Dagrenning - 01.12.1948, Page 41
NÆSTA ÁM
Síðan Dagrenning hóf göngu sína hefi ég
fylgt þeirri reglu að gera í árslokin stutt yfir-
lit yfir það, hvemig gengið hefir á árinu og
hvað ég hyggst fyrir á hinu komandi ári, í
sambandi við útgáfu Dagrenningar, og þykir
rétt að gera það einnig í þetta sinn.
Kaupendum Dagrenningar hefir fjölgað
nokkuð, sérstaklega úti urn land á árinu
1948, en í Revkjavík er lítil fjölgun fastra
kaupenda. Hins vegar hefir lausasala aukizt
nokkuð í Reykjavík og vegna hennar varð
að auka upplagið töluvert strax í ársbyrjun.
En lausasala er ótrvgg og hefir því farið svo,
að sum heftin hafa selzt nærri upp, en af
öðrum minna. Má því gera ráð fyrir því að
erfitt verði, er til lengdar lætur, að útvega
nýjum kaupendum árganginn 1948, en það
mun þó reynt, meðan kostur er.
Á árinu 1948 var pappírsskammtur Dag-
renningar minnkaður til muna og þess'vegna
m. a. varð ekki unnt að fjölga ritunum, sem
þó var ætlunin. Hins vegar tókst að ná í
pappír í „jólabókina", sem að þessu sinni
var „Forlagaspár Kírós“, og seldist hún nokk-
uð í Reykjavík fyrir jólin. Þar sem haldið
mun verða fast við pappírsskömmtunina á
árinu 1949 og skammturinn frekar minnk-
aður en aukinn, mun ekki rétt að gera ráð
fyrir fleiri heftum en 6 á árinu 1949.
#
Meðal greina þeirra, sem fyrirhugað er að
birtast muni á næsta ári í Dagrenm'ngu, má
nefna þessar: „Þrið/a heimsstyrjöldin“, „Ár-
ið 1949“ og „fsland og árið 1948“, allar eftir
ritstjórann og koma þær allar í 1. hefti 1949.
Enn fremur má gera ráð fyrir að nú komist
að greinin „Spádómstáknin hamar og sigð“,
sem lengi hefir beðið birtingar, og enn fremur
grein um „Spádómstímabilið frá 1948 til
1953“, sem ritstjórinn hefir einnig tekið sam-
an eftir ýmsum heimildum.
Svo sem menn geta séð af greininni hér
á undan um Norður-Atlantshafs bandalagið,
var árið 1948 lokaár á ákveðnum áfanga.
Árið 1949 verður því byrjunarár nýrrar þró-
unar og fyrir þær sakir hið merkasta á marga
lund, þótt þar séu ekki margar né miklar
eða greinilegar spádómsdagsetningar.
Ennfremur eru nú í undirbúningi þýðing-
ar á hinurn nýju bókum A. J. Ferris: Deliver-
ance from Russia (Frelsun undan oki Rússa)
og The Two /erusalems (Hinar tvær Jerú-
salem borgir), en báðar þessar bækur fjalla
um atburði yfirstandandi tíma í ljósi spá-
dóma Biblíunnar. Auðvitað koma margar
greinar aðrar í ritinu en þær, sem hér eru
taldar, og engin leið er að segja um nú.
Þessa er aðeins getið vegna þess, að það er
nú ákveðið.
#
Dagrenning mun hafa sama hátt á og að
undanförnu, að krefja árgjaldið, 50 krónur,
með x. hefti ritsins, sem kemur út í febrúar-
mánuði 1949. Þeir, sem vil/a hætta að kaupa
ritið, endursenda þá póstkröfuna og þarf
ekki aðra uppsögn þess. Þeim, sem ekki inn-
leysa póstkröfuna, verður ekki sent ritið
áíram.
Mjög er nauðsynlegt að þeir, sem ætla að
halda áfrarn að kaupa ritið, innleysi póst-
kröfuna sem allra fyist, eftir að hún berst
þeim.
DAGRENNING 39