Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Blaðsíða 56
Menning
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014
Gullna hliðið – Leikfélag Akureyrar í Borgarleikhúsinu
Eftir Davíð Stefánsson í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar.
Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson.
„Nálgun Egils Heiðars Antons Pálssonar á eitt vinsælasta
leikrit íslenskra leikbókmennta var fersk og djörf. Með aðeins
fjórum leikurum, tveimur tónlistarkonum og barnakór tókst að
skapa heillandi leikhúsævintýri. Leikmyndin var hugvitssamlega
hönnuð og fangaði einstaklega vel ferðalag kerlingarinnar.“
HEILLANDI LEIKHÚSÆVINTÝRI
EKKI BENDA Á MIG
Eldraunin í Þjóðleikhúsinu bbbbm
Eftir Arthur Miller í leikstjórn Stefans Metz. Burðarhlutverk: Hilmir
Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir.
„Eldraunin eftir Arthur Miller er afburða vel skrifað verk sem
hrífur mann með sér frá fyrstu mínútu. […] Spurningar verks-
ins, athuganir þess varðandi eðli mannsins og mannlegt samfélag
eru jafn mikilvægar og lifandi nú og þegar það var skrifað. Frammistaða leikara sýnir einnig að
það er verulegur fengur að því að fá leikstjórann Stefan Metz til starfa.“
Bláskjár – Óskabörn ógæfunnar í Borgarleikhúsinu bbbmn
Eftir Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar.
„Bláskjár er verk sem heldur áhorfandanum á tánum. Það byrjar
til dæmis þrisvar með sama samtali […] Bláskjár er fremur stutt
og kraftmikið verk. Framvindan er fáránleg, fyndin og áhugaverð.
[…] Með Bláskjá stendur Tyrfingur undir þeim væntingum sem til
hans eru gerðar. Leiðin sem Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri og
samstarfsfólk hans hefur valið er líka bæði djörf og fersk.“
FÁRÁNLEGT OG FYNDIÐ
Þjóðminjasafn Íslands: Betur sjá augu – Ljósmyndun
íslenskra kvenna 1872-2013
Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir
„Vönduð sýning og glæsilegur vitnisburður um hlutdeild
kvenna í íslenskri ljósmyndasögu. Val Katrínar Elvarsdóttur sýn-
ingarstjóra á verkum léði sýningunni jafnframt persónulegan
túlkunarblæ og varpaði ljósi á það hvernig konur hafa horft á og
skynjað sitt nánasta umhverfi gegnum tíðina.“
GLÆSILEGUR VITNISBURÐUR
Listasafn Íslands: Magnús Kjartanson – Form, litur,
líkami: Háspenna/Lífshætta bbbbn
Sýningarstjóri: Laufey Helgadóttir.
„[Sýningin varpar] ljósi á Magnús sem ástríðufullan listamann
sem lá margt á hjarta og var jafnframt margt til lista lagt. Tjáning
hans er jafnan kraftmikil, stór í sniðum og leikræn í þeim skiln-
ingi að hún getur verið dramatísk en líka geislandi af leikgleði, á
sama tíma og hún einkennist af formrænni yfirvegun og íhugun.“
HIN HVERFULA MANNSMYND
Karitas í Þjóðleikhúsinu bbbbm
Eftir Kristínu Marju Baldursdóttur í leikstjórn Hörpu Arnardóttur.
Leikgerðina vann Ólafur Egill Egilsson í samvinnu við Símon Birg-
isson. Burðarhlutverk: Brynhildur Guðjónsdóttir.
„Brynhildur vinnur sannkallaðan leiksigur í hlutverki Karit-
asar þar sem hún leikur á allan tilfinningaskalann og fær áhorf-
endur til að gráta með öðru auganu og hlæja með hinu. Karitas er áhrifamikil, falleg og mynd-
rænt sterk sýning sem Þjóðleikhúsið og aðstandendur allir mega vera stoltir af.“
BARÁTTA FYRIR LISTINA
Listasafn Íslands og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Sigurjón Ólafsson – Spor í sandi bbbbn
Sýningarstjórar: Birgitta Spur og Æsa Sigurjónsdóttir.
