Dagrenning - 01.12.1953, Blaðsíða 23
kemur á raunverulegri alheimsstjórn, að
nafninu til a. m. k. En þau ríki verða
svo sundurþykk innbyrðis, þó þau séu
öflug er þau standa öll saman, að stjórn
heimsins fer öll í handaskolum lijá þeim.
l.oks kemur þar, að þessi síðasta heims-
ríkistilraun „heiðingjanna“ mistekst
með öllu og stórfelldur alheimsófriður
brýst út. í þeirn ófriði safnast allar heiðn-
ar þjóðir undir merki „Litla hornsins",
en þannig er Sóvietríkjasambandið auð-
kennt í spádómnum.
I hinum flokknum verða aðeins Isra-
elsmenn nútímans (engilsaxneskar og
norrænar þjóðir) sem í þeirri eldraun —
mestu eldraun mannkynsins — munu
snúa sér af öllu lijarta til „Guðs himn-
anna“ — Jesú Krist — og biðja liann um
hjálp. Hann mun veita þeim hjálp til að
ráða niðurlögum hins heiðna ríkjasam-
bands, sein mun leysast upp, og nýtt
heimsríki myndast undir forustu Israels-
nranna, sem þá viðurkenna Krist sem
leiðtoga sinn og Drottinn, og byggja ríki
sitt upp samkvæmt lögmáli Heilagrar
ritningar.
Ofsóknir hinna heiðnu ríkja á hend-
ur ísrael, eða styrjöldin milli Jreirra, mun
standa yfir í hálft fjórða ár og Jrað munu
verða mestu hörmunga og þrengingatím-
ar, sem nokkru sinni liafa gengið yfir
jörðina og mannkynið. Þann tíma munu
Sóvietríkin ráða lögum og lofum í öllum
ríkjum meginlands Evrópu og Asíu, og
hryðjuverk þeirra og manndráp verða
margföld á við það, sem var hjá nasistum.
í lokaátökunum mun Kristur sjálfur taka
í taumana með einhverjum þeim hætti, er
öllum mönnum, sem |)á lifa, verður aug-
ljóst, þótt alveg sé ógerningur að geta
sér þess til nú, með hverjum hætti það
verður. Þó skyldu allir — og ekki síst ís-
lendingar, sem eru afkomendur Benja-
mínsættkvíslar, sem byggði Galileu á
Krists dögum — hafa í huga þessi orð
Postulasögunnar: „Galileumenn! Hví
standið þér og horfið til himins? Þessi
Jesús, sem var upp numinn frá yður til
himins, mun koma á sama hátt og þér
sáuð hann fara til himins.“ (Post. I. 11.)
í fyrstu atrennu hinna síðustu átaka
munu Sóvietríkin og hjálparríki þeirra
taka í einni svipan allt meginland Ev-
rópu og Asíu og mest allt meginland Af-
ríku. Þau munu einnig ná öflugri fótfestu
í Suður-Ameríku. Sérstaklega sögulegur
verður þáttur Joessa ófriðar fyrir botni
Miðjarðarliafs og yfirráð Rússa yfir Pales-
tinu og Jerúsalem. Sóvietríkin munu
„kasta eign sinni á alla fjársjóðu Egvpta-
lands af gulli og silfri og allar gersemar
|iess.“ En „fregnir frá austri og norðri“
munu þá berast til þeirra, og þær munu
,,skelfa“ Rússa. Þeir munu Joá „í mikilli
bræði hefja ferð sína, til þess að eyða og
tortíma mörgum“ (vetnisprengjur?). En
sú ferð mun verða þeirra síðasta. (Dan.
11. 45.).
Hvenær þessir atburðir verða getur
enginn sagt með vissu. Vér sjáum þó, að
þeirra getur ekki verið langt að biða.
Hver sú þjóð, og hver sá einstaklingur,
sem skilur þetta og sér ætti því ekki að
draga það lengi enn, að snúa sér til Drott-
ins, Frelsarans Jesú Krists, og biðja Hann
um vernd og hjálp í hinum óumflýjan-
legu Ragnarökum sem framundan eru.
Það er sjálfsagt að gera allt, sem i
mannlegu valdi stendur til þess að revna
að afstýra þeim voða, sem framnndan er.
En það verður ekki gert með þeim að-
ferðum sem nú er beitt. Þær gera enda-
lokin aðeins enn stórkostlegri, voðalegri
og óvissari.
í Biblíunni getið þér lesið um Jietta
allt, og mikln meira en hér er rakið.
DAGRENN I NG 21