Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 20

Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 20
til Tarascon til þess að heimsækja heilaga Mörtu, þjónustu Jesú Krists. í sörnu erindum, sama daginn og á sömu klukkustund komu Trophimus, biskup í Ar- les, og Entropius, prestur í Orange, án þess að nokkur þeirra vissi um ferðir hinna. Þeir komu allir eftir innblæstri frá Guði, sem stjómar öllurn hlutum dásamlega. Hin heilaga hetja veitti þeirn \árðulegar viðtökur, ræddi frjálsmannlega við þá og bað þá að dvelja hjá sér; og hinn seytjánda dag desembermánaðar vígðu þeir Drottni vorum og Frelsara sem kirkju, hús heilagrar Mörtu — húsið, sem þegar var orðið heilagt af nærveru hennar, göfgi og fögrurn dyggð- um. Og þegar prestarnir settust að rnáltíð eftir vígsluna þjónaði hún þeim af mikilli alúð. Á staðnum hafði og safnast sarnan fjöldi fólks, sem einnig var veittur beini, en vín var á þrotum. Konan, sem gengið hafði um beina fyrir Frelsarann, bauð þá að sækja vatn í nafni Jesú Krists og bera nóg fyrir alla. Og þegar prestarnir brögðuðu á því, fundu þeir að vatnið hafði breyst í besta vín. Þeir skipuðu því svo fyrir, að dagur þessi skyldi framvegis teljast helgur dagur, bæði til minningar um vígslu kirkjunnar og að vatni var breytt í vín. SKILNAÐARORÐIN VIÐ MAXIMINUS 44. kapítuli. Þegar biskuparnir höfðu kvatt hina heilögu þjónustu Jesú Krists, beðið hana að minnast sín í bænurn og helgum athöfn- um, og þegið gagnkvæma blessun hver frá öðrurn, héldu þeir hver til síns heima. Heilög Marta bað fyrir kveðju til virðu- legrar systur sinnar, Maríu Magdalenu, ... og bað hana að koma og lieimsækja sig áður en hún dæi. Þegar heilagur Maximinus flutti heilagri Maríu Magdalenu þessi skilaboð endurgalt hún kveðju systur sinnar og lofaði að verða við ósk hennar, ef ekki í þessu lífi, þá eftir dauða sinn. Þess vegna á að trúa því, að helgir rnenn rnuni eftir ástvinum sínum, eftir dauðann, og geti stundum efnt loforð, sem þeir gáfu þeim hér í lífinu. Þegar hér var komið sögu hófu heiðingj- arnir í Aquitaine ofsóknir, og fjöldi krist- inna rnanna var hrakinn í útlegð. Meðal þeirra voru Frontinus biskup í Perigueux og Georgius í Veliacum. Þeir flýðu báðir til heilagrar Mörtu í Tarascon. Hún tók blíð- lega við þeim, með sinni venjulegu hjálp- fý'si, bjó rausnarlega að þeim á allan hátt og mátti ekki heyra annað nefnt, en að þeir dveldu hjá henni þangað til þeim yrði levft að hverfa aftur til biskupsstóla sinna. Þegar þeir voru að leggja af stað heim aftur sagði heilög Marta: „Herra biskup yfir Perigueux! Ég vil segja yður það nú, að næsta ár á ég að yfirgefa minn jarðneska líkama. Mér er það mikið hjartans mál, að þér kom- ið og greftrið mig, ef þér sjáið yður það fært.“ Biskupinn svaraði: „Ég mun koma, dóttir mín, ef Guð lofar og ég verð á lífi.“ Prestarnir héldu síðan heimleiðis, en heilög Marta kallaði fólk sitt til sín og sagði því, að eftir eitt ár frá þeim degi vrði hún kvödd af þessum heimi. Að svo búnu lagðist hún á hríslubeð sinn og lá þjáð af hitasótt í heilt ár, „eins og gull er prófað í ofni.“ MARÍA MAGDALENA DEYR. 45. kapítuli: Meðan þessu fór frarn \'ar heilög María Magdalena niðursokkin í himneska hugleiðslu og gætti trúlega hins góða hlutskiptis, sem hún hafði valið sér. En þegar leið að þeim tíma, er hin jarðneska tjaldbúð hennar hinmesku sálar skyldi falla og hún var þess albúin, að hverfa til þeirra 18 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.