Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 3

Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 3
DAGRENNING 6. TÖLUBLAÐ 7. ÁRGANGUR REYKJAVÍK DESEMBER 1952 Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavík. Sími 1196 Sagan um „Vitringana frá Austurlöndum“ mun nú vera taliti þjóðsaga eða helgisögn eins og það er kallað af nýguðfrœðivisindum vorra daga. Sennilega trúa fáir þx>í lengur, að þcssir vitringar hafi nokkru sinni verið til og lialda að þetta sé ein af helgisögnum þeim, sem myndast hafa á hinutn „óupþlýstu“ miðöldum, þegar mennirnir voru trúgjarnir og hjátrúarfullir. En hvað sem þessurn skoðunum siðari tima liður, þá er sagan um vitring- ana frá Austurlöndum fyrir margra hluta sakir hin athyglisverðasta. Þegar á fyrstu öld þegar Mattheusarguðspjall er talið vera samið er þessi „helgisögn“ komin inn i frásögnina svo þvi er ekki til að dreifa að um „siðari tima viðbót“ sé að reeða. Frásögnin hefir fylgt kristninni frá dögum postulanna og þess vegna er engin ástceða til að setja hana i neinn „skammarkrók“. Frásögn Mattheusar um komu þeirra er þannig: „En er Jesús var fœddur, sjá, þá komu vitringar frá Austurlöndum til Jerú- salem og sögðu: Hvar er hinn nýfeeddi konungur Gyðinga.“(]úda). Þvi að vér höfum séð stjörnu hans austur frá og erum komnir, til þess að veita honutn lotning. En er Heródes konungur heyrði þetta, varð hann felmtsfullur og öll Jerúsalem með honum; og er hann hafði safnað saman öllum eeðstu prestum og frceðimönnum lýðsins, spurði hann þá, hvar Kristur cetti að fceðast. Og þeir svöruðu honum: í Betlehem i Júdeu. Þvi að þannig er ritað af spámanninum: Og þú Betlehem, land Júda, ert engan veginn liin minnsta meðal höfðingja Júda; þvi að frá þér mun koma höfðingi, sem vera skal hirðir lýðs míns, Israels. Þá kallaði Heródes vitringana til sin á laun og fékk hjá þeim glögga grein á þvi, hve lengi stjarnan hefði sést; lét hann þá siðan fara til Betlehem og sagði: Farið og haldið vandlega sþurnum fyrir um barnið og er þér hafið fundið það, þá látið mig vita, til þess að ég geti einttig komið og veitt þvi lotningu. En er þeir liöfðu hlýtt á konunginn fóru þeir leiðar sinnar. Og sjá, stjarnan, sem þeir höfðu séð austurfrá, fór fyrir þeim, þar til er Irún staðnœmdist þar yfir, sem barnið var. En er þeir sáu stjörnuna glöddust þeir harla mjög. Og þeir gengu inn i húsið og sáu barnið, ásamt Mariu móður þess, og féllu fram og veittu þvi lotning. Og þeir opnuðu fjárhirslur sinar og fcerðu þvi gjafir: gull, reykelsi og myrru. Og er þeir höfðu fengið bendingu i draumi um það, að hverfa ekki DAGRENN I NG 1

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.