Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 4

Dagrenning - 01.12.1952, Blaðsíða 4
aftur til Heródesar, fóru þeir aðra leið lieim til lands sins.“ Guðsþjallið segir ennfremur frá þvi, að Jósef vitraðist engill i draumi er sagði: „Ris uþp og tak barnið og móðir þess með þér og flý til Egiptalands.“ „En er Heródes sá, að hann var gabbaður af vitringunum, varð liann afarreiður, sendi út og lét myrða öll sveinbörn i Betlehem og öllum nálœgum héruðum, tvœvetur og þaðan af yngri eftir þeirri timalengd, sem hann hafði komist að hjá vitringunum." * í frumkristninni og fram i miðaldir vissu menn nöfn vitringanna. Beda prestur hinn fróði (672—735) segir að þeir hafi heitið Melsior, Kaspar og Balthasar og lýsir hverjum þeirra nánar, en i Bibliunni eru þeir aðeins nefndir „vitringarnir frá Austurlöndum“. Saga þeirra sýnir m. a. hve hátt stjörnuspeki þeirra tima hefir staðið. Ekki er vitað hve langt „að austan“ þeir hafa liomið, en af viðtali þeirra og Heró- desar má ráða, að „stjarna“ Krists hafi sést i nœrfellt tvö ár, þar sem hann lcetur myrða öll tveggja ára gömul sveinbörn og yngri. Gœti þetta bent til, að þeir hefðu komið langt að austan. Margir liafa brotið lieilann um það, hverjir og hvaðan vitringarnir voru, en hœtt er við að sú gáta verði seint ráðin. Þeir voru fulltrúar hins heiðna heims við komu Frelsarans. En för þessara vittru manna hafði hinar alvar- legustu afleiðitigar. Afleiðingar, sem þá mun ekki hafa órað fyrir, þó vitrir og frarnsýnir vccru. Hún kostaði þúsundir smásveina lifið, og meiri sorg i Betle- hem og héruðunum þar umhverfis en orð fá lýst. Menn hafa efast um, að sagan um morðin á sveinbörnunum vceri sönn. En ekki er ástceða til að efa það. Enn i dag gerast svipaðir atburðir i lönd- um einrœðis og kúgunar þar sem Kristi hefir verið útrýmt. Og þó atburð- urinn sé voðalegur frá almennu sjónarmiði séð, er rétt að gceta þess fyrir hvern hin ungu sveinbörn létu lifið. Þau voru fyrstu pislarvottar þessarar jarðar, sem létu lif sitt fyrir Frelsarann. Ef það er rétt, að þeir, scm liðið hafa píslai~ucettisdauða fyrir trú sina og þjónustu við Frelsarann, muni öðlast mikla hlutdeild i fög?iuði Krists, getum vér gert oss i hugarlund hvilik dýrð hefir beðið hinna ungu og saklausu barna, sem liflátin voru vegna fceðingar Hans. Um alla eilífð munu þeir ungu sveinar og jafnaldrar Jesú Krists verða ein stolíasta fylkingin i herskörum Hans, því allir, sem deyja Hans vegna lifa eiliflega. GLEÐILEG JÓL!

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.