Dagrenning - 01.12.1953, Side 19
átt við ísraelsþjóðina alla — hinar tólf
ættkvíslir Israels og afkomendur þeirra,
hvar svo sem þær nú eru niðurkomnar,
og hvaða þjóðanöfn, sem þær nú bera.
Enginn efi er á því frá sjónarmiði höf-
undar þessarar greinar, að hér er átt við
Israelsþjóðina í heild. Vera má að einnig
sé þar átt við sannkristna menn, sem
verða að sæta ofsóknum fyrir trúarskoð-
anir sínar og fastheldni við trúna á Guð
Abrahams, ísaks og Jakobs, sem Kristur
boðaði og kenndi lærisveinunum að væri
hinn „eini, sanni Guð“.
En liér verður að gæta þess, að ekki
er verið að ræða um trúarstefnur eða
kirkjudeildir Iieldur ríkisheildir. „Horn-
in“ eru „konungar" þ. e. ríkisheildir —
stórveldi, sem koma fram á svið sögunn-
ar á sínum tíma og verða öllum aug-
Ijós og áþreifanleg. Sá skilningur útilok-
ar með öllu að um trúarflokk sé að ræða
eða persónulegar ofsóknir á hendur ein-
stökum, kristnum mönnum. „Hinir heil-
ögu Hins Hæsta“ er ríki eða ríkjasam-
bancl, sem „Litla hornið“, sem einn-
ig er mikið stórveldi, mun reyna
með öllum ráðum að koma fyrir kattar-
nef. Það er beinlínis tekið fram, að þetta
ríki, „Litla-hornið“, muni „heyja stríð“
við þá „heilögu Hins Hæsta“, þ. e. eiga
í ófriði við þá, og að í fyrstu lotu þess
ófriðar muni „Hinir heilögu Hins
Hæsta“ fara halloka, en að lokum muni
„dómurinn settur verða“ og „litla-horn“-
ríkið svift öllum völdum og það að engu
gert. „Hinir heilögu Hins Hæsta“ eru
því tvímælalaust ríki eða ríkjasamband,
sem kemur á sínum tíma til með að eiga
í miklum ófriði við „Litla hornið“ — þ.
e. Sóvietríkin.
í 2. kapitula Danielsbókar er þetta orð-
að þannig: „En á dögum þessara kon-
unga (þ. e. á dögum „tánna“ á líknesk-
inu eða hinna „tíu horna“ á dýrinu)
mun Guð himnanna liefja ríki, sem al-
drei skal á grunn ganga (verða eyðilagt)
og það ríki skal engri annarri þjóð (en
ísraelsmönnum) í hendur fengið verða“.
Og síðan segir: „Það mun knosa og að
engu gera öll þessi (tíu) ríki, en sjálft
mun það standa að eilífu." — f ensku
Biblíunni er þetta orðað þannig að
þetta nýja ríki eða ríkjasamband skuli
„sundurbrjóta og eyða öllum þessum
ríkjum“ (break in pieces and consume all
these kingdoms). Sýnir þetta svo greini-
lega sem verða má, að til stórkostlegs
ófriðar dregur milli þess ríkis eða ríkja-
sambands sem nefnt er „Hinir heilögu
Hins Hæsta“ og „Litla-hornsins“ eftir
að það hefir „slitið upp“ þau þrjú „horn-
ríki“, sem næst því voru, og er orðið
„meira ásýndum“ en hin „hornin.“
Öllum getgátum um að hér sé um að
ræða andleg eða trúarleg átök verður því
skilyrðislaust að vísa á bug. Hér er um
stórstyrjöld milli ríkja eða ríkja-banda-
laga að ræða. —
XI.
Geturn vér þá gert oss grein fyrir því
hverjir eru „Hinir heilögu Hins Hæsta“?
Vera má að þróunin sé ekki enn svo
langt komin, að oss sé það augljóst, en
eins og rakið er hér að framan, er greini-
legt að þess getur ekki orðið langt að
bíða að það ríki eða ríkjasamband komi
í ljós.
Vér höfnum alveg jreirri tilgátu, að þar
sé um nokkra kirkju eða kirkjudeild að
ræða og vísum til þess, sem að framan
segir þar um.
Vér skulum þá atliuga hvort önnur til-
gátan, um að hér sé átt við Gyðinga, fái
staðist. Það er greinlega tekið fram, að
Guð himnanna muni stofna þetta ríki á
DAGRENN I NG 17