Dagrenning - 01.12.1953, Page 13
meir og meir áberandi, virðist staðfesta
það, að vér lifum nú, sögulega séð, á
tímabili „fótanna" á líkneskinu, og að
þess mun tæpast langt að bíða, að „tærn-
ar“ birtist sem „Hinar tíu sameinuðu
þjóðir" (Ten Federated Nations).“
(The Book of Daniel bls. 48—49.)
V.
í þessari bráðsnjöllu skýringu hins
mæta höfundar kemur það greinilega
fram, hversu feikna mikill vísdómur er
fólginn í þessum mörgþúsund ára gamla
spádómi.
Þess er áður getið, að skýring þessi
er gefin út 1929 og er því fróðlegt að
veita því athygli, sem liöfundurinn segir
um það, að „þess muni tæpast langt að
bíða, að „tærnar“ birtist sem „Hinar
tíu sameinuðu þjóðir".
Þeir sem á annað borð taka gilda þá
skýringu spádóms þessa, sem hér að fram-
an hefir verið rakin, eru í engum efa
um, að vér, sem nú erum uppi, lifum
á lokatímabili þeirra skipulagshátta,
sem hinn mikli spádómur fjallar aðallega
um. Heimsveldin öll fjögur — Babylon,
Media og Persía, Grikklandsríki og
Rómaríki eru öll liðin undir lok, og upp
af Rómaríki hafa síðan vaxið ýmsar
smærri ríkjasamsteypur, en þó hefir eng-
in slík ríkjasamsteypa enn náð neitt svip-
aðri heimsveldisaðstöðu og hið forna
Rómaríki og heimsveldin á undan því
liöfðu, þegar bornar eru saman allar að-
stæður þá og nú. I engri mannkynssögu
er það kennt, að á eftir Rómaríki hafi
komið heimsveldi á borð við J:>að. Vér
vitum að vísu að nú eru til stórveldi,
stærri en hið forna Rómaríki, en nú er
„heimurinn" líka miklu ,,stærri“ en hann
var þá, og völd og áhrif stórvelda nú þess-
vegna hlutfallslega miklu minni en völd
og áhrif hins forna Rómaríkis. „Leirinn
og járnið“ hafa nú þegar blandast sam-
an, þ. e. skipulagshættir einræðis og lýð-
ræðis tvinnast svo saman á ýmsan veg í
öllunr ríkjum og löndum, að nú eru þessi
stjórnarform að verða að slíkum skipu-
lagsflækjum, að fæstir fá úr þeim leist
eða í þeim botnað.
Af því, sem sagt hefir verið, sjáum vér
einnig, að tíminn, sem spádómurinn tek-
ur yfir, er hvorki meira né minna en
2500—3000 ár og er því ekki að undra
þótt ekki sé sýnileg mikil breyting á tíma
hverrar kynslóðar á þessu langa tímabili.
Þá er það og greinilegt, að síðasta tima-
bilið á að auðkennast af tiu sambands-
rikjum, sem táknuð eru með hinum
tíu tám líkneskisins. Þegar þessi tíu ríki
Jress vegna birtast á vettvangi sögunnar
getum vér verið viss um, að lokajiiáttur-
inn er hafinn, og „hrun líkneskisins," Jd.
e. liinnai' heiðnu menningar síðustu
3000 ára, er alveg yfirvofandi.
VI.
Með það í huga, sem nú var sagt, skul-
um vér líta nokkru nánar á Jiennan síð-
asta þátt — tærnar á líkneskinu.
í spádómsþýðingu Daniels segir þetta
um tær líkneskisins:
„En þar er þú sást fæturna og tærnar,
að sumt var af pottaraleiri, sumt af járni,
það merkir að rikið mun verða skift..“ —
----Og ennfremur. —
„En þar er tærnar á fótunum voru
sumskostar af járni og sumskostar af leiri,
þá mun Jrað ríki að nokkuru leyti verða
öflugt og að nokkuru leyti veikt."
Fleira er ekki um tærnar sagt annað
en Jxrð, að „steinninn," losnaði úr
fjallinu „lenti á fótum líkneskisins, sem
voru af járni og leiri og molaði þá,“ og
DAGRENNING 11