Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 64
SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 2014
ILVA.DK
ÚTSALA
YFIR 2500 VÖRULIÐIR Á
LÆKKUÐU VERÐI
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
SPARAÐU
25%
af öllum
handklæðum
SPARAÐU
25%
af öllum
púðum
SPARAÐU
25%
af öllum
kertum
Ýmsir litir. 50 x100cm. 995kr. Nú695kr.
70 x140cm. 1.995kr. Nú1.495kr.
100 x150cm. 2.995kr. Nú1.995kr.
Nessa-handklæði
ZigZag.Púði. 50 x50 cm. 4.995kr. Nú3.695kr.Contrast. Púði. Svartur/natur. 3.995kr.
Nú2.995kr. Love is...Púði. 40 x60 cm. 6.995kr. Nú5.195kr.One.Púði. 40 x40 cm.
2.995kr. Nú2.195kr.
Púðar
Myndskeið sem birtist vef RÚV á aðventunni af Björk Guð-
mundsdóttur söngkonu 11 ára gamalli að lesa fæðingarsögu
frelsarans hefur vakið heimsathygli. Þannig hefur fólk um víða
veröld dreift myndskeiðinu á veraldarvefnum, Twitter og Fa-
cebook, og erlendar vefsíður tekið það upp í litlar fréttir.
Það var árið 1976 sem Björk las söguna, við undirleik nem-
enda úr Barnamúsíkskóla Reykjavíkur, í Stundinni okkar árið
1976, en RÚV hefur undanfarið birt gömul myndskeið af ís-
lenskum flutningi þekktra tónlistarmanna á jólalögum í gegnum
tíðina sem flutt voru í sjónvarpssal.
Vefsíður svo sem DIY, Spin, og Music Times hafa birt mynd-
skeiðið og í frétt á vef Relevant Magazine segir: „Þetta er allt á
íslensku en þetta er saga til að hlusta á með hjartanu en ekki
eyrunum.“
Aðdáendur Bjarkar Guð-
mundsdóttur hafa glaðst
yfir myndskeiðinu af henni
lítilli og deilt víða.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
MYNDSKEIÐ AF SÖNGKONUNNI 11 ÁRA
Björk lítil slær
í gegn
Björk Guðmundsdóttir 11 ára í Stundinni okkar.
Tvær ungar konur frá Litháen, bú-
settar hér á landi, afhentu hjón-
unum Bryndísi Schram og Jóni
Baldvini Hannibalssyni sérstaka
þjóðarköku Litháa milli jóla og ný-
árs 1999. Konurnar, Sigita Lem-
inskaite og Maria Karolina Skac-
kauskaeté, störfuðu sem au pair á
heimilum Sivjar Friðleifsdóttur og
Ástu K. Ragnarsdóttur en það var
einmitt í samkvæmi heima hjá
Ástu og eiginmanni hennar, Val-
geiri Guðjónssyni, að kakan góða
var afhent með viðhöfn.
Ásta tjáði Morgunblaðinu að
stúlkurnar hefðu viljað færa Jóni
Baldvini gjöf þar sem hann hefði á
sínum tíma verið fyrstur utanrík-
isráðherra á Vesturlöndum til að
viðurkenna sjálfstæði þjóðar
þeirra. „Ásta segir þessa þjóð-
arköku Litháa, sem er bökuð í eldi
og vafin upp á sívalning, afar sér-
staka,“ segir í frétt blaðsins. „Kak-
an sé borin fram á öllum stórhátíð-
um og tengist brúðkaupum alveg
sérstaklega. Þess vegna hafi stúlk-
unum þótt tilvalið að gefa þeim
hjónum kökuna saman.“
Í fréttinni kom ennfremur fram
að Sigita væri kennari að mennt en
Maria Karolina hefði verið við nám
í rekstri og fjármálum.
GAMLA FRÉTTIN
Kaka
gefin
Jón Baldvin og Bryndís taka við kökunni úr hendi Sigitu og Mariu Karolinu
milli jóla og nýárs fyrir fimmtán árum. Ásta og Siv fylgjast spenntar með.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Anna Lísa Wium Douieb
hraðfréttakona
Helga Braga Jónsdóttir
leikkona
Kirsten Vangsness
leikkona úr Glæpahneigð