Ský - 01.02.2007, Síða 60
60 ský
Leonardo DiCaprio hefur með hverju árinu verið að sanna sig sem einn besti leikarinn í Hollywood, þvert ofan á
það sem margir spáðu eftir að hann sló í gegn
í Titanic. Þegar Titanic var ekki fylgt eftir
með vinsælum kvikmyndum var fljótlega farið
að tala um hann sem strákling sem myndi
fara flatt á frægðinni. Annað hefur komið á
daginn. Leikhæfileikar hans eru ótvíræðir og
má segja að í dag fái hann viðurkenningar og
verðlaun fyrir hvert það kvikmyndahlutverk
sem hann leikur. Að vísu er ekki slæmt að vera
uppáhaldsleikari Martins Scorsese og er enginn
vafi að Scorsese hefur átt sinn þátt í að ná því
besta út úr honum.
Samstarf DiCaprios og Scorsese er
athyglisvert og þótt Scorsese eigi vissulega
sinn þátt í velgengni DiCaprios með því að
veita honum bitastæð hlutverk í Gangs of
New York, The Aviator og The Departed, þá
hefur frammistaða DiCaprios ekki verið síðri
í Catch Me If You Can og Blood Diamond,
en þessar fimm kvikmyndir eru allar gerðar á
síðustu fimm árum og hafa gert hann aftur að
eftirsóttasta leikaranum í Hollywood, leikara
sem allir vilja vinna með.
Frægðin og viðurkenningarnar sem hlaðast
á DiCaprio hafa þó ekki breytt honum. Hann
segist alltaf vera sami strákurinn sem þykir
best að borða heima hjá mömmu og ef hann
er ekki í faðmi súpermódela sem hann hefur
verið orðaðar við, þá eyðir hann hátíðisdögum
í faðmi fjölskyldunnar.
Æskuárin í hverfi
eiturlyfjaneytenda
Leonardo DiCaprio fæddist 11. nóvember
1974 og er því 32 ára. Hann hefur í raun aldrei
gert neitt annað en að leika. Nafnið Leonardo
gaf móðir hans honum þegar hann gaf henni
spark í móðurkviði á meðan hún var að horfa
á málverk eftir Leonardo Da Vinci, eða svo
segir sagan. DiCaprio ólst síðan upp hjá móður
sinni í Echo Park í Los Angeles sem var á
þessum árum þekkt eiturlyfjabæli.
„Ég ólst upp nánast í hringiðu eiturlyfja og
glæpa sem hafði afgerandi áhrif á mig. Það að
ég hef ekki leiðst út í eiturlyf vil ég þakka því
sem ég kynntist. Ég fór aldrei út úr húsi án þess
að sjá einhvern heróínneytanda ráfandi um
göturnar, seljendur vera að koma eiturlyfjum
í umferð eða ungar vændiskonur selja sig til
að eiga fyrir eiturlyfjum. Ég hugsaði sem svo
að færi ég að gera tilraunir með eiturlyf yrði
ekki aftur snúið og ég yrði aldrei sami maður
eftir það. Móðir mín sá svo til þess að ég fékk
inngöngu í góða skóla þar sem ég stóð mig
ekkert mjög vel, en passaði upp á að sitja hjá
einhverjum sem var mjög gáfaður.“
Barn að aldri lék DiCaprio í auglýsingum.
Fimmtán ára gamall er hann farinn að leika
gestahlutverk í ýmsum sjónvarpsseríum
og átján ára gamall lék hann í sinni fyrstu
kvikmynd, This Boy’s Life á móti Robert
De Niro og Ellen Barkin. Myndin náði ekki
miklum vinsældum en DiCaprio stóð uppi
sem sigurvegari og ekki þótti síðri frammistaða
hans í What’s Eating Gilbert Grape, þar sem
mótleikari hans var Johnny Depp. Fékk hann
sína fyrstu óskarstilnefningu fyrir leik sinn
í þeirri mynd. Næst reyndi DiCaprio að fá
hlutverk á móti Tom Cruise í Interview With
a Vampire (1993), en tapaði fyrir Christian
Slater og er það í annað af tveimur skiptum
sem hann hefur misst af hlutverki sem hann
hafði áhuga á. Hitt hlutverkið var Robin í
Batman Forever, (1995) sem Chris O’Donnell
hreppti.
Titanic breytti miklu
Leonardo DiCaprio var á hægri en öruggri
uppleið þegar James Cameron bauð honum
aðalhlutverkið í Titanic. Hafði hann nýlokið
við að leika í Romeo + Julia, sem sló í gegn
og var með tilboð í höndum um að leika
Dirk Diggler í Boogie Nights. Hann valdi
Titanic en Mark Wahlberg brá sér í hlutverk
klámstjörnunnar og sló í gegn..
Óþarfi er að dvelja lengi við Titanic.
Myndin skaut DiCaprio upp í efstu hæðir og
framtíðin var björt. Eitthvað virðist þó frægðin
hafa leikið hann grátt um tíma og ekki hægt
að segja að hann hafi valið réttu hlutverkin í
framhaldinu. Næstu myndir hans, The Man
in Iron Mask og The Beach, þóttu mistakast
að flestu leyti og áhorfendur létu sig vanta.
DiCaprio tók sér gott frí í kjölfarið og mætti
síðan tvíefldur til leiks í Gangs of New York og
var fljótur að vinna sig aftur á toppinn.
Það getur verið hættulegt fyrir sálina að vera
kvikmyndastjarna og Leonardo DiCaprio gerir
sér grein fyrir því: „Um leið og allir fara að hrósa
Leonardo DiCaprio
– hefur ekki látið frægðina hafa áhrif á sig og
á síðustu árum hefur hann sannað sig sem einn allra
besti ungi leikarinn í Hollywood.
Leonardo DiCaprio hefur fengið mikið
lof fyrir leik sinn í The Departed þar sem
hann leikur ungan lögreglumann sem
potar sér inn í raðir glæpagengis til að
afla sannana.
Martin Scorsese ræðir við Leonardo
DiCaprio meðan á tökum á The Aviator
stóð. Þeir hafa gert saman þrjár
kvikmyndir á fjórum árum.
Kvikmyndir