Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Side 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.12. 2014 Menning Sjöunda bindi hinnar afar viða-miklu Byggðasögu Skaga-fjarðar er komið út. Þetta er glæsileg ritröð, hvernig sem á er litið; einstaklega upplýsandi og jafnframt skemmtileg, með allra- handa upplýsingum um öll býli í Skagafirði og sögum um fólkið sem þar hefur lifað og dáið í aldanna rás. Nýja bindið er 480 blaðsíður með 640 ljósmyndum, auk korta og teikninga. Þótt sá sem þetta ritar eigi ekki ættir að rekja til Skagafjarðar sýnir reynslan að þetta eru bækur sem un- un er að lesa, og sökkva sér í. Hjalti Pálsson er ritstjóri verksins og aðalhöf- undur eins og í fyrri bindum. „Þessi bók fjallar um Hofshrepp, sveitirnar kringum Hofsós. Ekki var pláss fyrir Hofsós að þessu sinni, enda var það sérstakur hreppur og mun bíða lokabind- isins,“ segir Hjalti. Hann segir orðið ljóst að bindin muni verða tíu. Verkið sem hann hóf að skrifa fyrir nítján árum hef- ur heldur betur hlaðið utan á sig. „Nú eru þrjár bækur eftir, það er ekki vegur að koma því í tvö bindi sem eftir er því einnig er eftir að birta miklar nafnaskrár. Í áttunda bindi, sem ætlað er að komi út eft- ir tvö ár, verður fjallað um Fells- hrepp og Haganeshrepp. Ég tala alltaf um þessar sveitir í fortíðinni því þessir hreppar eru ekki til lengur en verkinu er skipt niður eftir þúsund ára gömlu skipulagi. Níunda bindið verður Holts- hreppur, sem eru austurhluti Fljót- anna. Þau voru upphaflega eitt sveitarfélag, Fljótahreppur, en honum var skipt upp laust fyrir aldamótin 1900. Sveitungum sum- um fannst vera of mikið af ómög- um í öðrum sveitarhlutanum og vildu því kljúfa sig frá honum. Á þeim tíma voru yfir 500 manns bú- settir í Fljótum en ég veit ekki íbúafjöldann nú, það eru kannski 60 til 70 manns. Í tíunda bindi verða kaupstað- irnir Hofsós og Grafarós þar sem verslað var í 80 ár. Þar verður einnig fjallað um Drangey og Málmey, eyjar með merka sögu.“ Ekki hefðbundin býli Nýja bókin fjallar um Hofshrepp, samtals 78 býli í Óslandshlíð, Deildardal, Unadal og á Höfða- strönd, ásamt sveitarfélagslýsingu. „Nú er föst búseta á 24 eða 25 jörðum í hinum gamla Hofshreppi en búrekstur á örfáum til þótt eng- inn eigi þar heima, en á öðrum er frístundabyggð“, segir Hjalti. „Nokkrar stórjarðir eru í sveitinni sem fá lengri umfjöllun en aðrar. Ég nefni sérstaklega Hof og Bæ.“ – Þessar jarðir eru setnar með prýði en búhættir hafa breyst. Á Bæ er Steinunn Jónsdóttir með vinnustofu fyrir listamenn og kvik- myndaiðnaður tengist Hofi þar sem Baltasar Kormákur á heima. „Þessar jarðir hafa verið end- urbyggðar með glæsilegum hætti og hefur verið frábærlega vel að því staðið. En þar er ekki rekinn hefðbundinn búskapur að öðru leyti en að á þeim eru hrossabú og tún heyjuð. Hesthúsin á þessum bæjum í dag eiga fátt sameiginlegt með Blesakofanum á Hofi í Hjalta- dal þar sem ég mokaði út skít í gamla daga sem krakki. Þetta er dæmi um hvernig búskapur hefur á einni öld breyst úr mold- arkofahokri í stórframleiðslu. Auk þeirra tveggja stórjarða sem áður eru taldar má nefna Gröf og Höfða á Höfðaströnd, sem er ysta jörðin í Hofshreppi.“ Skoðar alla staðina – Vinnan við þessar sjö bækur hef- ur eflaust verið mismunandi, stundum hefur þú fjallað um stór svæði sem eru nú meira og minna í eyði, og þú hefur leitað þar gleymdra tóftabrota, meðan önnur eru mikið til í byggð. „Í þessu verki má geta þess að Unadalur er að heita allur kominn í eyði. Þar voru átta býli í ábúð fram á 20. öld. Nú búa þar ein- ungis öldruð hjón á einum bæ.