Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Blaðsíða 53
14.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 við. Ég legg áherslu á að segja rétt frá, en sleppi að segja sögur, sem hafa tekið breyt- ingum með tíð og tíma. Þær sögur fá því að halda áfram að breytast með árunum á herrakvöldum – þeim til skemmtunar sem segja þær og hlusta. Þegar sagan er skráð í heild sinni er nauðsynlegt að rétt sé farið með,“ segir hann. Fyrsti landsleikurinn fór fram á Melavell- inum 17. júlí 1946 og voru andstæðingarnir að sjálfsögðu gamla herraþjóðin, Danir. Allir sem léku þann leik eru nú látnir en einn úr hópnum lifir, Ríkharður Jónsson, sem sat all- an tímann á varamannabekknum, sautján ára gamall. Allt var lagt í sölurnar fyrir leikinn og liðið sent í tíu daga æfingabúðir við Kolviðarhól. Þá var rakari kvaddur á vettvang til að gera leikmenn snyrtilega, eins og Sigmundur rifjar upp sposkur. Allt kom fyrir ekki, Danir fóru með sigur af hólmi, 3:0. Mikill áhugi reyndist fyrir leiknum meðal dönsku leikmannanna og gáfu flestir þeir bestu kost á sér enda þótt það þýddi að þeir yrðu að koma til Íslands í sumarfríi sínu. Kjöldregnir í Þýskalandi Sigmundur fjallar um mun eldri leiki í bók- inni en allt frá árinu 1919 tíðkaðist að tefla fram svokölluðu úrvalsliði Íslendinga, sem fór einnig utan til að glíma við úrvalslið annarra þjóða. Má þar nefna frægan úrvalsleik í Fær- eyjum 1930 sem frændur vorir líta gjarnan á sem sinn fyrsta landsleik. Þá rifjar Gísli Halldórsson upp merka ferð til Þýskalands 1935 sem stóð í rúman mánuð. Íslendingar léku fjóra leiki í ferðinni og töp- uðu þeim öllum, 11:0, 11:0, 8:2 og 3:1. Síðasti leikurinn, þar sem Íslendingar voru í bullandi séns, var raunar flautaður af vegna myrkurs. Auk firnasterkra mótherja vann undirlagið gegn gestunum en enginn þeirra hafði í ann- an tíma leikið á grasi. Þekktu ekkert annað en skó með malartökkum og voru fyrst að klæðast skóm með grastökkum – og venjast þeim í ferðinni. Annað úrvalið sem lék Íslendinga grátt, 11:0, kom frá Saxlandi. Þar var Helmut Schön allt í öllu en hann þjálfaði síðar Vest- ur-Þjóðverja og gerði þá að heimsmeisturum 1974. „Björgvin Schram var haffsent í þess- um leik og réð ekkert við Schön, sem skoraði sex mörk. Hann varð síðar mikill vinur bæði Björgvins og Gísla,“ segir Sigmundur en í bókinni er birt mynd af kveðju sem hann rit- aði félögum sínum og fannst fyrir tilviljun aftan á gamalli ljósmynd sem Gísli átti í fór- um sínum. Sigmundur segir það hafa verið elting- arleik að ná upplýsingum um þessa leiki, en það hafi tekist. Á einni ljósmyndanna úr Þýskalandsferðinni getur að líta tvær íslensk- ar námsmeyjar í Leipzig, sem voru í fremstu röð. Sigmundur unni sér að sjálfsögðu ekki hvíldar fyrr en nöfn þeirra voru komin í hús. „Nöfn verða að fylgja öllum myndum þannig að sagan sé öll og myndin sé einhvers virði í framtíðinni. Ef ég finn ekki nöfnin, hver á þá að gera það?“ spyr hann. Ekki er aðeins fjallað um landslið, þjálfara, leikmanna og þeirra sem völdu liðin hverju sinni í bókinni því „landsliði dómara“ eru einnig gerð skil, það er að segja þeim dóm- urum sem dæmt hafa milliríkjaleiki. Ferill 37 af bestu knattspyrnumönnum Ís- lands er rakinn og leggja fyrrverandi lands- liðsþjálfarar Jóhannes Atlason, Guðni Kjart- ansson og Logi Ólafsson mat á þá leikmenn. Heimir Hallgrímsson, núverandi landsliðs- þjálfari, lýsir andrúmsloftinu og háu spennu- stigi í síðustu undankeppni HM. Öllum stórmótum, sem Ísland hefur tekið þátt í frá 1957 – HM og EM – er fylgt eftir til enda. Mestar framfarir undir Held Spurður hvaða skeið sé merkilegast í tæplega sjötíu ára sögu landsliðsins segir Sigmundur úr vöndu að ráða. Nærtækast sé að nefna lið- ið sem við eigum í dag. Það hafi, fyrst allra liða, komist í umspil um sæti í lokakeppni móts, HM 2014. Þá lofi byrjunin á und- ankeppni EM 2016 mjög góðu. Of snemmt sé þó að dæma núverandi lið. „En hitt er klárt mál að úrslitin hafa verið góð, liðið er vel skipulagt og kann að láta boltann ganga sín á milli.“ Sigmundur rifjar einnig upp skeiðið sem Guðjón Þórðarson var með liðið en það velgdi toppliðum riðilsins í undankeppni EM 2000 duglega undir uggum, þeirra á meðal heims- meisturum Frakka. Tony Knapp hafi líka gert góða hluti með liðið á áttunda áratugn- um, skeið sem náði hápunkti í fræknum sigri á Austur-Þjóðverjum á Laugardalsvellinum 1975, 2:1. Sá þjálfari sem lyfti íslenska landsliðinu hins vegar á ennþá hærra plan, að dómi Sig- mundar, var Þjóðverjinn Sigfried Held á ní- unda áratugnum. Honum hafi fylgt agi og festa sem ekki þekktist áður. „Ísland átti raunhæfa möguleika á að komast í loka- keppni HM á Ítalíu 1990 undir stjórn Helds en herslumuninn vantaði, meðal annars vegna þess að illa gekk að ná bestu leik- mönnunum saman til undirbúnings. Á þess- um árum höfðu félagsliðin nefnilega for- gang.