Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 40
Tíska Nýr hönnuður hjá Chanel *Ítalski förðunarmeistarinn Lucia Pica hefurtekið við sem alþjóðlegur förðunarvöru- oglitahönnuður hjá snyrtivörudeild Chanel.Lucia hefur unnið sem „freelance“förðunarmeistari um árabil og þróað þannigáhugaverðan stíl. Pica hefur störf hjá Chanel hinn fyrsta janúar 2015. H verju ætlar þú að klæðast á gamlárskvöld? Marokkóskum karlmannsklæðum frá sambýliskonu minni Evu Sigrúnu, þau eru sko fasjón #oneofakind! Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Mokkajakk- inn minn sem ég fékk í Rauðakrossbúðinni, með honum fylgdi miði sem á stóð að einungis ljóshærð stelpa mætti kaupa hann. Sem skol- hærður einstaklingur hef ég því verið að fara í ljósar strípur síðan. En þau verstu? Allt sem ég kaupi mér sem er ekki til í minni stærð, en ég ætla bara að mjókka til að passa í. Hvert sækir þú innblástur? Það er ekkert eitt ákveðið, maður verður alltaf fyrir áhrifum úr umhverfi sínum en klæðaburður minn stjórnast aðallega af veðrinu. Ef það er kalt og dimmt þá er klæðaburður minn eftir því og öfugt ef það er bjart og hlýtt. Annars get ég verið að taka mjög ólíka stíla yfir vikuna, hef til að mynda tekið Steve Jobs-lúkkið á mánu- degi, A$AP á þriðjudegi, 90’s Madonnu á mið- vikudegi, Janis Joplin á fimmtudegi og kannski unga Cher á föstudegi. Hverju er mest af í fataskápnum? Ég er peysuperri af verstu gerð, svo ég á mjög mik- ið af stórum og fyrirferðarmiklum prjónapeys- um. Líka glimmersokka úr Tiger, kaupi mér alltaf par í hverri ferð. Ekkert betra en smá glys og glam á tánum ef maður er eitthvað niðurlútur. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Það er sama hvað ég hef fengið mér, það er alltaf það besta sem ég hef eignast þá stundina, en fljótlega fellur það í skuggann af því næsta „nýja“ sem ég eignast. Finnst samt alltaf jafn leiðinlegt þegar það kemur gat á glimmersokkana mína. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert færirðu? Getur tímavélin tekið mig í LOTR? Ef svo er þá lang- ar mig til að fara þangað og vera álfur. Eða bara svo lengi sem ég fæ að vera með skikkju og höf- uðskart þá er ég sátt. Ætlar þú að fá þér eitthvað sérstakt fyrir nýja árið? Ég fer ekki út án þess að vera með tref- il, því væri draumur að fá sérhannaðan og einstakan trefil frá fatahönnuðinum og textílsnillingnum Tönju Huld Levý. Frúin í Hamborg má svo einnig gera sér ferð við tækifæri og taka mig í einn Laugaveg eða svo. Hef augastað á einu og öðru hjá JÖR, KronKron og Kiosk. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Ég tók „Normcore“-trendinu mjög fagnandi, en ég reyni eftir fremsta megni að klæða mig í eins þægileg föt og ég get, án þess þó að fara í joggingallann. Væri reyndar hæst- ánægð ef Hjallastefnan yrði tekin upp í vinnunni ef út í það er farið, fer hér með í það! Á milli þess sem ég lufsast „ekki“ í jogging þá finnst mér samt gaman að fara í glimmer og glans, mætti því segja að ég væri að vinna með skötu- lúkkið á virkum dögum en tæki gullfiskinn um helgar. Áttu þér uppáhaldsflík? Já og nei, það er stuttermabolur skreyttum guðum hindúa. Ágústa vinkona mín á hann en ég er að vinna í því að eignast hann, með góðu eða illu. MAROKKÓSK KARLMANNSKLÆÐI Á GAMLÁRSKVÖLDI Ólöf Rut segist verða fyrir áhrifum úr um- hverfinu en klæðaburð- urinn stjórnast þó að- allega af veðrinu. AFP Gullfiskur um helgar ÓLÖF RUT STEFÁNSDÓTTIR, VERKEFNASTJÓRI Í HÖNN- UNARMIÐSTÖÐ ÍSLANDS, ER MEÐ AFAR FJÖLBREYTTAN OG SKEMMTILEGAN FATASTÍL. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Ólöf væri til í að klæðast skikkju og höfuðfati. Gillmersokkar eru í miklu uppáhaldi hjá Ólöfu. Hefðbundinn, vel snið- inn og vandaður fatn- aður einkennir „Norm- core“-tískustefnuna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.