Ský - 01.02.2007, Page 11
ský 11
hæðir. Jón Páll og Torfan (Torfi Magnússon) sem var einnig
stundum nefndur Loðfíllinn, minnir mig, stóðu á efsta stigapalli
og tóku tímann. Þannig að ég var í fínu formi kasólétt!“
Barngóður og fordómalaus
Samband Jonnu og Jóns Páls gekk ekki upp og þegar Sigmar Freyr
var aðeins tveggja ára gamall slitu þau samvistum.
„Jón Páll var blíður og góður við soninn og lagði mikla áherslu
á að hann fengi hollan mat. Sigmar fékk ekki sælgætismola fyrsta
árið og reyndar engan sykur eða salt og held ég að hann búi að því.
En því miður var Jón Páll svo mikið í burtu og missti þar af
leiðandi dálítið af uppvextinum. Eftir að við skildum heimsótti
hann þó Sigmar reglulega og drengurinn fór oft til pabba síns
þegar hann var á landinu. Jón Páll var reyndar góður við öll börn
og hann reyndist til að mynda dóttur minni, Söru Bjarneyju, líka
afskaplega vel en hún er fimm árum yngri en Sigmar Freyr,“ segir
Jonna.
Þegar Jonna er spurð um mannkosti Jóns Páls verður hún fljót
til svars:
„Jón Páll hafði einn mjög mikilvægan eiginleika og það er að
hann var mjög laus við fordóma og slúðraði ekki um fólk. Hann
gerði að gamni sínu, gaf fólki nöfn en það var allt í góðu og þessi
nöfn loða gjarnan við enn. Þetta var svona Jakabóls-lyftingahúmor
en þar fengu flestir viðurnefni og voru held ég allir ánægðir með
það.“
Vinirnir Geoff Capes og Jón Páll takast á í sjómanni.
Vaxtarræktarma›urinn.