Ský - 01.02.2007, Blaðsíða 47
Í Háskólanum í Reykjavík er boðið upp á nám í iðnfræði sem er hagnýtt 45 eininga nám á háskólastigi, með það að markmiði að styrkja stöðu nemenda
á vinnumarkaði og gera þá hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf.
Steinþór Gunnarsson húsasmíðameistari, sem hefur umsjón með fasteignum
Landspítala-Háskólasjúkrahúss, stundar fjarnám í byggingariðnfræði við HR. og á
fjórðu önn og gerir ráð fyrir að ljúka því á næsta ári með lokaverkefni.
„Fjarnám hentar mér vel þar sem ég er í fastri vinnu og hef ég reyndar beðið
lengi eftir að þessi möguleiki opnaðist. Það er ekki einfalt mál að þurfa að fara úr
góðri vinnu til að stunda staðarnám í nokkur ár og síðan aftur á byrjunarreit á
miðjum aldri en mér líkar vel námið við HR, þar starfa margir hæfir kennarar og er
það einn mesti styrkur skólans að bæði er um fastráðna kennara að ræða og einnig
eru margir þeirra sóttir út í atvinnulífið. Kennsluvefurinn er vel upp byggður og er
tiltölulega auðvelt að fylgjast með, sækja efni og skila verkefnum. Upplýsingaflæði
til fjarnema er gott og ekki mikil hætta á að upplýsingar fari fram hjá þeim.“
Að mati Steinþórs eru kostirnir við námið fjölmargir og eiginlega engir gallar:
„Hægt er að haga náminu að töluverðu leyti eftir eigin höfði og velja sér þann
hraða sem hentar hverju sinni. Það er varla hægt að kalla það ókosti þótt námið sé
stundum einmanalegt og geri þær kröfur til nemenda að þeir starfi sjálfstætt, enda
á það raunar við allt nám á háskólastigi. Þó geta nemendur, ef þeir vilja, unnið
að einhverju leyti saman séu þeir í þéttbýli og einhver nálægur í sama námi. Fyrir
hina er hægt að nýta sér umræðuþræði á námsvefnum og fá þannig stuðning frá
samnemendum eða kennurum.“
langaði mikið að bæta við mig menntun.
Ég var að spá í hvað ég ætti að gera
þegar ég sá auglýsingu frá Háskólanum í
Reykjavík þar sem meðal annars var auglýst
tölvunarfræðinám sem hægt er að stunda
í fjarnámi. Fannst mér það henta vel sem
viðbót við viðskiptafræðimenntun mína og
skellti mér í námið sem ég hef nú nýlokið.”
Um námið sjálft segir Elín: „Þetta er
alvöru nám og eins gott að skipuleggja
tímann sinn vel, eigi ekki að fara illa.
Það eru gerðar sömu kröfur til nemanda í
fjarnámi og þeirra sem eru í dagskóla. Við
tökum sömu próf. Kostirnir við fjarnámið
í HR eru margir, ég get nefnt sem dæmi að
fyrirlestrarnir eru teknir upp og þú getur
alltaf nálgast þá á netinu þegar þér hentar
í stað þess að mæta á einhvern ákveðinn
stað sem er með fjarfundaútbúnað, eins og
þekkist víða, og sitja fyrirlesturinn. Annar
kostur við námið var að ég þurfti ekki að
fara úr minni heimabyggð til að taka próf,
þurfti aðeins að fara til Ísafjarðar þar sem
Fræðslumiðstöð Vestfjarða er. Þá eru alltaf
í gangi verkefni sem halda manni við efnið.
Ég gerði strax miklar kröfur til námsins
og get ég ekki annað sagt en að allar þær
kröfur hafi staðist. Námið hefur veitt mér
mikið og aukið víðsýni mína sem starfandi
viðskiptafræðingur.“
Elín segir mikilvægt fyrir þann sem
stundar fjarnám að vera í sambandi við
aðra sem eru í sams konar námi: „Ég hafði
samband við systur mína og fékk hana
með mér og við fylgdumst að og ég mæli
eindregið með því að sá sem ætlar í fjarnám
reyni að kynnast einhverjum sem er á sömu
leið. Það gerir aðeins gott.“
Fyrir þá sem eru að hugsa um fjarnám segir
Elín: „Fyrst og fremst að vera skipulagður og
breyta sem minnst lífsmunstrinu. Ef miklar
breytingar verða á lífinu meðan á námi
stendur þá er hættan meiri á að gefast upp
og þó að stundum sé á brattann að sækja þá
er uppskeran mikil.“
ský 47
Steinþór er spurður hvort námið opni honum möguleita
til að breyta til: „Það væri ef til réttara að spyrja einhverja
mér yngri nemendur þessarar spurningar. Í mínu tilfelli er
drifkrafturinn fyrst og fremst löngunin eftir að gera betur
í núverandi starfi, sem stjórnandi verklegra framkvæmda.
Þá opnast einnig sá möguleiki að geta tekið að sér meira
krefjandi verkefni og gera þannig starfið fjölbreyttara.
Iðnfræðingum bjóðast að sjálfsögðu margvísleg störf
bæði sem byggingarstjórar við mannvirkjagerð, á verk-
fræðistofum og víðar. Ég get hiklaust mælt með þessu
námi, það er krefjandi, en jafnframt mjög gefandi. Þegar
byrjunarörðugleikarnir, sem allir lenda í, eru að baki er þetta
bara gaman.“
Steinþór Gunnarsson húsasmíðameistari
stundar fjarnám í iðnfræði við HR:
KREFJANDI EN JAFNFRAMT
GEFANDI NÁM
Steinþór Gunnarsson segir námið skemmtilegt þegar
byrjunarörðugleikar séu að baki.
sky
,