Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Blaðsíða 13
28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar
barst á dögunum vegleg gjöf: ljós-
myndasafn Einars Ingimundar-
sonar málara, sem lést fyrir tæpum
tveimur áratugum.
Ingimundur Einarsson, sonur
Einars, færði Héraðsskjalasafninu
myndirnar fyrir hönd fjölskyld-
unnar í þeim tilgangi að sem flestir
gætu notið í framtíðinni. Safnið er
mikið að vöxtum en Einar tók mynd-
ir af atvinnulífi og mannlífi hvers-
konar í Borgarnesi og nágrenni á ár-
unum 1958-1982.
Jóhanna Skúladóttir héraðs-
skjalavörður tók á móti gjöfinni, sem
þykir sésrstakur fengur nú, þar sem
unnið er að ritun sögu Borgarness
sem á að koma út í tilefni 150 ára af-
mælis bæjarins árið 2017. Borgar-
byggð stendur að útgáfunni en Egill
Ólafsson blaðamaður er höfundur
bókarinnar.
Einar fæddist í Borgarnesi 1929.
Hann nam myndlist í Þýskalandi og
Svíþjóð og mörg verka hans þykja
merkar heimildir um staðhætti í
Borgarfirði. Einar starfaði lengst af
sem húsamálari í Borgarnesi, en
sinnti einnig myndlistinni talsvert.
BORGARFJÖRÐUR
Borgnesingurinn Guðsteinn Sigurjónsson (Steina Jóru) við öskubílinn um 1970
Ljósmynd/Einar Ingimundarson
Hvalreki í Borgarnesi
Saga Jónsdóttir var í fyrsta leik-
arahópnum þegar Leikfélag Ak-
ureyrar varð atvinnuleikhús fyrir
rúmum fjórum áratugum en
steig á fyrsta skipti í níu ár á svið
þegar verkið Lísa og Lísa var
frumsýnt á Akureyri snemma á
þessu ári. Sunna Borg lék í einni
sýningu 2011 og annarri 2012 en
hafði þar áður ekki leikið í nærri
áratug.
„Það var langt síðan þær léku
fyrir sunnan. Þetta er því risa-
kombakk; drottningarnar að
norðan koma í bæinn,“ segir Jón
Gunnar Þórðarson leikstjóri.
Leikritið Lísa og Lísa er írskt
og heitir, I Alice I, á frummálinu.
Höfundurinn, Amy Conroy, lék
sjálf í verkinu þegar það var
frumsýnt í heimalandinu 2010 og
hefur nú sýnt það víða um heim,
m.a. á Lókalhátíðinni í Reykjavík
á síðasta ári. Þar var í forsvari
Ragnheiður Skúladóttir, sem síð-
ar varð leikstjóri Leikfélags Ak-
ureyrar (er nú reyndar nýhætt í
því starfi) og hún ákvað að setja
verkið upp á Akureyri.
Karl Ágúst Úlfsson þýddi
verkið og staðfærði. Í útgáfu
Karls gerist verkið á Akureyri.
REYNDAR LEIKKONUR
„Drottningar að norðan“
Hjallastefnan tekur við starfsmannahaldi á leikskól-
anum Barnabóli á Skagaströnd um áramót. Faglegt
samstarf hófst í sumar en Hjallastefnan tekur nú við
rekstri. Það var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn.
Hjallastefnan á Skagaströnd
Kort sem sýna snjómokstur í Kópavogi eru komin á vef
bæjarins; sýnt er hvaða götur eru í forgangi í mokstri og
hvar sandi er dreift. Almennt er fyrst hreinsað á aðal-
götum og akstursleiðum strætó og svo í íbúðahverfum.
Kort um snjómokstur
Tvær konur á sjötugsaldri hafa bú-
ið saman í 30 ár, nánast í felum.
Að áeggjan ungs leikskálds ákveða
þær að segja sögu sína á sviði.
Stokkið er fram og til baka í
tíma. Verkið er marglaga. Sunna
Borg, sem fer með hlutverk Lísu,
segir einmitt helstu erfiðleikana þá
að stundum sé erfitt að átta sig á
því hvar hún sé stödd í tíma!
