Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 30

Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 30
Blaðið birtir síðan ýrnsar getgátur urn hvað þetta gæti hafa verið, en flest bendir til að engin sú getgáta sé rétt. Dagrenningu hefir tekizt að afla sér beint frásagnar Jóns Eiríkissonar unr þetta og er hún þannig: „Sunnudaginn fyrsta í vetri var ég statt- ur út á Gleráreyrum um kl. 19,45 niorgni. Sá ég þá eldhnetti koma úr norðvestri 4—5 hvern á eftir öðrum og stefndu í Garðsárdal. Sá fyrsti var horfinn þegar sá næsti kom í augsýn, á þessu gekk þangað til þeir voru horfnir allir. Mikill hraði og sterkur ljós- bjarmi fylgdi þeim, hátt á lofti voru þeir. Þessi sýn mun hafa staðið 2—3 mínútur." Frásögn Jóns Eiríkssonar, Gránufélags- götu 29 Akureyri, sem mun hafa séð þetta manna best. * En þennan sama morgun sáust samskon- ar eða svipuð fyrribæri einnig í Skagafirði. Að vísu er það aðeins einn maður, sem vitað er um að sá þau, en frásögn hans er svo lík frásögn fólksins á Akurevri, að ekki er ástæða til að efast um sannleiksgildi hennar. Fer frásögn hans hér á eftir: „Það var að morgni hins 26. okt. að ég fór til vinnu við hitaveitu Sauðárkróks. Vinnustaðurinn var við norðurenda Áshild- arvatns, sem er fyrir fjarðarbottninum skammt innan við kaupstaðinn. Var ég kom- inn á vinnustaðinn og ætlaði að fara að beygja járn um klukkan átta um morguninn. Farið var vel að birta, en þó ekki orðið alveg albjart af degi. Sá ég þá allt í einu bregða fvrir ljósglömp- um á lofti og varð litið upp í vesturátt. Sá ég Jiá þrjá lýsandi hluti á flugi vestur yfir Tinda- stóli og fóru þeir mjög geist. Bar þá ofur- lítið yfir fjallsbrúnina, og virtist mér til að sjá, sem stærð þeirra væri svipuð og tungls. Hlutir þessir voru kringlóttir og lýsandi en ljósmagn þeirra dofnaði, svo að þeir urðu bláleitari við rendurnar. Svifu þessir þrír „diskar“ í svipaðri hæð með nokkru millibili geysihratt í suðurátt og bar fljótt undan. Flugu þeir suður yfir Sandfell og hurfu von bráðar fyrir Staðaröxl að vestanverðu við dalinn." Sá sem þetta sá og frá því segir er Valdi- mar Pétursson, verkamaður í Sauðárkróki, greinagóður og athugull maður. * Hinir „fljúgandi diskar“ sem nú hefir ver- ið sagt frá sáust í Skagafirði og Eyjafirði dagana 21., 22. og 26. október. En sunnu- daginn 9. nóvember kl. rúnrlega 5 um kvöld- ið sáust svipuð fyrirbæri á Austfjörðum, að því er virðist alla leið frá Loðmundarfirði til Hornafjarðar og á Hornafirði sáust þau tvo daga í röð. í þessum bvggðarlögum er talið að mörg hundruð manns hafi séð fvrir- bæri þessi. Af frásögnum blaðanna er frásögn Tímans greinilegust af fyrribærum þessunr, en hann segir frá þeirn 11. nóv. s. 1. undir fyrirsögn- inni: „Hundruð Austfirðinga sáu eldkringlu geisast inn yfir landið.“ Þar segir svo: „Klukkan 5—10 mínútum yfir fimm á sunnudagskvöklið sáu Austfirðingar eldhnött mikinn og ókennilegan svífa inn yfir landið úr austri og hverfa inn yfir hálendið í vestri. Ber öllum sjónan'ottum, sem munu vera svo hundruðum skiptir, saman um það, að þetta hafi ekki líkzt venjulegu stjörnuhrapi. Af loftfara þessum lagði skæra birtu, er sló á land og loft, og aftur úr honum var ljósrák eða rákir, er sumir töldu líkjast eldglær- ingum. Um sýn þessa eins og menn telja sig hafa séð hana á Seyðisfirði segir í sama blaði: „Um klukkan 5—10 mínútur yfir fimm á sunnudagskvöldið sáu nokkrir menn, er 28 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.