Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 32

Dagrenning - 01.02.1948, Blaðsíða 32
ungur, er ríkti í Palestínu. Hann var af ætt Davíðs. Hann var 21 árs að aldri, er liann varð konungur, og ríkti í ellefu ár. Fyrir- rennari hans var Jójakin er átti í ófriði við Nebukadnesar Babyloníukonung, en beið ósigur og var handtekinn og fluttur í útlegð ásamt flest öllu fyrirfólki þjóðarinnar. [,,Og hann herleiddi Jójakin til Babel; og konungs- rnóður og konur konungsins og hirðmenn hans og höfðingja landsins herleiddi hann og frá Jerúsalem til Babel.“ (II. Kon. 24., 15.—16.)] Föðurbróðir Jójakins varð þá kon- ungur yfir leifum Júda og Benjamíns og var nafni hans breytt og hann kallaður Zedekia. Zedekia sór Nebúkadnesar hollustueið, en hann „brá trúnaði við Babel-konung“ síðar og því kom Nebukadnesar enn til Jerúsalem (um 586) og settist um borgina. Endaði sú umsát þannig, að Zedekia var handtekinn og fluttur til Ribla, þar sem Nebúkadnesar hafði herstöðvar sínar. Þar var Zedekia dæmdur. Sjálfur var hann „blindaður og bundinn eirfjötrum" og flutt- ur þannig til Babylonar. Þar sat hann í fangelsi það sem eftir var ævinnar. En Babel-konungur gerði meira: Hann lét drepa alia sonu Zedekia, að hon- um ásjáandi, og mun þannig hafa hugsað sér að útrýma konungsætt Davíðs. Lét hann þá og flytja til Babýlonar allt, senr eftir var af flutningsfæru fólki, er ekki hafði flúið, en yfir landið setti hann „vildarþjón" sinn, lífvarðarforingjann Nebúsaradan, er fékk það hlutverk að flytja burt það, sem eftir var fémætt í borgum landsins og safna þeim saman. sem enn voru eftir af einhverjum ástæðum og herleiða nrátti til Babylonar. # En þótt herleiðingin væri nær algjör, virð- ist svo sem nokkuð af flóttafólki hafi aftur leitað til Jerúsalem og er einn þeirra, sem hclstur er nefndur fyrir þessu fólki, Jóhanan Kareason. Jeremía spámaður var einn þeirra, sem ekki var herleiddur. Er augljóst af spá- dómsbók hans, að hann hefir verið nrjög handgenginn konunginum, Zedekia, og fjöl- skvlan hans. Ilefir augsýnilega komið til rnikils ágreinings milli Jóhanans Kareasonar og félaga hans annars vegar og Jeremía spá- manns og Barúks nokkurs Neriasonar hins vegar um það, hvort lcifarnar af Júda skyldu flýja til Egyptalands eða vera kyrrar og sjá til hvað gerðist. \7irðist Jeremía hafa verið því mjög andvígur, að flúið yrði til Egy'pta- lands. Benda til þess eftirfarandi ummæli í 42. kap. Jerenría spádómsbókar: „Drottinn hefir svo til yðar talað, þér Júda-leifar: Farið eigi til Egyptalands! Vita skuluð þér, að nú hefi ég varað yður við.-----Og vita skuluð þér nú, að þér munuð deyja fyrir sverði, af hungri og drepsótt á þeim stað, þangað sem yður lystir að fara, til þess að dveljast þar sem útlendingar." (Jer. 42., 19.—22.) En Jóhanan Kareason og félagar hans — „ofstopafullu mennirnir“ — voru á annarri skoðun. Þeir sögðu við Jeremía: „Þú talar lýgi! Drottinn, Guð vor, hefir eigi sent þig og sagt: Þér skuluð eigi fara til Egyptalands, til þess að dveljast þar sem útlendingar! heldur egnir Barúk Neriason þig upp á móti oss, til þess að selja oss á vald Kaldeum, að þeir drepi oss eða herleiði til Babel.“ (Jer. 43., 1. -4-) Það er merkilegt að athuga þessa deilu. Jeremía og Barúk vilja fyrir alla muni forð- ast Egyptaland, en hafa sýnilega getað búizt við, að leifarnar yrðu allar fluttar til Babý- lonar. Jeremía hafði sagt það fyrir, að Júda yrði fluttur til Babýlonar og mundi dvelja þar í 70 ár, en fá þaðan aftur heimfararleyfi að Jaeim tíma liðnum. (Jer. 25., 9.-12.) Barúk er einnig þessarar skoðunar. Þeir trúa spádómsorði Drottins. Hinir eru á allt ann- arri skoðun. Þeir treysta á hjálp Egypta- 26 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.