Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 23
skilning enda er hægt að læra hvar sem er. Þau taka bara skólabækurnar með sér.“ Hengirúmið með í för Sigmar er bakpokaferðalangur fram í fing- urgóma og líkar best að gista á farfuglaheim- ilum eða heima hjá fólki, sem stendur víða til boða. Þannig kynnist hann fólki betur og fræðist meira um hvern stað fyrir sig. Sig- mar kann líka prýðilega við sig í tjaldi, auk þess sem hann sefur oft undir berum himni – í hengirúmi sem hann hefur með sér. Sigmar hefur sjaldan lent í vandræðum á ferðum sínum. Það er helst við landmæri ríkja. Þá þurfa ferðalangar stundum að draga upp veskið til að vera hleypt í gegn. Það er gömul saga og ný. Sigmar lætur sig yfirleitt hafa þetta – utan eitt skipti. „Ég var þá á leiðinni inn í El Salvador og neitaði að greiða landamæravörðunum mútur. Ætli hafi ekki legið eitthvað illa á mér,“ rifjar hann upp brosandi. Það skipti engum togum, Sigmari og syni hans var hent öfugum út úr El Salvador ogHótelið sem Sigmar gisti á í Colombo. Strandkofinn sem Sigmar gisti í meðan hann dvaldist í Arugam Bay á Sri Lanka. Sigmars var svæðið ennþá í sárum eftir þær hörmungar. Hann segir ferðina hafa verið þrælskemmtilega. Sri Lanka sé gífurlega fal- legt land og gaman að ferðast um það og verði örugglega ennþá skemmtilegra þegar stjórnarfarið lagast. Þá sé fólkið indælt, kurt- eist og lífsglatt. Helsta áhugamálið Ferðalög eru helsta áhugamál Sigmars og lít- ur hann á þau sem hvata til að kynnast nýju fólki. Mest hefur hann ferðast um Suður- Ameríku, þar sem hann bjó í eitt ár, og Mið- Ameríku. Hann á tvö börn, son og dóttur, og hafa þau ferðast svolítið með honum. Þegar drengurinn fermdist fyrir fjórum árum fóru feðgarnir í ferðalag til Mið- Ameríku og þar sem stúlkan fermdist síðasta vor stendur til að fara með hana utan líka. Upp- haflega ætlaði Sigmar að gera það núna um jólin en er búinn að fresta því til páska. Ekki ligg- ur fyrir hvert för verður heitið en Sigmar segir Suður- eða Mið- Ameríku koma sterklega til greina enda er hann farinn að geta bjargað sér vel á spænsk- unni. Hefur sótt nokkur nám- skeið á ferðum sínum. Hann er jafnan á bilinu þrjár til sex vikur ytra. Finnst ekki taka því að fara fyrir skemmri tíma. „Það hentar mér yfirleitt best að fara um jól eða páska vegna vinnunnar, þá er minnst að gera.“ Spurður hvort það skapi ekki vandamál vegna skólagöngu barnanna hristir Sigmar höfuðið. „Skólarnir hafa sýnt þessu mikinn mega ekki koma þangað framar. „Það endaði með því að við gistum á vændishúsi í grennd- inni enda ekki í önnur hús að venda um nótt- ina. Ég held að sonur minn hafi ekki áttað sig á starfseminni sem fór þar fram.“ Hann glottir. „Ósnortin“ lönd mest spennandi Sigmar segir fróðlegt að kynnast helgihaldi í öðrum löndum en auk Sri Lanka hefur hann verið í Chile, Guatemala og Austurríki yfir jól. Hann segir jólin hvergi eins verslunarmiðuð og hér á landi en samt vanti ekkert upp á há- tíðleikann. Spurður hvert hann langi mest að fara næst nefnir Sigmar Asíuríkið Búrma sem sumir kalla Myanmar. „Búrma er að opnast en er samt ennþá ósnortið af ferðamönnum. Það er allt öðruvísi að fara til landa þar sem ferða- þjónustan stendur ekki í blóma. Það er tekið allt öðruvísi á móti manni og engin þreyta komin í gestgjafann eins og stundum vill verða. Fólk er einlægara og forvitnara í þess- um löndum og það kann ég að meta.“ * Sigmar snaraðisér inn á fyrstahótelið sem hann sá. Og hver haldiði að hafi tekið á móti honum þar? Annar Íslendingur. 28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnasmiðja Reykjavíkur sendir landsmönnum öllum sínar bestu jóla- og nýárskveðjur. Þökkum viðskiptin á liðnu ári.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.