en skáldið eða textahöfundur
semur kvæði með óróanum.
Giljagaur er samstarfsverkefni Lindu Bjargar
Árnadóttur og Bubba Morthens.
Á hverju ári
er nýr lista-
maður feng-
inn til þess að
túlka
kærleiks-
kúluna.