Dagrenning - 01.12.1952, Page 25

Dagrenning - 01.12.1952, Page 25
JÓNAS GUÐMUNDSSON: Tákn á Ihiimnii yfir Íslandí Dagrenning hefir nokkrum sinnum minnst á hin furðulegu fyrirbæri, sem rnenn hafa orðið \’arir við víðsvegar um heirn og nefnd eru „fljúgandi diskar“. Síðast var um þetta furðulega fyrirbæri rætt í 37. hefti Dag- renningar og bent á, að þótt sanna mætti, að sum þessara fyrirbæra ættu rót sína að rekja til ýmiskonar nýrra tækja, sem verið er að senda upp í háloftin, þá er ekki unnt að beita þeirri skýringu við fjölda mörg þess- ara fyrirbæra og nú er svo komið, að jafn- vel vísindamenn eru famir að efast um að fyrirbæri þessi stafi frá aðgerðum rnanna hér á jörð, heldur sé hér um að ræða eitthvað sem kemur utan að og ekki verður verður skilið né skýrt „jarðneskri skilningu“. Ilið mikla ameríska tímarit „Life“ birti 6. apríl í vor rnikla grein um hina „fljúg- andi diska“ og segir þar, að „ýtarlegar rann- sóknir hafi leitt í ljós, að örugg vissa sé nú fvrir þ\’í, að loftför, sem hvorki eru amerísk, rússnesk eða annarra þjóða, fljúgi nú um himingeiminn í nokkurri fjarlægð frá jörðu.“ Blaðið birtir þrjár rnvndir, sem voru tekn- ar s. 1. ár í Texas og sýna þær V-laga ljósrák- ir á ferð yfir himinhvolfið. Flugmálaráðu- neytið hefir rannsakað mvndir þessar af mik- illi gaumgæfni og kveðst ekki geta kveðið upp þann dóm, að þær séu falsaðar. Ekki hafa menn heldur getað sýnt fram á, að þær séu af jarðneskum uppruna, ef svo má að orði kveða, og ekki em þær heldur af nokkru þekktu ljósfyrirbæri í himingeimnum. Einn möguleiki er því aðeins eftir — að myndirnar séu af óþekktum flugvélum — hinurn fljúg- andi diskum. Sjálft segist blaðið vera þess fullvíst, að hinir undarlegu og dularfullu diskar séu raun- verulega til, og að ekki sé mögulegt að skýra þá sem náttúrufræðilegt h'rirbæri heldur hljóti þeir að vera flugtæki, sem gerð séu af hinni mestu hugvitssemi af skvnsemi gædd- um verum. Nú er svo komið, að flugher Bandaríkj- anna — og vafalaust einnig annarra þjóða — hefir fengið fyrirskipun um að rannsaka mjög nákvæmlega alla „óþekkta hluti“, sem sjást á lofti yfir Bandaríkjunum, og skjóta þá niður ef ekki er hægt með öðrum hætti að ganga að fullu úr skugga um hvað þar sé á ferð. Enn fremur er nú svo komið, að ýrnsir þeirra manna, sem verulegt mark ætti að vera takandi á í þessum efnum, hafa ýmist sjálfir séð þessi fyrirbæri eða rannsakað þau samkvæmt annarra sögusögnum, og komist að þeirri niðurstöðu, að hér séu hin athyglis- verðustu fyrirbæri á ferðinni. Hinn 19. apríl s. 1. birtist eftirfarandi frétt frá Minneapolis í Bandaríkjunum: „/. J. Kaliszewsky forstjóri f\-rirtækisins „General Mills Balloon Experimental Proj- ect“, í Minnesota, sem framleiðir loftbelgi og rannsóknartæki til háloftsathugana, hefir skýrt svo frá, að hann hafi hinn 10. október síðastliðinn fyrst komið auga á þessi furðu- fvrirbæri í loftinu, og fullyrðir hann að um einhvers konar geimför sé hér að ræða. Dag þenna var hann á lofti í tilraunaloft- DAGRENNING 23

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.