Allt um íþróttir - 01.12.1951, Síða 8
litlum, svörtum kettlingum, sem
héldu hver í rófuna á öðrum, koma
inn um gluggann og inn á gólf.
Ég varð hálfhræddur og flýtti mér
að kveikja ljós. Síðan fór ég inn
í baðherbergið og þvoði mér í
framar upp úr eins köldu vatni og
þar var að fá. Er ég kom inn í
herbergið aftur, sá ég enga ketti,
en svo ruglaður var ég, að ég fór
að leita alls staðar, meðal annars
xmdir rúmi og inni í klæðaskáp.
Ég átti mjög erfitt með að sofna
á nætumar, og loksins, er ég gat
blundað, hrökk ég brátt upp aftur
við vondan draum, því að hitinn
inni í herberginu var venjulega
um 35 stig.
Okkur útlendu keppendunum
var boðið að skoða helztu sögu-
staði og söfn í Aþenu, og þótti
okkur tilkomumest að skoða Par-
366
IÞRÓTTIR