Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014
Kynning á íslenskri tónlist fer ekki bara fram í
útlöndum, hún gerir það einnig hér heima á
alþjóðlegum hátíðum. Mest munar um Ice-
land Airwaves sem nýtur mikillar hylli og er,
að sögn Sigtryggs, eina hátíðin sem enn sem
komið er laðar eitt-
hvað að ráði af tónlist-
aráhugafólki til landsins.
„Hinar eru sem bet-
ur fer að sækja í sig
veðrið, Sónar, ATP í
Keflavík og nú síðast
Secret Solstice. Það
gera sér hins vegar allir
grein fyrir því að upp-
bygging tónlistarhátíða
er nokkurra ára verk-
efni. Maður startar ekki hátíð og reiknar
með að uppselt verði á hana fyrsta árið,“
segir Sigtryggur og nefnir líka fjölmargar
smærri hátíðir á landsbyggðinni, svo sem
Eistnaflug í Neskaupstað, LungA á Seyðisfirði
og Þjóðlagahátíð á Siglufirði sem hafi mikla
möguleika til að þróa sig á sinn hátt.
Sigtryggur segir innflutning á erlendum
tónlistartúristum mjög spennandi verkefni
og þar hafi menningarlífið og ferðaþjónustan
möguleika á að snúa saman bökum. „Það er
vaxtarbroddur í samtali tónlistarhátíða og
ferðaþjónustunnar. Það er nefnilega fjöldi
fólks úti í heimi sem vill koma og sjá íslenska
tónlist í íslensku umhverfi. Það þekkjum við
af góðri reynslu frá Iceland Airwaves og
margir möguleikar til að víkka það út, til
dæmis varðandi klassísku hátíðirnar yfir
vetrartímann, Myrka músíkdaga, Tectonics
og fleiri. Við sjáum fram á bjarta tíma. Maður
þarf ekki náttúrupassa til að fara á tónlist-
arhátíð.“
Ásgeir Trausti fór
víða á árinu.
Þarf ekki
náttúrupassa
Sigtryggur segir okkur Íslendinga eiga
mun fleiri tónlistarmenn sem eru þekkt-
ir og njóta hylli á alþjóðavísu en flestar
þjóðir af svipaðri stærð, svo sem Lúx-
emborgarar og Liechtensteinar.
Það er ekki bara íslensk tónlist sem
hefur sótt í sig veðrið erlendis á umliðn-
um árum. Það á við um tónlist frá hinum
Norðurlöndunum líka og segir Sig-
tryggur okkur án efa njóta góðs af því.
„Á þessum stærstu mörkuðum, eins
og Bretlandi, Þýskalandi, Japan og meira
að segja Bandaríkjunum er vaxandi
áhugi á íslenskri tónlist. Ásgeir Trausti
var að gera samning í Bandaríkj-
unum og nú síðast Kaleo.
Það eru ótvíræð sóknarfæri
þar og við verðum áfram
með augun á Bandaríkj-
unum næstu árin. Það eru
áform í gangi varðandi
Bandaríkin sem eiga
vonandi eftir að koma
skemmtilega á
óvart á nýju ári.“
Tónleikar íslenskra tónlistarmanna oghljómsveita í útlöndum hafa veriðheldur færri á þessu ári en í fyrra.
Um 1.300 nú en voru liðlega 1.400 árið 2013
sem var algjört metár hvað þetta varðar. Að
sögn Sigtryggs Baldurssonar, framkvæmda-
stjóra Útflutningsskrifstofu íslenskrar tón-
listar (ÚTÓN), er árið í ár samt á vissan
hátt merkilegra, þar sem fleiri flytjendur eru
á bak við heildartöluna nú en í fyrra.
„Á síðasta ári voru öll stærstu númer ís-
lenskrar tónlistarsögu á tónleikaferðalagi,
það er að segja Björk, Of Monsters and
Men, Sigur Rós og Ásgeir Trausti var byrj-
aður af fullum krafti. Af þessum hefur bara
Ásgeir Trausti verið að túra á þessu ári.
Samt erum við í 1.300 tónleikum. Í fyrra
voru þessir fjórir flytjendur á bak við stóran
part af heildartölunni. Þess vegna má alveg
segja að árið sem er að líða sé jafnvel betra
en árið 2013. Okkur hefur tekist að breikka
útflutning okkar á heildarvísu sem er mjög
jákvætt,“ segir hann.
Stærsta tónleikaráðstefna í Evrópu
Á dögunum samdi ÚTÓN við Icelandair og
Reykjavíkurborg um áframhaldandi rekstur
Iceland Airwaves, Reykjavík Loftbrú og
stuðning við íslenska fókusinn á Eurosonic
Noorderslag. Sigtryggur segir þetta mjög
mikilvægt og ánægjulegt að þessir aðilar
skuli styðja þátttöku Íslands í tónlistarhátíð-
inni Eurosonic nú í janúar. „Við förum út
með nítján listamenn á Eurosonic sem er
stærsta tónleikaráðstefna í Evrópu en þar
koma saman fulltrúar allra helstu tónleika-
hátíða í álfunni. Þar eru líka flestir helstu
tónleikabókarar í Evrópu, þannig að það
skiptir gríðarlegu máli að láta sjá sig þarna,“
segir Sigtryggur.
