Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 11

Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 11
 ský 11 hæðir. Jón Páll og Torfan (Torfi Magnússon) sem var einnig stundum nefndur Loðfíllinn, minnir mig, stóðu á efsta stigapalli og tóku tímann. Þannig að ég var í fínu formi kasólétt!“ Barngóður og fordómalaus Samband Jonnu og Jóns Páls gekk ekki upp og þegar Sigmar Freyr var aðeins tveggja ára gamall slitu þau samvistum. „Jón Páll var blíður og góður við soninn og lagði mikla áherslu á að hann fengi hollan mat. Sigmar fékk ekki sælgætismola fyrsta árið og reyndar engan sykur eða salt og held ég að hann búi að því. En því miður var Jón Páll svo mikið í burtu og missti þar af leiðandi dálítið af uppvextinum. Eftir að við skildum heimsótti hann þó Sigmar reglulega og drengurinn fór oft til pabba síns þegar hann var á landinu. Jón Páll var reyndar góður við öll börn og hann reyndist til að mynda dóttur minni, Söru Bjarneyju, líka afskaplega vel en hún er fimm árum yngri en Sigmar Freyr,“ segir Jonna. Þegar Jonna er spurð um mannkosti Jóns Páls verður hún fljót til svars: „Jón Páll hafði einn mjög mikilvægan eiginleika og það er að hann var mjög laus við fordóma og slúðraði ekki um fólk. Hann gerði að gamni sínu, gaf fólki nöfn en það var allt í góðu og þessi nöfn loða gjarnan við enn. Þetta var svona Jakabóls-lyftingahúmor en þar fengu flestir viðurnefni og voru held ég allir ánægðir með það.“ Vinirnir Geoff Capes og Jón Páll takast á í sjómanni. Vaxtarræktarma›urinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.