„Leikkonur að leika konur sem
eru ekki leikkonur en samt að
leika leikrit!“ segir Jón Gunnar
Þórðarson leikstjóri og hlær þar
sem þríeykið situr með blaðamanni
og ræðir verkið. Svolítið snúið!
Saga Geirdal Jónsdóttir leikur
Lísu, ástkonu Lísu. „Það er mikil
hamingja í verkinu, en líka tölu-
verð sorg,“ segir Saga.
Leikritið Lísa og Lísa er samtal
við áhorfendur, segir Jón Gunnar.
Þó ekki það sem kallað er „þátt-
tökuleikhús“ því ekki er ætlast til
þess að áhorfendur svari leik-
urunum, sem þó beina orðum sín-
um til þeirra. Augnsamband er all-
an tímann við fólkið í salnum.
„Sumum fannst þetta pínulítið
óþægilegt í byrjun, en bara í smá-
stund,“ segir Saga.
„Í flestum leikritum eru stór-
brotin hvörf í lífi einstaklinga; eitt-
hvað stærra en lífið en þannig er
það ekki í þessu verki og ég er
ekki frá því að það sé ástæðan fyr-
ir því hve fólki þykir vænt um sýn-
inguna. Hún er ekki stærri; frekar
má segja að hún sé lífið. Fólk get-
ur samsamað sig við hana allan
tímann,“ segir Jón Gunnar.
Leikið verður á gólfi Tjarnarbíós
og áhorfendur sitja allt í kring.
Nándin er mikil eins og nyrðra.
„Það kom mér pínulítið á óvart
hve fólk skemmti sér mikið á sýn-
ingunnni fyrir norðan; það var
mjög mikið hlegið. Það verður
fróðlegt að sjá hver viðbrögðin
verða fyrir sunnan, því oft er tölu-
verður munur á viðbrögðum á Ak-
ureyri og í Reykjavík,“ segir Saga
en kann enga skýringu á því.
Leikritið fjallar sem sagt um
tvær rosknar lesbíur.
Sunna segir það hafa komið sér
skemmtilega á óvart hve karlmenn
voru hrifnir af sýningunni. „Þeir
sögðu að þetta væri bara alveg
eins og þegar þeir rifust við kon-
una sína!“
Jón segir ástæðu þess að ákveð-
ið var að sýna í Reykjavík að þau
hefðu fundið fyrir mikilli væntum-
þykju. „Sumir eru enn að tala um
sýninguna við okkur, nærri ári frá
því við frumsýndum. Fólk rifjar
hana upp og sumir segjast aldrei
hafa séð eins hlýlega og einlæga
sýningu.“
Leikkonurnar nefna að enn séu
örugglega mjög miklir fordómar í
garð samkynhneigðra hér á landi;
þær hafi orðið varar við það í
tengslum við sýninguna en eru
sannfærðar um að hugarfarsbreyt-
ing hafi orðið hjá mörgum sem sáu
verkið. Vita það raunar fyrir víst.
„Ef þetta snertir við einhverjum,
ef leikrit getur gert heiminn örlítið
betri í dag en hann var í gær er
árangrinum náð; til þess erum við
að þessu,“ segir Jón Gunnar.
Lísa og Lísa verður frumsýnt í
Tjarnarbíói föstudaginn 9. janúar.
AKUREYRI - REYKJAVÍK
Frá Pollinum
að Tjörninni
Á leið í Tjarnarbíó. Sunna Borg, lengst til vinstri, Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri og Saga Geirdal Jónsdóttir.
Morgunblaðíð/Skapti Hallgrímsson
LESBÍURNAR LÍSA OG LÍSA HREYFÐU VIÐ FÓLKI VIÐ POLL-
INN Á AKUREYRI FYRR Á ÁRINU. STRAX EFTIR ÁRAMÓT
VERÐA ÞÆR VIÐ REYKJAVÍKURTJÖRN. SUNNA BORG OG
SAGA JÓNSDÓTTIR LEIKA Í ÞESSU ÍRSKA VERÐLAUNAVERKI
KOLAPORTIÐ
kolaportid.is
Einstök stemning í 25 ár
Erum í jólafríi helgina 27.–28. des.
Opnum aftur helgina 3.–4. janúar.
Með óskum um gleðileg jól og
farsældar á komandi ári.
Þökkum samveruna á liðnu ári.
Opið laugardaga og sunnu
daga
frá kl. 11-17