Dagrenning - 01.02.1948, Síða 41

Dagrenning - 01.02.1948, Síða 41
þær frá Evrópu og þarna býr ísraelslýður á þeim stað, sem honum hefir verið valinn, „eðalsteinn í silfurumgjörð sævar“. En þessi tuttugu og fimrn rnílna breiði sær var Hitler erfiður draumur. # Síðar í spádómnum er það staðfest, að steinríki þetta er þjóð — stjórnarfarslega og landfræðilega séð —, þjóð með stjórn og landrými á þessari jörð. Daníel hlotnuðust tvær vitranir um fram- tíðarsögu Evrópu. Önnur er þessi, sem um getur í öðrurn kapítula, en frá hinni er greint í sjöunda kapítula. Önnur vitrunin er lík- neskið fjórskipta; hin vitrunin er fjögur dýr. Báðar vitranirnar sýna sömu fjögur, stóru heimsveldin, og í báðunr vitrununum fara þau versnandi, annars vegar frá gulli í leir, hins vegar var fyrst vængjað ljón, þá bjarn- dýr, síðan pardusdýr og loks kynblendings skrímsli með tíu hornurn. Lesið vitrun þessa til enda og þá sjáið þér, að svo sem þjóð steinríkisins eru gefin yfirráð á jörðu í ann- arri vitruninni, svo er og í hinni vitruninni, „þeim heilögu hins hæsta" gefið ríki, sem er ævarandi. # Eigi skynsemi og rökhugsun að ljúka verki sínu, og ég á við rökhugsun í staðrevndum, þá hlýtur ríki steinsins í lieimi vorurn nú á dögurn að vera „Hús ísraels“. Steinríkið í spádómnum átti að „uppfyíía jöiðina“. Eigi að síður er oss annars staðar skýrt frá því, að „Hús ísraels“ eigi að uppfylla og erfa jörðina. Tveir geta ekki samtímis erft sama hlutinn og átt. Þessir tveir hljóta því að vera einn og hinn sarni, ef rökfræðilega rétt er skýrt. Ekki geta verið tvö alheimsríki samtímis. Af þessu leiðir þá, að ísrael hlýtur um þessar mundir að vinna að því að afmá og uppræta alla einræðisherra. Ekki geta bæði einræðisherrarnir og ísrael erft jörðina, ekki geta báðir haft yfirráðin. Vér sjáum brugðið upp mvnd af leikslokunum miklu í 35. versi: „Steinninn, sem Iosnaði úr fjallinu án þess að mannshönd snerti hann, molaði járnið, eirinn, leirinn, silfrið og gullið. Þá muldist sundur járnið, leirinn, eirinn, silfrið og gull- ið, allt í senn.“ Athugið orðin „allt í senn“. Þau fela í sér söguna urn það, er leifar heiðnu þjóðanna og Babvlon-skipanarinnar sameinast að lokum í eina mikla heild. # I þessum þremur einsatkvæðisorðum — allt í senn — er fólgin saga þessara mánaða, sem nú eru að líða. Vér erum uppi á mikil- fenglegustu eykt sögunnar. Vér erurn að korna að lokaþætti spádómsins. Vér sjáurn nú hina síðustu miklu sameiningu leifanna af heiðnu þjóðunum. Rússar eru nú önnum kafnir við að safna saman leifunum, scm verða malaðar sundur. Stalín myndi áreið- anlega gnísta tönnum, svo að honurn veitti ekki af að leita til góðs tannlæknis, ef hon- um væri það ljóst, að hann væri að láta spádómsorð Guðs rætast. AUar leifarnar af þjóðum likneskisins munu enn safnast gegn engil-saxnesku þjóð- unum. Er þér sjáið Rússa beint eða óbeint með Þjóðverjum, er þér sjáið Spánverja, Portúgalsmenn eða Tyrki safna sér um ein- ræðisherra sína, þá vitið þér að skammt er til leiksloka og spádómurinn rætist á böm- urn Guðs. Þá farið þér að rita grafskriftina: „Molað sundur allt í senn.“ Þá getið þér að nýju athugað 34. vérs þessarar Ritningar: „Þú horfðir á það, þar til steinn nokk- ur losnaði ... hann lenti á fótum lík- neskisins ... og molaði þá.“ Yður mun endast ævi til þess að sjá þetta. Yður mun endast aldur til þess að sjá, að þjóð sú, sem yður hefir alið, fyllir alla jörð- ina. Hún mun endurheimta Afríku og ná yfir nriðja Austurálfu. Þess verður ekki langt DAGRENN I NG 33 i

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.