Vægi Eurosonic hefur aukist í réttu hlut-
falli við áherslubreytinguna sem er að verða
á tónlistarbransanum í heiminum, það er frá
útgáfu yfir í tónleikahald. Vaxtarbroddurinn
er í því síðarnefnda. „Eurosonic hefur verið
að blása út eins og púkinn á fjósbitanum
meðan ráðstefna eins og Cannes hefur verið
að skreppa saman en þar hefur áherslan ver-
ið á útgáfu,“ segir Sigtryggur.
Hann segir ánægjulegt að finna fyrir
stuðningi innan kerfisins, eins og samning-
urinn við Icelandair og Reykjavíkurborg
undirstrikar. „Mér finnst ég hafa orðið var
við viðhorfsbreytingu þau tvö ár sem ég hef
verið hér í starfi. Áhuginn er að aukast og
fólk tekur greinilega eftir því starfi sem unn-
ið er hér hjá ÚTÓN,“ segir Sigtryggur.
Loftbrú endurlífguð
Núna í lok árs tókst að endurlífga Reykjavík
Loftbrú og koma henni í nýtt horf, að sögn
Sigtryggs. Félag íslenskra hljómlistarmanna
(FÍH) kom til að mynda aftur þar inn en ár-
ið 2012 var sett inn ákvæði þess efnis að all-
ir sem sæktu um styrk frá Loftbrú yrðu að
hafa komið fram á Iceland Airwaves-
hátíðinni. Það ákvæði hefur nú verið tekið
út. „Loftbrúin hresstist töluvert við þetta
og mun koma sterk inn á næsta ári við
hlið útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar
en ÚTÓN heldur nú utan um báða þessa
sjóði. Hægt er að sækja um styrk í
hvorn sjóð um sig eða þess vegna báða.“
Spurður um helsta styrk íslensku tón-
listarsenunnar nefnir Sigtryggur
strax fjölbreytnina. „Ég er oft
spurður um þetta íslenska
„sánd“ sem heillar svona mikið. Í mínum
huga er það ekkert sérstakt „sánd“, heldur
miklu frekar „attitjúd“. Íslendingar eru upp
til hópa að gera tónlist af ást og umhyggju
og á eigin forsendum. Það er enginn að apa
endilega eftir U2 eða öðrum frægum hljóm-
sveitum. Íslenska „attitjúdið“ byggist á því
að skapa tónlist á sinn hátt og frá hjartanu.
Það er kjarninn í allri góðri listsköpun,“ seg-
ir Sigtryggur.
Þegar listinn yfir tónleikahald Íslendinga
erlendis er skoðaður er maður ekki lengi að
nema breiddina. Ef við horfum bara á mán-
uðinn sem nú er að líða má til dæmis finna
Sólstafi, Samaris, Ólöfu Arnalds, Lay Low,
Skálmöld, Thugfucker, Ásgeir Trausta og
GusGus.
Betri kynningarleiðir
Að sögn Sigtryggs hefur svokölluð indie-
músík haft sterkastan hljómgrunn erlendis
en innan hennar rúmast mjög ólíkar sveitir.
Það sé til dæmis ekki sami hópurinn sem
hlustar á Sólstafi og Samaris. „Með tilkomu
tækni og betri kynningarleiða hefur íslensk-
um hljómsveitum og tónlistarmönnum tekist
að rata betur í réttu eyrun. Það er vonandi
eitthvað sem okkur hjá ÚTÓN hefur tekist
að hjálpa til með.“
Morgunblaðið/RAX
Rata betur í réttu eyrun
ÚTFLUTNINGUR Á ÍSLENSKRI TÓNLIST GEKK VONUM FRAMAR Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA. TÓNLEIKAR VORU AÐ VÍSU EKKI ALVEG
JAFNMARGIR OG Á SÍÐASTA ÁRI EN ÞAÐ SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA, ÞAR SEM FLEIRI STÓR NÖFN VORU Á FERÐ OG FLUGI ÞÁ. NÚNA
ERU FLEIRI TÓNLISTARMENN OG HLJÓMSVEITIR Á BAK VIÐ HEILDARFJÖLDA TÓNLEIKA.
Sólstafir voru að ljúka við tón-
leikaferð um Evrópu og Bandarík-
in. Að sögn Sigtryggs Bald-
urssonar vex vegur þeirrra jafnt
og þétt á erlendri grundu.
VAXANDI ÁHUGI Á
NORRÆNNI TÓNLIST
Lay Low
* Íslendingar eru upp til hópa að gera tónlist af ást og umhyggju og á eigin forsendum. Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN.ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is