Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Blaðsíða 52
Samantekt
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014
Morgunblaðið/Eggert
Ljósmynd/Reebok
„Segi einhver að ég geti ekki gert eitthvað
verð ég að gera það. Meðan ég var að æfa
stangarstökk fór ég að ræða við nokkra fé-
laga mína sem æfðu langhlaup. Talið barst að
Laugaveginum og ég hélt því fram að allir,
sem á annað borð stunduðu æfingar af ein-
hverju tagi og eru í góðu formi, gætu hlaupið
hann. Þau voru ósammála mér, þannig að ég
skráði mig í hlaupið,“ sagði Annie Mist
Þórisdóttir, Evrópumeistari og silfur-
hafi á heimsmeistaramótinu í crossfit,
3. ágúst.
Morgunblaðið/Kristinn
„Hann dó áður en tökur hófust á
Vonarstræti og var mjög sterkur
í minni vitund meðan á gerð
myndarinnar stóð – og er enn.
Pabbi var mikill höfðingi. Á dán-
arbeðinum hét ég honum að
næsta mynd yrði fyrir hann.
Pabbi, gjörðu svo vel!“ sagði
Þorsteinn Bachmann aðal-
leikari í vinsælustu kvik-
mynd ársins, Vonarstræti
um föður sinn.
Lj
ós
m
yn
d/
H
al
ld
ór
S
ve
in
bj
ör
ns
s
„Ég er rosalega ánægð, eiginlega alveg í skýjunum.
Nú verður útvarpstækið tekið út úr skápnum,“
sagði Vagna Sólveig Vagnsdóttir, 78 ára al-
þýðulistakona á Þingeyri, 15. júní þegar bar-
áttu hennar fyrir endurkomu Næturvakt-
arinnar á Rás 2 lauk með sigri. Sú ákvörðun
að leggja Næturvaktina niður í byrjun árs
2014 kallaði á hörð viðbrögð hjá aðdáendum
þáttarins. Var Vagna Sólveig fremst í flokki.
Morgunblaðið/Ómar
„Ég sá strax að hann hafði eitthvað sérstakt, hann var ótrú-
lega duglegur, hann vinnur tvöfalt á við flesta, er forvitinn og
hafði þann eiginleika til að bera sem börn hafa – að vilja vita
meira og spyrja spurninga. Ég hef haft margt fólk í vinnu hjá
mér og veit um leið ef menn hafa það sem þarf til að skara
fram úr,“ sagði stjörnukokkurinn breski Raymond
Blanc, lærifaðir Michelinstjörnu-kokksins Agnars
Sverrissonar um Agnar 20. júlí. Agnar sló í gegn á
árinu með skyndibitastaðnum Dirty Burgers & Ribs.
Morgunblaðið/RAX
„Allt árið 2013 var ég afar veik og þetta var
mjög þungsótt barátta. Ég náði hins vegar bata
og á fyrsta vinnudegi mínum, eftir þetta dimma
og erfiða ár, rann það upp fyrir mér að ég var á
leiðinni til Íslands. Ísland var því síðasti við-
komustaður fyrir veikindin á óeiginlegan hátt
og fyrsti viðkomustaður eftir veikindin í raun-
veruleikanum. Þetta er eitthvað svo táknrænt.
Ég flaug inn í myrkrið, bæði á hvíta tjaldinu og í
mínu persónulega lífi, þegar ég kvaddi Söru
Lund. Og nú var ég að lenda eftir veikindin;
einnig á Íslandi, en í ljósinu,“sagði Sofie Grå-
bøl úr Forbrydelsen 15. júní. Leikkonan
var stödd hérlendis við tökur á Forti-
tude, breskri glæpaþáttaröð. Í viðtalinu
ræddi hún meðal annars baráttu sína
við brjóstakrabbamein.
„Núna er eiginlega búið að eyði-
leggja sölumarkaðinn í myndlist-
inni því fólkið sem áður keypti
myndir á engan pening lengur. Það
er mjög alvarlegt að á Vestur-
löndum, þar á meðal hér á landi, sé
búið að rústa millistéttinni. Pen-
ingarnir fara á mjög fáar hendur
sem hefur mjög slæm þjóð-
félagsleg áhrif,“ sagði Daði Guð-
björnsson myndlistarmaður í
viðtali 11. maí.
Morgunblaðið/
Kristinn
„Okkur var gert að sætta okkur við það að við myndum
öll detta af baki á einhverjum tímapunkti. Hestarnir sem
voru notaðir í keppnina voru allir mjög lítið tamdir svo að
þetta var eiginlega gefið. Ég hélt mér hins vegar á baki allan
tímann og var nokkuð ánægð með það,“ sagði knapinn
Aníta Margrét Aradóttir 24. ágúst. Aníta vakti
mikla athygli þegar hún tók fyrst Íslendinga þátt í
hættulegustu kappreið í heimi, á villtum hestum í
Mongólíu. Þar er ekki sjálfgefið að komast í mark.
„Ég þekki mörg dæmi um konur með góða
menntun frá heimalöndum sínum sem nýtist
þeim ekki hér. Sumar hafa menntað sig hér. Þær
sækja og sækja um vinnu en fá ekki starf við
hæfi, jafnvel þótt þær tali ljómandi góða ís-
lensku. Þetta mótlæti hefur orðið til þess að
sumar þessara kvenna hafa flutt úr landi. Því
miður. Það er í mínum huga tapaður mann-
auður,“ sagði Claudie Ashonie Wilson sem
flutti til Íslands 18 ára gömul frá Jamaíku
og hefur búið hér síðan. Hún er mennt-
aður lögfræðingur.