Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 64
SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 2014 ILVA.DK ÚTSALA YFIR 2500 VÖRULIÐIR Á LÆKKUÐU VERÐI ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 SPARAÐU 25% af öllum handklæðum SPARAÐU 25% af öllum púðum SPARAÐU 25% af öllum kertum Ýmsir litir. 50 x100cm. 995kr. Nú695kr. 70 x140cm. 1.995kr. Nú1.495kr. 100 x150cm. 2.995kr. Nú1.995kr. Nessa-handklæði ZigZag.Púði. 50 x50 cm. 4.995kr. Nú3.695kr.Contrast. Púði. Svartur/natur. 3.995kr. Nú2.995kr. Love is...Púði. 40 x60 cm. 6.995kr. Nú5.195kr.One.Púði. 40 x40 cm. 2.995kr. Nú2.195kr. Púðar Myndskeið sem birtist vef RÚV á aðventunni af Björk Guð- mundsdóttur söngkonu 11 ára gamalli að lesa fæðingarsögu frelsarans hefur vakið heimsathygli. Þannig hefur fólk um víða veröld dreift myndskeiðinu á veraldarvefnum, Twitter og Fa- cebook, og erlendar vefsíður tekið það upp í litlar fréttir. Það var árið 1976 sem Björk las söguna, við undirleik nem- enda úr Barnamúsíkskóla Reykjavíkur, í Stundinni okkar árið 1976, en RÚV hefur undanfarið birt gömul myndskeið af ís- lenskum flutningi þekktra tónlistarmanna á jólalögum í gegnum tíðina sem flutt voru í sjónvarpssal. Vefsíður svo sem DIY, Spin, og Music Times hafa birt mynd- skeiðið og í frétt á vef Relevant Magazine segir: „Þetta er allt á íslensku en þetta er saga til að hlusta á með hjartanu en ekki eyrunum.“ Aðdáendur Bjarkar Guð- mundsdóttur hafa glaðst yfir myndskeiðinu af henni lítilli og deilt víða. Morgunblaðið/Styrmir Kári MYNDSKEIÐ AF SÖNGKONUNNI 11 ÁRA Björk lítil slær í gegn Björk Guðmundsdóttir 11 ára í Stundinni okkar. Tvær ungar konur frá Litháen, bú- settar hér á landi, afhentu hjón- unum Bryndísi Schram og Jóni Baldvini Hannibalssyni sérstaka þjóðarköku Litháa milli jóla og ný- árs 1999. Konurnar, Sigita Lem- inskaite og Maria Karolina Skac- kauskaeté, störfuðu sem au pair á heimilum Sivjar Friðleifsdóttur og Ástu K. Ragnarsdóttur en það var einmitt í samkvæmi heima hjá Ástu og eiginmanni hennar, Val- geiri Guðjónssyni, að kakan góða var afhent með viðhöfn. Ásta tjáði Morgunblaðinu að stúlkurnar hefðu viljað færa Jóni Baldvini gjöf þar sem hann hefði á sínum tíma verið fyrstur utanrík- isráðherra á Vesturlöndum til að viðurkenna sjálfstæði þjóðar þeirra. „Ásta segir þessa þjóð- arköku Litháa, sem er bökuð í eldi og vafin upp á sívalning, afar sér- staka,“ segir í frétt blaðsins. „Kak- an sé borin fram á öllum stórhátíð- um og tengist brúðkaupum alveg sérstaklega. Þess vegna hafi stúlk- unum þótt tilvalið að gefa þeim hjónum kökuna saman.“ Í fréttinni kom ennfremur fram að Sigita væri kennari að mennt en Maria Karolina hefði verið við nám í rekstri og fjármálum. GAMLA FRÉTTIN Kaka gefin Jón Baldvin og Bryndís taka við kökunni úr hendi Sigitu og Mariu Karolinu milli jóla og nýárs fyrir fimmtán árum. Ásta og Siv fylgjast spenntar með. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞRÍFARAR VIKUNNAR Anna Lísa Wium Douieb hraðfréttakona Helga Braga Jónsdóttir leikkona Kirsten Vangsness leikkona úr Glæpahneigð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.