Dagrenning - 01.12.1948, Page 10

Dagrenning - 01.12.1948, Page 10
í sannleika rennur fortíð öll saman við það, sem nú blasir við augurn, og verk Guðs á liðnum öldum taka nú fyrst að skýra sig á vorum dögum, og það, sem nú gerist, er að færa oss á Guðs vegu hér á jörð. Vér berum lotningu fvrir þessum guðsmönnum og ætt- urn því ekki að misnota orðalag þeirra. Vér skulum taka til dæmis orð Jesaja, þar sem hann spáir fyrir herleiðingu ísraelsmanna í stað þess að hugga hina herleiddu. Lúta sum orð hans að komanda ástandi og orsökum til þess, en önnur eru ilmandi af huggun til ísraelsmanna, meðan þeir eru í útlegðinni, og rík af hinum blessuðu loforðum fyrir síð- ari tírna. En látum rtú spádóminn bera oss áfram með spámanninum til komanda tíma, langt yfir fvrri konungsríki þessa heims til dýrð- arríkrar framtíðar, án þess að skeyta um keis- ara Rómaveldis, konunga Babyloníu eða jafnvel Makkabea vora, en gleymum aldrei því, að spámaðurinn er guðlegri andagift gæddur og er talinn útvalinn og hæfur til þess að birta bæði vilja og þekkingu Guðs. Já, hann er „sjáandi". Spádómar hans eru sprottnir af vitrunum, sem grípa og gagn- taka alla hæfileika sálarinnar, og í afstöðu sinni við Guð er spámaðurinn utan við lík- ama sinn og óháður honum. Því lengra, sem sálin kemst frá líkamanum, því athafnasam- ari værður hún. Staðreynd þessi kemur glöggt fram í draumum vorum. Kraftar sálarinnar eru miklu athafnasamari í draumum vorum en nokkurn tíma endranær, skynjunin er gleggri og tilfinningarnar miklu nærnari, er vér sofum, heldur en í vöku. Vér sjáum og þessa rnerki hjá deyjandi manni. Augu hans verða venjulega skærari; sálin frjálsari og hann verður ósíngjarnari, er hann líður á braut og nálgast eilífa lífið. Þannig er spámaðurinn. Hann verður svo 'nátengdur Guði, að persónulegar ádeilur hans virðast óskammfeilnar, en það er ein- ungis Guðs kraftur, sem í honum býr og magnar sálina og leggur eld í orðin. Þannig var um það hrífandi spásagnarmál, sem ég vakti athygli yðar á. Mér virðist að þessir Drottins menn hafi glögglega séð hið vax- andi Ijós; Jreir sáu för meyjarinnar; þeir sáu ósjálfbjarga barnið í fjárskýlinu; þeir heyrðu hinn magnþrungna söng himneskra her- sveita; þeir sáu valdafýkn mannlegs eðlis í rómversku hermönnunum, sem reyndu að stytta baminu aldur, og Jreir sáu í ungbarni þessu mannlegt eðli í ósjálfbjarga og niður- lægðu ástandi og svo virðist, að þcir hafi séð vöxt þessa ungbarns til fullkomins manns. Eins og hann verður umræðuefni heimsins, skal tignareðli hans sigra allt; eins og hann sleppur nú frá rómversku drottnurunum, eins skal hann og að lokum hrósa sigri yfir heimi öllum, og jafnvel dauðinn sjálfur skal að vclli lagður. \Aér, sem Gyðingar, trúum um of á vtra útlit, en hugmynd sú, er vér öðlumst um konungsríki himins, er öll jarðnesks eðlis og bundin við form og siði. Spádómar þeir, er ég hefi vikið að, og margar aðrar greinar, sem ég gæti nefnt, benda ótvírætt til þess að Guðsríkið verði að eiga upphaf sitt hið innra með oss, í innra lifi og stjóma því, og frá innra eðli voru verða allar ytri at- hafnir vorar að renna í samræmi við opin- berað og ritað orð Guðs og boðorð hans. Þannig er um spádómsgáfuna, þótt hún noti liin líkamlegu talfæri, stjómar hún jafnframt öllum hæfileikum lífsins og skapar stundum reglulega hrifningu, ekki ósjálfráða, eða með- vitundarlausa, Jrótt vitundin losni um stund við ytri tengsli. Þannig er sagt að spámaður- inn tali orð Guðs til mannlegs lífs, eins og Bilearn gerði. Þetta eigum vér Gyðingar að telja hið allra mikilvægasta, og vér eigurn að vera þess minnugir, að spámenn Guðs eiga jafnt við framtíð og fortíð og ná til alls, sem mannlegt cr. Þegar þeir tala um sér- 8 -ÖAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.