Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Qupperneq 32
Íris vildi bjóða upp á óformlega stemningu, standandi borðhald, og segir það oftar en ekki vera bestu partíin. Stjörnukokkurinn Íris var í síðum og smart áramótakjól og allir skörtuðu sínu fínasta. Sérstaka athygli vakti lýsing kvöldsins en bjartar og hlýlegar seríur komu vel út með mátulegu magni af kertaljósum í ljómandi fallegum stjökum. 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014 Matur og drykkir HAMBORGARABRAUÐIÐ Dugar í 80 stykki hamborgarabrauð eða fyrir 40 hamborgara 5 dl hveiti 3 tsk. lyftiduft ½ tsk. salt 150 g rifinn ostur 75 g smjör, bráðið 2 dl súrmjólk Hitið ofninn í 180°C á blæstri. Setjið allt í skál og hnoðið vel saman í höndunum eða með hnoði í hrærivélinni. Fletjið deigið út. Finnið glas sem er í sömu stærð og hamborgarakjötið á að vera. Íris notar snafsaglas. Bakið í ofninum í 10-12 mínútur, fer eftir þykkt brauðsins. HAMBORGARAKJÖTIÐ Dugar í 40 borgara 400 g nautalund 1-2 pokar klettasalat tilbúin béarnaisesósa, Íris notar frá Fjarðarkaupum 1 búnt ferskt rósmarín teriyakisósa eftir smekk Leggið lundina í teryakisósu og saxað rósmarín í að minnsta kosti tvær klst. eða helst heilan dag. Grillið hana, best er að nota kolagrill en ef veður leyfir ekki má loka henni á vel heitri pönnu og setja þá inn í ofn í 8 mínútur á 180°C, á blæstri. Leyfið lundinni að kólna og skerið hana loks niður í mjög þunnar sneiðar. Leggið kjötið á brauð og álegg- ið ofan á í þessari röð; sósu, klettasalat, aftur sósu, lund, einu sinni enn sósu og lokið borgaranum loks með brauði. Litlir hamborgarar FYRIR 12-14 500 g krabbaklær eða 300 g hum- arskeljar 1 púrrulaukur 1 poki gulrætur 2-3 msk. smjör 2 msk. karrí 1 teningur humarkraftur, Íris notar Humartasty-kraft 3-4 teningar fiskikraftur 1 dl rjómi og auka ef nota á í skraut 2-3 dl hvítvín 1 lítil dós tómatpúrra 2-3 msk. koníak 5 l vatn maísmjöl til þykkingar ef þarf og eftir smekk 1 granatepli, fræin notuð til skrauts Steikið skeljarnar, gulrætur og púrrulauk á pönnu upp úr smjöri og karríi. Setjið vatnið í stóran pott og bætið skeljunum og grænmetinu steikta út í ásamt tómatpúrru, humar- og fiskikrafti. Lágmark er að sjóða þetta allt í 3 klst. á léttri suðu en allra best er að leyfa súpunni að malla í tvo daga. Eftir því sem súpan er soðin lengur, því betri verður hún. Þegar soðið er orðið gott má smakka til og athuga hvort það þurfi að bæta meiri krafti saman við. Sigtið soðið frá, setj- ið það aftur út í pottinn, þykkið með maísmjöli ef þið viljið, smakkið hana betur til og bætið hvítvíni, rjóma og koníaki saman við. Skreytið með gran- ateplafræjunum. Humarsúpa Snittur með hráskinku og trufflu- sinnepi 1 snittubrauð 1-2 bréf hráskinka 1 vænt búnt basilíka ½-1 box geitaostur trufflusinnep, fæst í Tekk- vöruhúsi jarðarber eða annað fal- legt grænmeti eða ávextir til skrauts Hitið ofninn í 180°C og hafið á blæstri. Skerið snittubrauð- ið í hæfilega bita. Ristið brauðið inni í ofninum í um það bil 10 mínútur. Smyrjið sinnepinu á brauðið og leggið basilíku ofan á, þá hráskinku og loks bita af geitaosti. Skreytið með niðursneiddum jarðarberjum eða öðru girni- legu grænmeti eða ávöxtum. ½ fransbrauð um 200 g stórar og fallegar rækjur smávegis majónes ½ búnt steinselja eða dill nokkrar msk. rauður kavíar góð olía til að djúpsteikja Skerið brauðið út með glasi í þeirri stærð sem hver vill, Íris notar snafsaglas og nær með því fjórum snittum út úr hverri brauðsneið. Hellið olíunni í lít- inn pott og djúpsteikið brauð- ið. Raðið þá rækjunum fallega á það og setjið dropa af majónesi ofan á í miðju snittunnar. Skreytið með dilli eða stein- selju og að lokum rauðum kaví- ar. Gamlársrækjusnittur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.