Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 19
Eru einhverjar hefðir innan fjölskyldunnar? Það er vana- lega gamlársboð heima hjá okkur og báðar ömmur mínar koma í mat. Við höfum oftast kalkún í matinn. Eftir matinn förum við út að sprengja flugelda, yfirleitt ég og bróðir minn, og svo förum við öll saman á brennuna líka sem er alltaf í Sjálandshverfinu í Garða- bæ og stoppum þar við. Þegar við komum aftur heim horfum við á ára- mótaskaupið. Síðan fara allir út að sprengja og þegar klukkan slær tólf þá skálum við. Ferð þú að hitta vinina eftir miðnætti? Ég er vanalega bara heima að njóta tímans með fjölskyldunni. Ég fer mjög oft út að sprengja með bróður mínum og eyða flugeldunum, þá helst þessum litlu, bara svo við þurfum ekki að eiga einhvern afgang. Svo njótum við þess bara að vera saman. 28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Eru einhverjar hefðir innan fjölskyldunnar á gamlárskvöld? Við „chillum“ bara yfir daginn á meðan pabbi eldar matinn. Við erum alltaf heima hjá okkur á gamlárskvöld og til okkar koma systkini pabba og fjölskylda. Það er alltaf aspassúpa í forrétt en svo er mismunandi hvað er í aðalrétt. Það er hins vegar allt- af einhver rjómabomba í eftirrétt sem ég borða ekki, svo að ég fæ alltaf súkkulaðiköku. Eftir matinn fer ég oftast á brennuna með vinkonu minni sem býr í götunni, en fjölskyldan slakar á heima á meðan. Það nennir eiginlega enginn að fara þangað. Svo þegar ég kem heim og er búin að hitta nokkra krakka, þá er stutt í skaupið og við horfum alltaf saman á það og borðum mikið nammi og allir með svona „glowsticks“. Þegar áramótaskaupið er búið fara allir upp í stofu. Ókei, þetta er mjög asnalegt, en pabbi spilar á píanóið og syngur Nú árið er liðið, mjög falskt og það er alveg hræðilegt. Allir syngja með! Hann lærði á píanó og þetta er örugglega gamall draumur eða eitthvað. Svo er líka lesið ljóð, stundum eftir afa minn. Við kaupum ekki flugelda því litlu systkini mín eru hrædd við þá. Við kaupum bara blys og þannig og horfum bara á fólkið í kring sprengja. Ferð þú að hitta vinina eftir miðnætti? Ég hitti alltaf vin- konu mína sem býr í götunni. En nú ætlum við að hittast nokkrar vinkonur og gera eitthvað skemmtilegt. Kveðast á og syngja saman meðan pabbinn spilar á píanóið Eru einhverjar hefðir innan fjölskyldunnar á gaml- árskvöld? Á gamlárskvöld erum við stórfjölskyldan alltaf heima hjá ömmu og afa, fjölskyldan mín, systk- ini mömmu og fjölskyldur þeirra. Við erum um 15 allt í allt og það er alltaf kalkúnn í matinn. Það er hefð á gamlárskvöld þegar við sitjum öll við mat- arborðið að við förum hringinn og hver og einn segir frá því sem stóð upp úr á árinu. Eftir matinn förum við yfirleitt saman á brennuna eða svona flestir og þar hittum við fullt af fólki í Garðabænum. Þegar við komum heim horfum við saman á skaupið og förum síðan saman út að sprengja. Ferð þú að hitta vinina eftir miðnætti? Það er mis- jafnt en yfirleitt erum við bara í rólegheitum saman öll fjölskyldan. Það hefur ekki verið neinn hópahitt- ingur hjá krökkunum í Garðabæ en ég held að það verði gert í ár. Allir segja frá því sem stóð upp úr á árinu BIRGIR STEINN JÓNSSON Fara alltaf saman á brennuna eftir kvöldverðinn SIGRÍÐUR ERNA HAFSTEINSDÓTTIR ÞÓRDÍS RAGNA RAGNARSDÓTTIR Þau yngstu hafa gaman af stjörnuljósum og blysum en eldri krakkarnir fá ef til vill að sprengja nokkrar rakettur með fullorðnum. Það er mik- ilvægt fyrir alla á heimilinu að nota hlífðargleraugu því ekki er gaman að byrja árið á slysó. Sprengjum gamla árið burt örugg og glöð. Munum eftir hlífðargleraugum! Munið að slökkva á kertunum Kerti úr sama pakka geta brunnið mis- munandi hratt og á ólíkan hátt Slökkvilið höfuborgasvæðisins

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.