Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Page 128

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Page 128
eftir bernskuheiminum, þeim sælureit sem Steinunn kallaði eitt sinn svo vel vorlandið. Harpa Eir fer inn á við til að finna aftur haldreipi í lífi sínu og um leið og þessari ferð er lýst kemur betur og betur í ljós hve aðkreppt og vansælt líf hennar hefur verið fram að þessu. Það er ofið úr vonbrigðum, úr vítahring mis- skilnings móður og dóttur og þunga þeirrar ábyrgðar sem hún verður að taka á sig þegar hún verður ófrísk fimmtán ára gömul. Dóttirin sem verið er að bjarga frá glötun, Edda, átti að vera stað- festing á sjálfstæði hennar, en er nú orð- in að byrði og táknmynd fyrir allt það sem fór úrskeiðis. Ferðin til vorlandsins er því bæði tilraun til að finna á ný upp- hafna mynd þess elskaða, hamingjureits- ins fyrir austan, og að leysa vandamálin heima fyrir. Harpa er að reyna að svala þrá sinni eftir ást: „í vetur ætla ég að njóta ásta við landið“ (bls. 277), segir hún þegar nær dregur áfangastað. Land- ið var hennar fyrsta ást og sú eina sem ekki bregst henni. En það er ekki aðeins landið sem er henni stoð og stytta í þrengingunum heldur ekki síður fjölskylda hennar þar austur frá. Vorlandið er í senn upphafin mynd náttúrunnar sjálfrar og einingar- reitur fjölskyldunnar þar sem Harpa dvaldi áður á sumrin og þar sem spennt samband hennar við vansæla móður sína var ekki lengur til staðar heldur aðeins hlýja og væntumþykja. í bókar- lok sýnist textinn þannig stefna hraðbyri inn í veröld fullkominnar einingar. Lýs- ingin á húsi Dýrfinnu, á því heilsteypta og góða fólki sem fyrir austan býr, á fegurð umhverfisins og á því upphafna og ævintýralega sem umleikur allt þar um slóðir hleypir nánast engu illu að. Það virðist sem ekkert geti sundrað þessari óskamynd af aðstæðum þarna í firðinum. Jafnvel naðran í þessari paradís, dópistinn og vandræðaungling- urinn Edda, virðist ætla að verða að þægu húsdýri. I bókarlok er því vorland- ið sjálft, bókmenntaríkið og hugarheim- urinn fallinn saman við raunveruna svo þar eru engin skil lengur greinanleg. Sú innri linsa sem Harpa Eir beinir að um- hverfmu og notar til að umskapa það og breyta í það óskaland sem hún segir síð- an frá, virðist í sögulok hafa tekið yfir allt sjónsvið hennar. Allt virðist falla í ljúfa löð. Aðeins hin hárfína beiting íróní- unnar í textanum kemur í veg fyrir að sagan endi í rósrauðum bjarma. Óneit- anlega hefði það stíflað þann farveg sem textinn rennur í, og sem heldur áfram að renna að lestri loknum, ef lukkuleg bók- arlokin hefðu staðið bókstafleg sem einskonar endir á gleðileik, þar sem öll pörin giftast hamingjusamlega en vondu karlarnir fá makleg málagjöld. Víst er að hægt er að lesa bókina á þann veg. En hin stigmagnandi tungumáls- gerving umhverfis, náttúru og persóna kemur í veg fýrir að þetta sé eina lestrar- leiðin. Skriftin sjálf snýr hér enn og affur upp á söguþráðinn og gerir sjálfa sig að viðfangsefni sögunnar. Með því að færa vorlandið inn í raunveruna leyfir Stein- unn þránni að uppfýllast, að minnsta kosti í hinni hugsuðu vídd textans. En hún gerir það á svo ísmeygilegan hátt að það er varla að lesandinn taki eftir því. Það er næstum því sjálfsagt að Austfirð- irnir verði að Arkadíu í bókarlok. Ein á báti Harpa Eir er að vissu marki dæmigerð persóna, fulltrúi allra þeirra kvenna sem finnst þær vera bornar til að gera fleira, lifa betur og elska meira en þær gera, en fá þess í stað í hausinn illa borgaða vinnu, fúlar kjallaraíbúðir og uppeldis- vandamál einstæðra foreldra. Það væri grófleg fölsun að segja að Steinunn væri einungis að „leika sér“ með hana. Til 118 TMM 1996:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.