Dagrenning - 01.12.1948, Síða 26

Dagrenning - 01.12.1948, Síða 26
koma upp við Dauðahafið og til þess að geta hagnýtt hinar miklu auðlindir þess, og loks væri hún þeim nauðsyn- leg í sambandi við það að koma fram- leiðsluvörum sínum frá svæðunum um- hverfis Dauðahafið niður að Akvab-fló- anum og væri þannig „hlið ísraels til austurs“.“ „Negeb er framtíð ísraels," sagði Shertok, „þess vegna getum við ekki lát- ið hana af hendi né verzlað með hana við neinn.“ Skömmu eftir að Bretar höfðu gefið þá yfirlýsingu, að þeir gætu fallizt á skiptingu Palestínu samkvæmt tillögum Bemadottes greifa, breyttu Bandaríkin nokkuð afstöðu sinni frá því, sem verið liafði áður og kernur hin nýja afstaða þeirra vel fram í eftirfarandi fregn, sem birt var 20. nóvember s.l.: „París í gærkvöldi. Jessup, fulltrúi Bandaríkjanna í stjórn- málanefnd S.Þ., skýrði frá því í dag, að Bandaríkjamenn væru andvígir því að Negeb-svæðið í Palestínu yrði tekið af Gyðingum án samþykkis þeirra. Að öðru leyti kvað hann Bandaríkjamenn í aðal- atriðum samþykkja sáttatillögur Bema- dotte greifa, en sagði að Bandaríkin gætu þó enga endanlega afstöðu tekið til þessa máls fyrr en Marshall og Tra- man hefðu ræðst við, en það verður næstkomandi mánudag. Bretar hafa þegar lýst sig fylgjandi því, að Sameinuðu þjóðimar fallist í öllu á tillögur þær, sem Bernadotte sendi þeim skömmu áður en hann var myrtur. — Reuter.“ Eins og sjá má af þessu, eru nú Bretar og Bandaríkjamenn að ná saman í Palestínu- málinu, en þar var sú glufa, sem Rússar hafa reynt að breikka milli þeirra eins og þeim hefir verið unnt. Það er merkileg til- viljun, að einmitt þetta skyldi gerast dagana kringum 11. nóvember. Nú þegar þetta er ritað (í desember), eru líkumar á sáttum í Palestínu taldar með bezta móti. Vafalaust munu þó Arabaríkin kunna þessum málalokum illa og eflaust snúast Rússar á sveif með þeirn gegn Gyð- ingum, þegar Bandaríkjamenn og Bretar liafa náð að sameinast, Gyðingum til styrkt- ar. En um það verður ekki rætt hér að þessu sinni. Það fór því nákvæmlega eins og til var getið, að einnig þessa daga mundi draga til meira samstarfs milli ísraelsmanna og Júda- ættkvíslar (Gyðinganna) en áður hefði verið. IX. Sameining ísraelsþjóðanna í eina heild hljóta óhjákvæmilega að fylgja ýmis konar mótaðgerðir af hálfu þeirra þjóða, sem ekki eru ísraelsþjóðir og þá alveg sérstaklega af liálfu Rússa, sem eru sú þjóðin, er á að hafa forustuna fvrir „hinum heiðnu þjóðum“ í lokaárásinni á Ísraelsríki hið nýja. Samkvæmt því hefði átt að bera á því einmitt um þetta sama leyti, að nýjar blikur tæki að draga á loft, einkum hjá þeim ríkj- um, sem Engilsaxar höfðu vænt sér einhvers trausts og halds hjá. Þegar spurt er: H\'aða þjóðir gætu það verið? er aðeins um eitt svar að ræða. Það eru Frakkland og Kína. Þessi ríki era enn talin með stórveldum, þó að gengi þeina beggja sé nú ekki mikið hjá því, sem áður var. En nú gerist það einkennilega einmitt þessa sömu nóvemberdaga, að í ljós kemur alvarlegasti ágreiningurinn, sem enn hefir gert vart við sig milli Engilsaxa annars vegar og Frakka hins vegar. Hinn 11. nóvember síðastliðinn vora 30 ár liðin frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar, er Þjóðverjar urðu að 24 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.