Dagrenning - 01.12.1953, Page 22
efnishyggjunni — en liafna lögmáli Gnðs,
sem eitt getur verið þjóðum heimsins
raunhæfur grundvöllur undir lífi þeirra
og starfi. Sá tími kemur, að Bretland og
Bandaríkin sjá þetta og skilja, en það
verður ekki fyrr en ríkjasamband það,
sem nú heitir „Hinar sameinuðu þjóð-
ir“, liefir liðast sundur og Jiað menning-
arskipulag, sem þjóðirnar hafa lifað við,
meira og minna breytt, síðan á dögum
Nebukadnesars, en þó í öllum aðalatrið-
um hið sama, hrynur saman. Allan tím-
ann hefir mannkynið tignað falsguði og
reynt að leysa vandamál sín eftir mann-
legum reglum og liugsunarhætti. Þess-
vegna liafa allar tilraunir til friðar og
farsældar mistekist — og J^ær munu mis-
takast þar til fullkomin stefnubreyting
verður. Sú stefnubreyting verður fyrst
Iijá ísraelsþjóðum nútimans — liinum
engilsaxnesku og norrænu þjóðum. Ym-
islegt bendir til að Jaessí stefnubreyting
sé að hefjast og mun j)að nú skýrast mjög
á næstu árum. En meðan þjóðirnar kepp-
ast við að lýsa yfir trúnaði sínum við
„Sameinuðu þjóðirnar" og trú sinni á að
þær séu „eina von mannkynsins“ er ekki
bata von. Meðan svo er eru Jiær allar
„samráða" og sammála um að gefa „dýr-
inu“ vald sitt.
En enginn má ætla að markalínurnar
í þessum átökum verði ljósar, fyrr en
löngu eftir að stefnubreytingin er hafin.
Fæstir skilja breytingar síns eigin tíma
meðan þær eru að gerast. Engan grun-
aði 1913—1914 að þá væri að hefjast nýtt
tímabil með {Djóðum heimsins — loka-
þáttur hins gamla heimsskipulags og for-
leikur hins nýja tíma, tvinnaður saman
með óteljandi þráðum, sterkum og veik-
um. — Eins er Jjað nú, að fæstir sjá tíma-
skiptin, sem nú eru að koma.
Flestir dansa blindir og leiða fordæm-
ingu yfir sjálfa sig og aðra. Þess vegna
enda „tímar heiðingjanna" með styrjöld,
sem nær til allra manna og allra ríkja
um alla jörð.
XIII.
Hér skal nú nema staðar enda er þetta
orðið lengra mál en ætlað var í fyrstu.
Að lokum skal J)ó taka saman Jjessar
sundurlausu skýringatilraunir svo menn
fái áttað sig á heildarmyndinni.
Hið mikla draumlíkneski Danielsbók-
ar er táknmynd af tilraun mannanna til
að skapa sér ríki eftir sinu höfði — sinni
eigin speki og vísindum. Þess vegna er
Jjað í mannsmynd. Hinir ýmsu málmar í
líkama Jress tákna hin fjögur „heims-
veldi“ (Empires) sem verið hafa á jörð-
unni á tímum hinna „mannlegu" skipu-
lagshátta. Algert einveldi göfugmennis
er bezta stjórnarform mannlegra skipu-
lagshátta og ]t\ í er Jxið táknað með dýr-
asta málminum — gullinu. Hinum mann-
legu skipulagsháttum hnignar meir og
meir og loks blandast „leirinn" við málm-
ana og veikir stjórnarkerfið svo að það
verður eftir Jiað ótraust. Það er lýðræðis-
stjórnarformið, sem vér, nútímamenn,
þekkjum kost og löst á, sem táknað er
með leirnum.Síðasta heimsveldið tekur á
lokastigi sínu á sig Jtað form, að upp rísa
á jörðunni tiu stórveldi, sem reyna að
konta á alheimsstjórn byggðri á manna-
setningum og mannlegum vísindum, sem
aldrei standast nema stutta stund. Þessi
tíu stórveldi eru skipt; í tvo liópa, fimm
í hvorum.
Á þeim hópnum, sem fyrr kemur fram
verður sú breyting að meðal ríkjanna
„kemur upp“ ríki, sem flestir litu smá-
um augum, og kollvarpar Joremur af fyrri
fimm ríkjunum, og gerist mjög umsvifa-
ntikið í heiminum. Síðar kemur svo
fram önnur fimm ríkja samstæða sem
20 DAGRENN I NG