“ – Það hefur þá verið eins og björgunarleiðangur að leita upplýs- inga? „Jú, stundum, og í raun hefði ég þurft að byrja á þessu verki fyrir 30 til 40 árum, til að ná í aldamóta- kynslóðina sem var í miklu nánari tengslum við landið sitt en fólk al- mennt í dag. Ég hef stundum reynt að vinna framfyrir mig, ná tali af eldri körlum og kerlingum á svæðum sem ég fer ekki að skrifa um fyrr en eftir nokkur ár. Samt verður maður oft of seinn. Maður er alltaf að missa heimildafólk, heimildir týnast og hverfa með hverri kynslóð. Ég hef allt síðan fyrsta bindið kom út árið 1999 gefið upp gps- staðsetningar fornra eyðibýla, selja og margra annarra mannvistarleifa og ég hef lagt mig fram við að finna öll gömul búsetusvæði. Þau eru að minnsta kosti eittþúsund í Skagafirði. Gróflega áætlað hafa verið um 600 ábýlisjarðir síðan 1780 en á fyrri öldum nokkur hundruð í viðbót. Það er tímafrekt og tafsamt að segja frá öllum þess- um jörðum því hverja og eina þarf að heimsækja, margar oftsinnis. Ég vil samt taka fram að ég á ekki einn heiðurinn af þessu rit- safni, það er margra manna verk og síðustu sex árin hefur Kári Gunnarsson frá Flatartungu verið með mér í þessu. Við erum fastir starfsmenn en einnig hafa margir aðrir komið að þessu á einn eða annan hátt.“ Og Hjalti segir að vettvangsferð- irnar séu skemmtilegastar. „Að hitta fólkið og fara á jarðirnar og kynnast þeim, fá yfirsýn. Ég get ekki skrifað um staði án þess að hafa séð þá.“ Þegar við förum saman yfir bók- ina bendir Hjalti á að umfjöllun um Bæ á Höfðaströnd sé rúmlega fimmtíu blaðsíður. Horfnir af yfirborðinu „Ein meginástæðan er sú að í landi Bæjar urðu til tveir þéttbýlisstaðir. Sunnan við Höfðavatn var Kota- byggðin. Þar bjuggu margar fjöl- skyldur sem lifðu á sjósókn, nokkr- um kindum og silungi úr vatninu. Svo voru Bæjarklettar, merkileg útgerðarstöð við sjóinn fyrir neðan Bæ,“ segir Hjalti og bendir á kort og athyglisverðar loftmyndir af stöðunum. „Báðir þessir staðir eru að heita má horfnir af yfirborði jarðar. Ekkert sést eftir af því mannlífi sem þar var. Við Bæjarkletta hefur eflaust verið útræði frá fyrstu tíð, þótt engar sagnir séu um það, en á miðri 19. öld settist fólk að á báð- um þessum stöðum. Við Bæjarkletta risu nokkur íbúðarhús, íshús var byggt þar 1897, síðar fiskverkunarskúrar og hjallar, jafnvel verslunarhús og þar voru smíðaðir margir bátar og gerðir út fyrstu þilfarsbátar í Skagafirði. Þar var mjög góð lend- ing sem stóð næstum óhögguð til 1934 þegar kom ofsafengið brim sem jós upp möl og stórskemmdi lendinguna. Árið áður hafði einn bátur þaðan farist og laust fyrir 1940 var farið að reisa bryggju og frystihús á Hofsósi – þá tók að fjara undan þessari byggð. Hún fór í eyði árið 1945 og Kotin 1950. Ég hef leitað mikið en ekki fundið eina einustu ljósmynd frá þessum stöð- um meðan fólk bjó þar.“ Byggðasagan mun verða um 25 ára verkefni því stefnan er að klára síðustu þrjár bækurnar á næstu sex árum. „Nú er maður loksins farinn að sjá fyrir endann á þessu og það er líka eins gott, ég fer að verða of gamall til að sinna þessu,“ segir Hjalti og brosir. Bæjarklettar niður af Bæ, sem er efst til hægri. Við Bæjarkletta var útgerðarstöð og búsetustaður margra fjölskyldna um áratuga skeið. Góð lending var í Bæjarvík, til vinstri, þar til hún eyðilagðist í brimi árið 1934. Bæjarklettar fóru í eyði ár- ið 1945. Á nesi í Kotabót í Höfðavatni, uppi til vinstri, var þéttbýlisstaðurinn Kotin sem fór í eyði árið 1950. Ljósmynd/Hjalti Pálsson NÝTT BINDI HINNAR VIÐAMIKLU BYGGÐASÖGU SKAGAFJARÐAR FJALLAR UM HOFSHREPP „Heimildir týnast og hverfa með hverri kynslóð“ AÐ SÖGN HJALTA PÁLSSONAR, RITSTJÓRA HINNAR GLÆSILEGU BYGGÐASÖGU SKAGAFJARÐAR, ERU AÐ MINNSTA KOSTI EITTÞÚSUND BÚSETUSVÆÐI Í SKAGAFIRÐI. VIÐ RITUN BYGGÐASÖGUNNAR HEIMSÆKIR HANN ALLAR ÞESSAR JARÐIR. ÁÆTLAÐ ER AÐ VERKIÐ TAKI ALDARFJÓRÐUNG. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Í útgáfuhófi í Höfðaborg á Hofsósi var Hjalti Pálsson ritstjóri upptekinn við að árita hið nýja bindi Byggðasögu Skagafjarðar fyrir áhugasama lesendur. Ljósmynd/Örn Þórarinsson Þórðarhöfði í Skagafirði. Höfðavatnið er bak við Höfðann og Höfðamölin tengir hann við austurlandið. Í Höfðanum eru glöggar minjar um fornbýli. Ljósmynd/Hjalti Pálsson * … í raun hefðiég þurft aðbyrja á þessu verki fyrir 30 til 40 árum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.