Dagrenning - 01.12.1953, Page 7
konung liafi dreymt draum, sem gerði
honum órótt nrjög í skapi, og mátti hann
eigi sofa fyrir áhyggjum út af draumn-
um. Lét hann þá „kalla til sín spásagna-
menn og særingamenn og galdramenn og
Kaldea“ (vísindamenn þeirra tíma) og
krafðist þess af þeirn, að þeir segðu kon-
ungi, hvað liann hefði dreymt og réðu
síðan drauminn. Var þetta í liæsta máta
ósanngjörn krafa, en konungur sat svo
fast við sinn keip, að hann fyrirskipaði,
að hefðu vitringarnir, eða einhver úr
þeirra hópi, ekki sagt drauminn og ráðn-
ingu hans fyrir tiltekinn tíma, skyldu
þeir allir af lífi teknir. Fól hann Arjok,
valdsmanni sínum, að framkvæma af-
töku vitringanna.
F.inn í hópi þessara vitringa var Daniel,
og þá tiltölulega ungur maður. Hann
fór á konungsfund og bað um frest til
þess að geta fullnægt skipun konungs.
Honum var veittur fresturinn og aftöku
vitringanna frestað á meðan. Daniel, og
hinir þrír félagar hans, allir af Júdaætt-
kvísl, gengu nú til bænar við Drottinn
og leituðu hans fulltingis í þessum mikla
vanda. Og „þá var leyndardómurinn
opinberaður Daniel í nætursýn." Þá lof-
aði Daníel Guð Iiimnanna: „Ég þakka
þér, Guð feðra minna, og vegsama þig,
fvrir það, að þú hefir gefið mér visku og
mátt og nú látið mig vita það, er vér báð-
um þig um; því að þú hefir opinberað
oss það, er konungur vildi vita.“ (Dan.
2. 23.)
Nú var Daniel leiddur fyrir konung
og sagði hann honum fyrst drauminn
og síðan merkingu hans.
Draumurinn var í sem styttstu máli
þessi: Konungur sá standa frammi fvrir
sér líknesi af manni, stórt og fagurt. Höf-
uð þess var af gulli, brjóstið og hand-
leggirnir af silfri, kviðurinn og lendarn-
ar af eiri, leggirnir af járni, en fæturnir
úr blendingi af járni og leir. Og þegar nú
konungur stóð þar og horfði á þetta
mikla líkneski, sá hann að steinn nokkur
losnaði, án þess nokkur mannshönd
kæmi við hann. Steinninn lenti á fótum
líkneskisins, sem voru úr leir og járni, og
molaði þá sundur, en þá muldist og í
sundur járnið, leirinn, eirinn, silfrið og
gullið og varð að dufti, sem vindurinn
feykti burt, svo þess sá engin merki frarn-
ar. En steinninn, sem molaði líkneskið,
varð að stóru fjalli, sem tók yfir alla jörð.
Daniel sagði svo konungi þýðingu
draumsins og er hún þessi:
Draunrurinn merkir það, að fjögur
stór heimsríki rnunu upp koma á jörð-
unni. Hið fyrsta þeirra er Babyloníu-
ríki og er gullhöfuðið tákn þess. Á eftir
því mun hefjast til vegs annað heims-
ríki, minniháttar en hið fyrsta var, og
er það því táknað með silfrinu. Því næst
kemur hið þriðja, sem táknað er með
eiri, og mun það „drottna yfir allri ver-
öldu.“ Þá mun hefjast fjórða ríkið,
„sterkt sem járn, því að járnið sundur-
brýtur og molar allt.“ Og þetta „járn-
ríki“ mun brjóta öll hin ríkin undir sig.
Síðasta þróunarstigi „járnríkisins“ lýs-
ir spámaðurinn með eigin orðum þannig:
„En þar sem þú sást fœturna og tcern-
ar, að sumt var af pottaraleiri en sumt
af járni, merkir það, að rikið mun verða
skipt, þó mun það nokkru í sér halda af
Iiörku járnsins, þar sem þú sást járnið
blandast saman við deiglumóinn. En þar
er tcernar á fótunum voru sumskostar af
járni en sumskostar af leiri, þá mun það
riki að nokkru leyti verða öflugt, en að
nokkru leyti veikt.“
„Og þar er þú sást járnið blandast sam-
an við deiglumóinn þá munu þeir með
kvonföngum saman blandast og þó ekki
DAGRENNING 5