Dagrenning - 01.12.1948, Side 3
6. TOLUBLAÐ
3. ÁRGANGUR
DAGR
Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavik. Sími 1196
■fjr BREZKU TÍMARITI birtist 7iýlega sem forustugrein hugvekja sú, sem hér I
fer á eftir i lauslegri íslenzkri þýðingu og nokkuð stytt. Greinin nefnist þar
„Oþinber þjónusta“, og er á þessa leið:
„Því er oft haldið fram, að ekki sé rétt að blanda saman trúmálum og
stjórnmálum. Frá voru sjónartniði er slik staðhœfing eða röksemd af illum toga
og alröng, þvi að það er staðreynd, að ávextir sérhverrar demókratiskrar stjórn-
mála- og fjármálastefnu fara eftir þeim andlegu hugsjónum eða hugmyndum,
sem það fólk hefir, er stefnunni fylgir. Þar sem ekkert andlegt Ijós skin, en
jarðneskur hugsunarháttur er allsráðandi, verða ávextirnir grceðgi, óráðvendni
og tortryggni i stað umburðarlyndis, ráðvendni og gagnkvams trausts.
Það er vafalaust, að um allan heim er nú þegar mikill skortur flestra lifs-
nauðsynja. Sir John Bayd Orr hefir bent á, að framtíðarhcettan sé ekki ný
styrjöld, heldur skorturinn. Það er þvi greinilegt, að eigi allur þorri mann-
kynsins að lifa skortinn af, verður að taka upþ alheimsskömmtun á nauðsynja-
varningi og hún verður að haldast, þar til framleiðsla lifsnauðsynja hefir aukizt
mikið fram yfir það, sem nú er.
Frá sjónarhóli veraldarhyggjumanna krefjast slikar aðgerðir alheimsskipu-
lagningar með tilheyrandi skömmtunarseðlum, skömmtunarbókum, eyðublöð-
um og skýrslum i fleiri og fleiri samritum, þvi sifellt þarf að bceta við nýjum
og nýjum upplýsingum. Slik skipulagning þarfnast alheimskerfis og alheims-
eftirlits, sem ncer yfir allar greinir mannlegra nauðsynja og krefst meiri og meiri
opinberrar þjónustu. Og þegar sú opinbera þjónusta er einu sinni hafin, fer
hún sivaxandi og vex eins og snjóbolti, unz vöxturinn reynist óstöðvandi, og
þjóðfélagið brotnar niður undan ofurþunga hennar.
Rikisstjórnin (i Bretlandi) hefir nú tilkynnt, að hún hafi i hyggju að fcekka
stórlega fólki i opinberri þjónustu i sparnaðar skyni, en slikt fólk er nú um
það bil helmingi fleira en fyrir tiu árum. Jafnframt er frá þvi skýrt, að hin
ýmsu ráðuneyti eigi við mikla örðugleika að etja i framkvcemd þessarar ákvörð-
unar og vafasamt sé, hvort takast muni að framkvæma ákvörðun rikisstjórnar-
innar nema að litlu leyti.
Frá voru sjónarmiði er aðeins tihein lausn á þessu vandamáli og hún á ekki
aðeins við um Bretland, heldur um alla veröld vora, hvað þessi efni snertir,
og lausnin er an d l e g endurfceðing (spiritual renaissance).
ENNING
REYKJAVIK
DFRFMRFR 1OAR
DAGRENNING 1