Dagrenning - 01.12.1948, Side 9
þjóð sína frá syndum hennar, og móðirin
skyldi ævarandi blessunar njóta.
Komanda tímar verða að leiða það í ljós,
livort þetta reynist sannleikur. Það liafa ver-
ið svo margir svikarar hér í heirni og svo
oft gengið sögur um að mikil undur hafi
gerzt við fæðingu barna og þær reynst ein-
ber hégómi, að þetta getur verið fals eitt.
Ef til vill er konan að reyna að dylja smán
sína eða leitast við að vinna hvlli Gyðing-
anna.
Mér er tjáð að hún muni verða yfirheyrð
samkvæmt lögum vorum, og geti hún ekki
fært betri sannanir fyrir skírlífi sínu en þær,
sem Melker hefir fengið, verður hún gn'tt
svo sem lög vor mæla fyrir, þótt Melker
segi að aldrei hafi gerzt jafn augljós guðleg
fyrirbrigði við fæðingu nokkurs barns. Það
hefir alloft komið fyrir áður, að meyjar hafa
þótzt vera þungaðar af völdum heilags anda,
en það hafa engin himnesk ljós sézt, er þær
ólu börn sín og engar englaraddir hafa
heyrzt lýsa yfir því, að þar væri konungur
Gvðinga fæddur. Nú er það þessu til sann-
inda, að allur Betlehemslýður vottar að hann
hafi séð undrin og rómversku verðimir
spurðu einnig hverju þetta sætti, og var sýni-
legt á aðförum þeirra, að þeir voru mjög
skelfdir. Melker segir að ritningamar telji
allt þetta tákn um komu hans. Melker er
mjög lærður maður og þaulkunnugur spá-
dómunum og sendi ég vður bréf hans um
spádóma þessa.
2.
BRÉF MELKERS PRESTS í SAMKUNDU-
HÚSINU í BETLEHEM TIL ÆÐSTARÁÐS
GYÐINGA í JERÚSALEM.
Heilögu meistarar ísraels. Ég, þjónn yðar,
vil vekja athygli yðar á orðum spámannsins
um h'rirrennarann, og um vöxt og foringja
mikillar þjóðar og voldugrar, þar sem bæði
muni verða hið sanna réttlæti og leiðsögu-
rnaður hinnar ytri skipanar Guðs ríkis á
jörðu. Er vitrun Sakaria nægileg staðreynd
til þess að færa öllum mönnum heirn sann-
inn um að mikill atburður er í vændum,
og barn Elísabetar er upphaf að betri tím-
um.
Það, sem hér hefir gerzt á síðustu tímum,
og Jónatan mun skýra yður frá, er fullnaðar-
sönnun þess að frelsisdagur vor er skammt
undan. Þetta má rekja að þremur leiðum:
Fyrsta leið: Hin almenna athugun; upp-
runaleg aðstaða og örlög mannsins, sem ein-
staklings; frumkenninguna; fullkomna þrosk-
un mannkynsins; loforð föðursins til sátt-
málsþjóðarinnar; forustu þjóðflokkurinn
Júda. Önnur leið: Móselögmálið, og Móse-
viðhorfið; spádómur Bileams. Þriðja leið:
Hinn smurði; spádómar útlaganna, Haggai,
Sakaria og Malakia; spádómur Malakia um
fyrirrennara Drottins.
Göfugu meistarar ísraels. Ef þér athugið
nú hinar ýmsu greinar hins guðlega orðs, þá
fer ekki hjá því, að þér sjáið að allt það,
sem spámennimir hafa sagt um verk Guðs
á jörðu, hefir nú komið fram á síðustu dög-
urn, með fæðingu bamanna tveggja; bams
Elísabetar og bams Maríu í Betlehem.
Vegna þess ótakmarkaða frjálsræðis, sem
sumir menn leyfa sér gagnvart heilögu orði
Guðs, svo sem fyrr greindum spádómum,
verðurn vér fyrir óvægustu gagnrýni. Það er
hins vegar rnjög ánægjulegt að sjá og heyra
að guðlegur mikilleiki og gildi hinna helgu
spádóma er algerlega óháð skýringum hold-
legrar gagnrýni, en sty'ðst við innra 1 jós, sem
alls staðar ljómar út frá hiartastað djúp-
stæðrar, lífrænnar einingar og skyldleika-
böndum við ævarandi og sameinaða guð-
fræði, sem nær yfir alla tíma, bæði líðandi
stund og liðnar aldir, og tvö atvik, sem nú
eru nýskeð, varpa ljósi yfir allt hið liðna.
DAGRENNING 7