„… á sýningunni í Listasafni Íslands […] á sér stað vönduð,
fagurfræðileg samstilling valinna verka: uppsetningin er fag-
mannleg, lýsingin afar fallega unnin og verk Sigurjóns njóta sín í
samtali þvert á tímabil og efnivið þannig að skynja má endur-
tekin stef og áherslur á ferlinum.“
LISTIN OG HÁTÍÐLEIKINN
„Leikur [Hilmis Snæs og Margrétar] í lokaatriði [Eldraunarinnar] er til dæmis framúrskarandi.“
Ljósmynd/Eddi
Leiksýningar ársins
BESTU LEIKSÝNINGAR ÁRSINS SPANNA ALLT FRÁ OFSÓKNUM TIL MORÐA
MEÐ VIÐKOMU Í HIMNARÍKI. SIGURÐUR G. VALGEIRSSON OG SILJA
BJÖRK HULDUDÓTTIR VÖLDU ÚR ÞEIM SÝNINGUM SEM ÞAU SÁU Í
BORGARLEIKHÚSINU, ÞJÓÐLEIKHÚSINU OG TJARNARBÍÓI. BLAÐIÐ VAR
FARIÐ Í PRENTUN ÁÐUR EN SÝNINGIN SJÁLFSTÆTT FÓLK VAR FRUMSÝND.
„Spor í sandi er falleg og vel unnin sýning. Gesturinn yfirgefur hana fullur af leitandi þönkum um
spor Sigurjóns og sandinn sem umlykur þau,“ sagði m.a. í rýni um sýninguna fyrr á árinu.
Myndlistarsýningar ársins
Í SÖFNUM OG SÝNINGARSÖLUM LANDSINS VORU Á ÁRINU SEM SENN
ER AÐ LÍÐA SETTAR UPP FJÖLBREYTILEGAR MYNDLISTARSÝNINGAR MEÐ
NÝJUM VERKUM SEM GÖMLUM, EFTIR INNLENDA SEM ERLENDA LISTA-
MENN. ANNA JÓA, MYNDLISTARRÝNIR MORGUNBLAÐSINS, SKRIFAÐI UM
ÚRVAL SÝNINGA OG HEFUR VALIÐ ÞAÐ BESTA.
Ofsi – Aldrei óstelandi í Þjóðleikhúsinu bbbbn
Eftir Einar Kárason í leikstjórn Mörtu Nordal sem jafnframt vann
leikgerðina í samvinnu við leikhópinn og Jón Atla Jónasson.
„Efnistökin í þessari uppfærslu eru frumleg og fersk. Það á við
um alla þætti: handrit, leikmynd, búninga, hljóðheim og tónlist.
[…] Framsetningin er hugvitssamleg og snjöll og verkið hreyfir
við áhorfendum. Það er afrek að ná svo sterkum tökum á sögu-
efninu með þeim nýstárlega hætti sem hér er gert.“
ÚTVARP STURLUNGA
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn: Hólmfríður Árnadóttir
– Hughrif
Sýningarstjóri: Hildur Bjarnadóttir.
„Í pappírs- og textílverkum sínum túlkar Hólmfríður á frjóan og fágaðan
hátt þau hughrif sem kvikna af efninu sjálfu. Jafnframt er efnið þó mótað til
að tjá skynjun landslags og birtu, og andartök þar sem saman fara kyrrð og
næmi. Yfirlitssýningin er einstaklega fallega unnin og varpar ljósi á feril vand-
virks listamanns og jafnframt á merkan þátt Hólmfríðar í íslenskri listasögu.“
LJÓSI VARPAÐ Á FERIL VANDVIRKS LISTAMANNS
Nýlistasafnið: Hreinn Friðfinnsson – æ ofaní æ bbbbn
Sýningarstjórar og höfundar kvikmyndar um Hrein: Markús Þór Andrésson
og Ragnheiður Gestsdóttir.
„Kvikmyndin æ ofaní æ er listræn sköpun í sjálfri sér [og] velheppnuð
tilraun til að fjalla með ferskum og nýstárlegum hætti um list Hreins
[…] Sýningin æ ofaní æ kveikir margháttaða þanka um lífið, listina og
víddir tilvistarinnar. Sýningargestinum er boðið til þátttöku í samhljómi og samtali milli kvik-
myndarinnar og verkanna á sýningunni. Þannig fær hann örvandi innsýn í listsköpun Hreins.“
Í SÖMU ANDRÁ