Dagrenning - 01.02.1948, Page 18

Dagrenning - 01.02.1948, Page 18
JÓNAS GUÐMUNDSSON: Hvað gerðist 2. jamuiar 1948? i. í ágústhefti Dagrenningar f. á. skrifaði ég grein undir fyrirsögninni „2. janúar 1948“. Benti ég þar á, að samkvæmt „reiknaðri línu- dagsetningu" í Pýramidanum mikla liti svo út sem 2. janúar 1948 mundi verða þýð- ingarmikill dagur á leið þjóðanna niður í „botnlausa pyttinn" í neðanjarðarsal Pýra- midans rnikla. Ég sýndi frarn á, að síðan á árinu 1941, er var „lausnarár“ síðustu ættkvísla ísraels úr liinni miklu kúgun „heiðinna þjóða“, og umskipta-ár ófriðarins frá 1939—1945, sýndu „dagsetningar pýramidans greinilega tvær að- greindar línur í spádómum hans“, og að þessar línur mætti nefna „engilsaxnesku lín- una og rússnesku línuna“. Rakti ég þetta allt nánar í greininni og sýndi fram á, hvernig hver dagsetningin fyrir sig félli á línur þess- ar. Vísa ég lesendunum til þessarar greinar, til þess að komast hjá of miklum endur- tekningum nú. Þó skulu þessi ummæli tekin orðrétt upp: „Reiknaða línudagsetningin verður því 150 dögum síðar, eða 2. janúar 1948. Hún verður eins og hinar fyrri, sem sýndar eru hér að framan, á „rússnesku lín- unni“. Höfuðatburðuiinn þann 'dag — eða næstu daga þai í kring — veiðui því á ein- hvein ábeiandi bátt í sambandi við Rússa.“ (Leturbr. þar.) dag gerðist einn athyglisverðasti atburður síðustu ára. Atburður, sem Rússar fram- kölluðu og sem því greinilega mun skrifast á þeirra „línu“,þegar spádómarnir verða síðar raktir og bornir saman við gang sögunnar. Mönnum er nokkur vorkunn almennt, þótt þeir spyrji þessarar spurningar, því að tvö eða þrjú af dagblöðunum í lleykjavík fluttu ekki fréttina. Þeim þótti hún ekki merki- legri en það. En svona er þetta raunar oftast, að stórtíðindabragur er lítill á þeim frétt- um, sem örlagaríkastar reynast að lokum. Ríkisútvarpið, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn fluttu frétt þessa öll. Útvarpið 3. og 4. jan., en Alþýðublaðið og Þjóðviljinn 4. janúar. Eins og vænta mátti, var það blað hinnar rússnesku utanríkisþjónustu, sem mest gerði úr fréttinni, því að það blað skildi bezt þýð- ingu hennar. Það birti liana feitletraða á fremstu síðu, eins og myndin sýnir, sem hér með fylgir. Það, sem gerðist 2. janúar 1948, var, að stjórn Bandaríkjanna gerði alheimi kunnugt þann dag, að hún liefði — af ótta við yfir- gang Rússa og leppríkja þeirra — ákveðið að senda landgöngulið til Miðjarðarhafs- landa, sem þar vrði tiltækt, ef í odda kynni að skerast þar um slóðir. í frétt Þjóðviljans er þetta orðað þannig: „Bandaríska flotamálaráðuneytið hefur tilkynnt, að sendar hafi verið sveitir bandarísks landgönguliðs til Miðjarðar- hafsins og hafi þeir fyrst um sinn að- setur á fjórum herskipum." (Þjóðv. 4. janúar 1948.) II. Margir liafa spurt mig: „Gerðist nokkuð 2. janúar?“ Menn hafa ekki komið auga á það enn, margir hverjir, að einmitt þann 12 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.