Dagrenning - 01.12.1952, Page 26
belg ásamt einum af sérfræðingum fyrirtækis-
ins. Þegar þeir voru staddir um 15 kílómetra
austur af Saint Croix í Wisconsin kom geim-
farið á móti þeim með miklum hraða, og
segir liann að af því hafi geislað grænleitum
bjarma. Það steypti sér niður að loftbelg
þeirra félaga og flaug nokkra hringi í kring-
um þá, lyfti sér síðan með feikna hraða beint
upp í loftið og innan stundar hvarf það
sjónum.
Daginn eftir var Kaliszewsky aftur uppi
við annan mann og sáu þeir þá tvö geimför
söniu tegundar.“
Dr. WaJter Reidel, þýzkur vísindamað-
ur, sem stjórnaði byggingu V-2 flugskeyt-
anna, sem Þjóðverjar sendu til Bretlands á
stríðsárunum og mestu tjóni ollu þar er einn
þeirra, sem telur að óhugsandi sé að þessi
furðu-fyrirbæri séu af jarðneskum uppruna
og hallast eindregið að þeirri skoðun, að hér
séu á ferðinni íbúar annarra hnatta, sem
lengra eru á veg komnir í geimflugi en vér,
íbúar þessarar jarðar.
Röksemdir dr. Walthers Reidel eru aðal-
lega þessar:
„1. Flughraði þeirra er svo mikill, að hit-
inn í yfirborði þeirra hlýtur að vera miklurn
m'un rneiri en nokkur málmtegund, senr
þekkt er á jörðinni, getur þolað.
2. Flug þeirra er slíkt, að flugmaður hlýt-
ur að stýra þeim, en þó er því á hinn bóginn
þannig farið, að enginn rnaður gæti þolað
flugferð í slíkum disk, án þess að láta sam-
stundis lífið.
3. Þeir skilja enga slóð eftir sig á himn-
inum, en það hlytu þeir að gera, ef þeir væru
knúnir áfram af einhverju því eldsnevti, sem
er þekkt á jörðinni."
*
Síðast í júlímánuði sáust þessi furðufvrir-
bæri yfir höfuðborg Bandaríkjanna, Wash-
ington. í allt að sex klukkustundir sáu menn
þessa lýsandi hnetti við og við yfir borginni
og þeir sáust svífa þar í hringi með hraða,
sem menn áætluðu 150 til 250 km á klukku-
stund. Vitað var með vissu, að ekki var þarna
á ferðum neitt af tilraunatækjum Banda-
ríkjahers, en almennt hallast menn að þeirri
skoðun, segir í fréttum blaðanna, „að þarna
sé á ferðum eitthvert náttúrufvrirbæri sem
vísindin ættu að geta skýrt.“
Robert L. Famswoith, forseti bandaríska
eldflauga félagsins er þeirrar skoðunar, að
hinir „fljúgandi diskar“ séu „geimför frá öðr-
um hnöttum." Hann hefir sent Bandaríkja-
forseta og landvarnarráðherra Bandaríkjanna
skeyti þar sem hann varar við því, að láta
flugherinn skjóta á „hluti uppi í loftinu, sem
\itneskja lrefir ekki fengizt urn hverjir séu.“
Farnsworth heldur því fram, að skothríð
á hugsanleg geimför gæti bæði haft alvarleg-
ustu afleiðingar og mundu ekki heldur hafa
neina lausn málsins í för með sér. „Við verð-
um eins lengi og unnt er að sýna hinum
ókunnu vinsemd,“ segir Farnsworth.
=je
Það vakti stórkostlega athygli um allan
heim, að þegar hinar miklu flug og flotaæf-
ingar fóru fram á Norðursjó nú í haust sá-
ust þessir lýsandi hnettir af skipunum og gáfu
danskir herforingjar skýrslu um málið, en
hún hefir ekki verið birt enn.
En svo gerðist það 28. sept. s. 1. í Dan-
mörku, að rnargar þúsundir rnanna sáu gló-
andi hlut sem geistist um loftið með feikna
hraða.
Eitt blaðanna hér (Tíminn) skýrir svo frá
bessu samkvæmt heimildum danskra blaða:
„Á sunnudagskvöldið (28. sept.) var, sáu
tugþúsundir Dana dularfullan, glóandi hlut,
er geistist um loftið og dró á eftir sér eld-
spúandi hala. Þetta fyrirbrigði sást á fjölda
staða í Danmörku laust eftir klukkan hálf-
sjö um kvöldið. Meðal sjónanotta voru verk-
24 DAGRENN I NG