“ Loks nefnir Sigmundur Ásgeir Elíasson sem þjálfaði liðið á fyrri hluta tíunda áratug- arins. Undir hans stjórn hafi liðið leikið skemmtilegan fótbolta og náð prýðilegum úr- slitum. Helmingur áhorfenda mætti til að horfa á Ásgeir Beðinn að nefna besta leikmanninn í sögu ís- lenska landsliðsins hallar Sigmundur sér aft- ur í stólnum. „Ekki þarf að fjölyrða um það,“ segir hann síðan eftir stutta þögn. „Það er Ásgeir Sigurvinsson. Hann dró vagninn með landsliðinu árum saman, fórnaði sér og barð- ist, en hafði ekki alltaf erindi sem erfiði af þeirri einföldu ástæðu að samherjarnir voru ekki í sama gæðaflokki. Ég fullyrði að helm- ingur þeirra sem mættu á landsleiki á ár- unum sem Ásgeir var í liðinu komu sér- staklega til að sjá hann. Þjóðverjar dauðöfunduðu okkur af Ásgeiri og einu sinni var hann spurður að því á blaðamannafundi hvort ekki væri freistandi að skipta um rík- isfang. Þá svaraði Ásgeir ósköp einfaldlega. Nei, ég er stoltur af því að vera Íslendingur!“ Næst á eftir Ásgeiri tilgreinir Sigmundur Ríkharð Jónsson. Hann hafi verið algjört undur á velli og mörkin fjögur gegn Svíum, sem getið er um í upphafi þessarar greinar, séu án efa mesta afrek sem íslenskur lands- liðsmaður hafi unnið til þessa. Þriðji besti leikmaðurinn í sögu landsliðs- ins, að áliti Sigmundar, er Eiður Smári Guð- johnsen. Afburðaleikmaður með einstakan leikskilning. Hann líði hins vegar fyrir það, rétt eins og Ásgeir, að samherjar hans voru lengst af ekki nægilega sterkir. „Það er fyrst núna seinustu árin að Eiður hittir fyrir í landsliðinu menn sem spila hans leik. Þess vegna fann maður til með honum eftir tapið í Króatíu í fyrra. Hann þráði augljóslega að fara með þessum strákum á stórmót.“ Ef til vill rætist sá draumur síðar? Morgunblaðið/Ómar Ríkharður Jónsson borinn á gullstól af leikvelli eftir sigurinn á Svíum á Melavellinum1951, 4:3. Karl Guðmundsson fyrirliði, Sæmundur Gíslason og Þórður Þórðarson með hetjuna á herðum sér. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon „Þegar ég fór að lesa þessa miklu sögu, fyrst handritið og síðan próförkina þegar hún varð til, fór ég smám saman að átta mig á heimspeki og dýpri menningu knattspyrnunnar og skilja hvers vegna íþróttin er svona gríðarlega vinsæl um all- an heim. Ekki síst þar sem fólk hefur ekki neitt til neins. Ef maður vildi vera hátíðlegur mætti segja: Fótbolti er lífið!“ Þetta segir Helgi Magnússon sagnfræðingur sem las próförk af Sögu landsliðs karla. Eins og margir sparkaði Helgi bolta á sínum yngri árum en hefur aldrei verið sérstakur áhugamaður um knattspyrnu. Horfir ekki á leiki í sjónvarpinu og fer ekki á völlinn. Fyrir honum opnaðist nýr heimur við lesturinn. „Ég er ekki samur maður eftir að hafa unnið þetta verk. Hef þurft að hugsa knattspyrnu al- veg upp á nýtt og hef mun víðtækari sýn á íþróttina en áður. Í knattspyrnu birtast mann- legar tilfinningar af öllu tagi: Harmur, gleði, hyggindi, yfirgangur og slægð, svo að nokkuð sé nefnt. Í knattspyrnu birtist líka gildi samvinnu og samheldni á eftirminnilegan hátt. Núna skil ég betur hvernig knattspyrna getur gripið menn heljartökum,“ segir Helgi. Þurfa góðar gáfur Ekki er alltaf talað af virðingu um fótboltamenn og jafnvel haldið fram að íþróttin sé fyrir frekar gáfnasljótt fólk – sem fær svo jafnvel knöttinn í höfuðið og lagast síst við það. „Þetta hefur svo sem ekki verið mín skoðun,“ segir Helgi, „en lestur bókarinnar staðfesti eigi að síður að menn þurfa góðar gáfur til að ná langt í knatt- sprynu, bæði almennar og sértækar.“ Helgi er ekki í vafa um að Saga íslenska karla- landsliðsins í knattspyrnu komi til með að höfða til mun fleira fólks en bara harðkjarna knatt- spyrnuáhugamanna. Það hefur hann þegar reynt á eigin skinni. Helgi hælir höfundi á hvert reipi, segir að vinna hans verði ekki nógsamlega lofuð. „Það helgast ekki síst af því að Sigmundur hefur dregið að sér heimildir áratugum saman og var fyrir vikið ákaflega vel fallinn til verksins. Svona verk yrði alls ekki skrifað með þessum hætti í dag. Þetta er stórvirki.“ Fótbolti er lífið! Helgi Magnússon niðursokkinn í prófarkirnar að sögu íslenska karlalandsliðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.